Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 27
Jose Canepa var ítalskur innflytjandi sem hóf vín- rækt í Chile árið 1930 og varð fljótt einn virtasti framleiðandi landsins. Einkum fyrir stöðugleika í vín- gerðinni en einnig vegna frumkvöðlastarfs í útflutn- ingi en hann hóf að flytja sín vín á erlendan markað strax um 1940. Canepa-vínin eru þekkt fyrir stöðug- leika í gæðum og að endurspegla það sem bæði þrúgan og jarðvegurinn hafa upp á að bjóða á þeim svæðum sem vínin eru ræktuð. Mikill áhersla er lögð á að vínin njóti sín sem slík án áhrifa frá eikartunn- unum eða blöndunar frá öðrum svæðum. Canepa Private Reserve Merlot 1998 vann Diploma di Gran Menzione á VinItalia-vínsýningunni 2001 svo eitt- hvað sé nefnt. Sérlega gott með lambinu. Verð í Vínbúðum 1.490 kr. Canepa Private Reserve Merlot Frumkvöðull í Chile Vín vikunnar Miðvikudagur 7. apríl 2004 5 Sterkasta leynivopnið myndi vera eiginkonan,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður aðspurður um galdrana í eldhúsinu. „Sú góða kona á mörg leyni- vopn og kemur mér nú orð- ið ekkert á óvart. Ég er far- inn að ganga út frá þessu sem gefnum hlut og orðinn öllu vanur eftir langa sam- búð. Eldamennska hennar lýtur eigin náttúrulögmál- um, en ég hef aldrei svipt hulunni af pottahugsjónum eiginkonu minnar.“ En ein- hvern tíma hlýtur Ögmund- ur að snæða einsamall. Þegar betri helmingurinn hverfur af heimilinu segist bóndinn bregða til frum- stæðra ráða. „Ég er afskap- lega hugmyndasnauður í eldhúsbrögðum og sætti mig orðalaust við súr- mjólkina, sýð mér egg og sneiði niður brauð, þá daga sem ég geng einsamall um sali hússins.“ Þá hafa veðurbrigðin áhrif á hugarflug Ögmundar, því hann segir sumar- mánuðina spila hlutverk í kokkabókum sínum. „Ég þarf sumardag og sæmi- legt veður við grillið, en þá er ég á grænni grein. En á veturna er ég á köldum klaka. Íslenskt lambakjöt er mér afar kært en ég nota ekkert sérstakt krydd þegar ég legg sneiðarnar á grillið, annað en hrámetið sem lambið nær í úr villtri náttúrunni. Það er með því besta sem ég veit.“ Smyglarar hafa gjarnan boðið vöru á góðu verði og gamli smyglarinn, eða Old Smuggler, þykir með hagstæðustu kaupum. Hið virta tímarit „Wine Enthusiast“ gaf þessu viskíi 85–89 stig af 100 og tilnefndi Old Smuggler sem „Best buy“ eða bestu kaup. Old Smuggler er framleitt af Jas & Geo Stodart í Dumbarton í Lowland-héraði í Skotlandi, steinsnar frá Glasgow. Old Smuggler viskí hefur fallega gulbrún- an lit og ilmar af margslungnum blómum og kryddi. Mjúkt og tært með keim af karamellum og lyngheið- arblómum í bragði sem endar á mjúku nótunum með snertu af viðar- kolum og örlítilli sætu. Þessi flókna blanda af yfir 40 viskítegundum hefur fengið frábæra dóma og er án efa ein bestu kaup á blönduðu viskíi í vínbúð- um. Fæst í Kringlunni og Heiðrúnu á 2.990 kr. Old Smuggler: Smyglaraverð Ögmundur Jónasson, þingmaður Þarf sumardag og sæmilegt veður við grillið. Leynivopnið í eldhúsinu: Eldamennska sem lýtur eigin náttúru- lögmálum Fr ét ta bl að ið /g va Sumir grilla úti allt árið um kring en aðrir tengja hina ómótstæðilegu grilllykt einungis við sumar og sól. Um pásk- ana er tilvalið að prufukeyra grillið eft- ir veturinn, að því gefnu að veðrið verði sæmilegt og grillið fjúki ekki yfir í næsta garð eða kokkinn rigni niður. Hér á eftir fara nokkur einföld heil- ræði fyrir þá sem eru til- búnir að taka upp grill- hanskana. Húsráð: Grillið prufukeyrt Þeir fáu sem enn nota kolagrill ættu að kveikja í þeim um hálftíma áður maturinn fer á grillið, svo þau nái að hitna nægilega. Hitastigið er rétt þeg- ar aska hefur myndast efst á kolun- um. Dreifið vel úr kolunum áður en hafist er handa. Setjið aldrei kjöt beint yfir loga Notið tangir til að snúa kjötinu á grillinu. Aldrei má nota gaffal, því hann gatar kjötið og þá sleppur safinn úr því. Setjið grillsósur á í lokin því þær brenna auðveldlega við Mjög gott er að grilla ávexti af ýmsu tagi, til dæmis perur, banana, an- anas, vatnsmelónur og epli. Hægt er að setja súkkulaði eða karamellusósu yfir ávextina eftir að þeir hafa verið teknir af grillinu en á meðan þeir eru enn heitir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.