Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 1
● stíga fram í sviðsljósið
Nylon:
▲
SÍÐA 49
Fyrsta samsetta
stelpubandið
● stofnar hljómsveit
Kalli Bjarni:
▲
SÍÐA 54
Sóldaggarmenn
mæta til leiks
● 39 ára í dag
Steinunn Valdís Óskarsdóttir:
▲
SÍÐA 40
Þegar farin að spá í
fertugsafmælið
MARKAÐUR Tvö norsk sjávarút-
vegsfyrirtæki vinna, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins, að
skráningu hlutabréfa sinna í
Kauphöll Íslands. Þar af eitt sem
gæti skráð hlutabréf sín á næst-
unni. Þórður Frið-
jónsson, forstjóri
Kauphallarinnar,
vildi ekki staðfesta
þetta, en staðfesti
hins vegar að fjöl-
mörg erlend sjáv-
arútvegsfyrirtæki
hefðu sýnt skrán-
ingu áhuga.
Kauphöll Íslands hefur um
skeið horft til þess að höfða til er-
lendra sjávarútvegsfyrirtækja
um skráningu hér á landi. „Við
kynntum Kauphöll Íslands fyrir
erlendum sjávarútvegsfyrirtækj-
um á sjávarútvegssýningu í
Brussel í maí í fyrra.“ Hann segir
fyrirtæki víða að hafa sýnt áhuga
í framhaldinu. „Fyrirtæki frá
Bretlandi, Þýskalandi og Noregi
hafa sýnt þessu áhuga.“
Kauphöllin á í nánu samstarfi
við Færeyinga. Kauphöll Íslands
og Virðisbrævamarkaður Fær-
eyja undirrituðu á dögunum sam-
starfssamning um skráningu fær-
eyskra verðbréfa í Kauphöllinni.
Þórður segist ekki eiga von á
skráningu færeyskra sjávarút-
vegsfyrirtækja í Kauphöllinni á
næstunni. „Fyrirtæki sem eru
nær því að skrá sig eru Atlantic
Petrolium og fjárfestingasjóður-
inn Notio. Opinber fyrirtæki eru
einnig að hugleiða skráningu.
Stærst eru Föroya Bank og Förya
Tele.“ Hann segir einkavæðingu
þessara fyrirtækja komna á tölu-
verðan rekspöl.
Þórður segir Kauphöllina
bjóða upp á ýmsa kosti fyrir er-
lend sjávarútvegsfyrirtæki.
„Sérstaklega að hér eru íslenskir
aðilar á fjárfestahliðinni sem
eiga auðveldar með að setja sig
inn í aðstæður þessara fyrir-
tækja.“ Hann segir líklegt að
fyrirtækin fengju meiri athygli
hér en í kauphöll í heimalandi
sínu. „Það er óvíða sambærilegur
áhugi á fyrirtækjum í þessari
grein.“
haflidi@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
SKATTLAGNING SOPANS Við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
og Félag íslenskra stórkaupmanna efna til
hádegisfundar í Odda, stofu 101, um
skattlagningu ríkisins á áfengi. Frummæl-
endur eru Erna Hauksdóttir, Þórarinn Tyrf-
ingsson og Guðmundur Ólafsson. Fund-
urinn hefst klukkan 12.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ER AÐ HLÝNA í höfuðborginni og
á landinu öllu. Súld eða rigning vestan til
og einnig norðan til síðdegis. Hlýtt líka á
morgun. Sjá síðu 6.
7. apríl 2004 – 97. tölublað – 4. árgangur
● matur ● nám o.fl.
Eldamennskan lýtur
eigin lögmálum
Ögmundur Jónasson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
EKKERT VAL Forstjóri Útlendingastofn-
unar segir Íslendinga ekki hafa val, ákveði
ESB að framvísa verði vegabréfum með
persónuauðkennum við komu til landa
innan þess líkt og Bandaríkjamenn ætla að
gera. Sjá síðu 2
BJÖRN BROTLEGUR Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra braut jafnréttislög þegar
hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson í stöðu
hæstaréttardómara við Hæstarétt í fyrra.
Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttis-
mála Sjá síðu 2
MÁ EKKI BRESTA Utanríkisráðherra
segir brýnt að samstaða lýðræðisríkja bresti
ekki í baráttunni gegn hryðjuverkum. Utan-
ríkisráðherra segir ekki hægt að skýra
hryðjuverk öfgamanna með utanríkisstefnu
Bandaríkjanna. Sjá síðu 4
ÞRÍR TEKNIR Lögreglan í Gautaborg
handtók í gærkvöld þrjá menn grunaða um
aðild að vopnuðu ráni í Stafangri á mánu-
dagsmorgun. Yfir tíu milljónir króna hafa ver-
ið settar til höfuðs ræningjunum sem skutu
til bana lögreglumann. Sjá síðu 6
Norsk fyrirtæki á
íslenskan markað
Tvö norsk sjávarútvegsfyrirtæki vinna að skráningu hlutabréfa sinna í Kauphöll Íslands.
Forstjóri Kauphallarinnar segir fjölda erlendra sjávarútvegsfyrirtækja skoða möguleika á
skráningu hér á landi. Færeysk ríkisfyrirtæki eru einnig væntanleg.
Kvikmyndir 38
Tónlist 38
Leikhús 38
Myndlist 38
Íþróttir 30
Sjónvarp 52
HANS BLIX
Fyrrverandi yfirmaður vopnaeftirlitssveita
Sameinuðu þjóðanna heldur áfram að
gagnrýna innrás Bandaríkjamanna og
Breta í Írak.
Yfirmaður vopnaeftirlits:
Stríðið verra
en Saddam
DANMÖRK Hans Blix, fyrrum yfir-
maður vopnaeftirlits Sameinuðu
þjóðanna, segir að stríðið í Írak og
afleiðingar þess séu mun verri
fyrir Íraka og heiminn allan en
einræðisstjórn Saddams Hussein.
„Það jákvæða er að blóðug
harðstjórn Saddams er horfin en
þegar dæmið er reiknað til enda
þá leikur enginn vafi á því að nei-
kvæðu afleiðingarnar vega
þyngst,“ segir Blix í samtali við
Jyllands-Posten. „Trúverðugleiki
vestrænna ríkisstjórna og Sam-
einuðu þjóðanna hefur einnig
skaðast. Stríðið hefur frelsað
Íraka úr klóm Saddams en frelsið
hefur verið of dýru verði keypt,“
segir Blix. ■
GAMAN Í LAUGARDALSLAUG Þessir kátu drengir renndu sér niður rennibraut Laugardalslaugarinnar í blíðviðrinu í gær.
LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur
Reykjavíkur féllst í gærkvöld á
kröfu lögreglunnar í Reykjavík
og úrskurðaði tvo menn, sem
handteknir voru í fyrrakvöld
vegna líkamsárásar, í gæsluvarð-
hald. Hörður Jóhannesson yfir-
lögregluþjónn segir að mennirn-
ir hafi verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald í þágu rannsóknarhags-
muna í málinu, ekki hafi reynt á
ákvæði um almannahagsmuni
sem einnig var tilgreind í kröfu
lögreglunnar.
Þrír menn voru handteknir í
fyrrakvöld vegna líkamsárása. Einn
þeirra, Stefán Logi Sívarsson, sem
einnig var handtekinn um helgina
eftir að hann réðst á 16 ára pilt og
veitti honum alvarlega áverka, var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21.
apríl. Einum manni var sleppt að lok-
inni yfirheyrslu en þriðji maðurinn
sætir gæsluvarðhaldi til 14. apríl.
Stefán Logi Sívarsson er grunað-
ur um að hafa framið fjögur ofbeld-
isbrot á þremur dögum, en hann er
á reynslulausn eftir stórfellda
líkamsárás árið 2002. Eftir fyrsta
brotið á sunnudag sá dómari ekki
ástæðu til að úrskurða hann í gæslu-
varðhald og hélt Stefán því áfram
fyrri iðju. Stefán hefur verið dæmd-
ur fyrir rúmlega tuttugu brot frá
1997, þar af fjölda líkamsárása.
Sjá nánar síður 8–9
Síbrotamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna líkamsárása:
Fjögur ofbeldisbrot á þremur dögum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KAUPHALLARÚTRÁS
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, segir markvisst hafa verið unnið að
því að kynna erlendum sjávarútvegsfyrir-
tækjum kosti þess að skrá fyrirtæki sín hér
á landi. Norsk fyrirtæki eru fyrst í röðinni.
■
Sérstaklega að
hér eru íslensk-
ir aðilar á fjár-
festahliðinni
sem eiga auð-
veldar með að
setja sig inn í
aðstæður þess-
ara fyrirtækja.