Fréttablaðið - 04.04.2004, Qupperneq 53
kannski sá öflugasti af þeim.
Hann er fæddur árið 1987, á ís-
lenska móður og sænskan föður,
og spilar með Linköping Hockey
Club. Það gilda mjög strangar
reglur um hvaða forsendur þarf
að uppfylla svo leikmenn fái að
spila með landsliði.“
Emil uppfyllti þessi skilyrði
og allt útlit var fyrir að hann léki
með Íslendingum í keppninni.
„Svo gerðist það degi áður en
hann átti að koma hingað að
þjálfarinn hans í Svíþjóð fékk
veður af því að hann væri inni í
myndinni hjá sænska landslið-
inu. Hann lagðist því gegn því að
Emil færi til Íslands til að spila.
Við verðum að hafa skilning á
því að það er ansi mikill munur í
þessari íþrótt á því hvort menn
tala um íslenska eða sænska
landsliðið.“
Skólar og félög erlendis
„Við erum með dæmi frá
Kanada að drengjum hafi verið
boðinn skólastyrkur gegn því að
koma og spila íshokkí,“ sagði
Viðar. „Tveir sextán ára strákar
fóru á þessu ári í heimsókn til
Malmö Redhawks sem er einn af
stóru klúbbunum í Svíþjóð.“
Landsliðsmaðurinn Jónas
Breki Magnússon leikur með
Gladsaxe Bears í Danmörku en
fyrir fjórum árum fór hann til
reynslu til Kanada og Norður-
landa. „Við eigum eftir að sjá Ís-
lendinga leika erlendis, annað
hvort á skólastyrkjum eða til
þess að fá meiri samkeppni og
komast í harðari keppni. Ég ætla
kannski ekki að taka svo stórt
upp í mig að við fáum íslenskan
atvinnumann í NHL-deildina eða
toppdeildirnar á Norðurlöndum
strax en það mun gerast innan
skamms að fleiri íslenskir leik-
menn spili erlendis.“
Jafnfætis frændþjóðunum
„Við eigum okkur langtíma-
markmið en það er ekki skil-
greint hvað það nær langt fram í
tímann,“ sagði Viðar.
„Markmiðið er að komast upp að
hlið frændþjóða okkar og vera
meðal þeirra bestu í þessari
íþrótt. Þetta er íþrótt sem virðist
henta okkur íbúum á norður-
hveli og Norðurlandabúum mjög
vel. Hin löndin eru með margra
áratuga sögu í þessu sporti en
það eru fimm til sex ár frá því
við fórum að æfa þetta af ein-
hverri alvöru, líkt og þetta er
stundað víða um heiminn. Þetta
er langtímamarkmið. Við ætlum
að komast í hóp þeirra bestu og
vera þar með frændum okkar,
Finnum, Dönum, Svíum og Norð-
mönnum.“
„Raunhæft markmið til
skemmri tíma er alveg skýrt.
Landslið okkar verður að halda
sæti sínu í 2. deildinni. Á það
verður sett pressa og síðan þeg-
ar við erum búnir að tryggja
okkur það sæti þá förum við að
skríða upp á við þangað til við
komumst upp. Þetta er alveg
skýrt og klárt í okkar huga.“
Íslandsmótin í endurskoðun
Mótafyrirkomulagið hér
heima hefur verið í endurskoðun
og er þeirri vinnu ekki lokið.
Keppnin í karlaflokki var
óbreytt í vetur en keppni í
kvennaflokki og 2., 3. og 4. flokki
var breytt í fjögurra umferða
mót. „Í stað þess að vera með eitt
barnamót á ári, sem var kallað
Íslandsmót, er Íslandsmót barna
spilað á þremur mótum, einu í
hverri höll. Við beittum kröftum
okkar á þessu tímabili til að byg-
gja betri grunn fyrir barna- og
unglingastarfið og það má segja
að næsta skref sé að taka og
skoða keppnina í meistaraflokki
karla og kvenna og reyna að byg-
gja betur undir hana og gera
hana enn stærri. Við vonumst til
að innan tveggja til þriggja ára
þá getum við komið fjórða félag-
inu í gang en það myndi gjör-
breyta keppninni. Partur af því
að ná árangri á erlendum vett-
vangi er að stækka keppnina hér
heima. Með því móti fá leik-
mennirnir meiri reynslu og það
skiptir máli í áframhaldandi þró-
un okkar með landsliðið,“ sagði
Viðar Garðarsson, formaður Ís-
hokkísambands Íslands. ■
41SUNNUDAGUR 4. apríl 2004
Frá 39.895 kr.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
www.heimsferdir.is
Rimini
Glæsileg ströndin á Rimini, sem teygir sig kílómetrum saman eftir
fallegri strandlengjunni, á gífurlegum vinsældum a› fagna. fiar er
a› finna ótrúlega stemningu yfir sumartímann enda i›ar bærinn af
mannlífi, jafnt daga sem nætur. Til Rimini hópast innlendir sem
erlendir fer›amenn til a› njóta hins besta sem sumardvöl á Ítalíu
hefur a› bjó›a.
Frá 39.895 kr.
M.v. hjón me› 2 börn, 21.maí,
Residence Divina, vikufer›,
24. júní. Sjá ver›skrá
Frá 49.990 kr.
M.v. 2 í studio, 24. júní,
Residence Divina, vikuferð,
24. júní. Sjá verðskrá
Topp gististaðir
Heimsferðir bjóða góða gististaði í
hjarta Rimini, frábærlega staðsetta í
göngufæri við ströndina, veitingastaði
og verslanir.
Vinsælasti áfangastaður
Ítalíu
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
1
1
1
8
1
/
si
a.
is
Fáðu
8.000 kr. afslátt
Þeir sem bóka strax,
geta tryggt sér 8.000 kr.
afslátt í valdar
brottfarir.
Beint flug alla
fimmtudaga í sumar
Astoria
Skautahallirnar gera félögun-um kleift að bjóða upp á
kennslu og æfingar fyrir börn og
unglinga. Þau yngstu æfa í 7.
flokki, sem er fyrir iðkendur
sem eru fæddir árið 1995 og síð-
ar, en Viðar veit dæmi um þrigg-
ja ára iðkenda á Akureyri. „Við
innan sambandsins erum mjög
hreykin af þessu kraftmikla
starfi sem er inni í hreyfingunni
og í félagsliðunum sjálfum. Þar
hefur verið tekið til hendinni á
síðustu árum og má segja að öll
félögin séu rekin af miklum
myndarskap. Þau eru með mjög
öflugt og vel skipulagt barna- og
unglingastarf.“
Viðar segir að kostnaðurinn
við búnað fyrir byrjenda geti
orðið í kringum 30 þúsund krón-
ur ef hann sé allur keyptur strax.
„Hins vegar hafa félögin öll það
form á að þau bjóða börnum að
taka sín fyrstu skref í íþróttinni
með lágmarksbúnaði. Þau lána
gjarnan kylfur og skautahallirn-
ar leigja börnunum skauta. Fé-
lögin útvega þeim kannski
hjálma og þetta allra nauðsyn-
legasta á meðan. Foreldrum
gefst yfirleitt ráðrúm til að bæta
við búnaðinn í nokkrum þrep-
um.“ Félögin standa einnig fyrir
skiptimarkaði á haustin og tvö
félög hafa einnig skiptimarkað á
heimasíðum sínum. ■
ÍSLENDINGAR Í SÓKN
Íslenska íshokkílandsliðið sigr-
aði í 3. deild um síðustu helgi.
Næsta markmið er að treysta
stöðu þess í 2. deildinni.
SKAUTASKÓLI
Yngstu iðkendurnir hefja æfingar í skautaskóla.
Yngsti iðkandinn þriggja ára
Félögin standa fyrir mjög öflugu og vel skipulögðu barna- og unglingastarfi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T