Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 43
31MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004 Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni Sími 575 5100 www.utilif.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 39 41 03 /2 00 4 High Peak Pocatello 60L Góður 60 l poki með stillanlegu baki, regnyfirbreiðslu, mörgum hólfum og festingum. 8.990 kr. Nanoq Santana 65 L 4.990 kr. Nanoq Nomad 55 L 7.990 kr. Jamis Ranger SX Frábært fjallahjól. 6061 álstell. SR M300 framdempari. Shimano Tourney TX30 afturskiptir. Til í rauðu og svörtu. 25.990 kr. Einnig til án dempara (stálstell) 19.990 kr. High Peak Frasier 3ja manna braggatjald með fortjaldi. Stöðugt í vindi. Límdir saumar Þyngd 5,9 kg. 11.990 kr. Nanoq Pamir 3ja manna 7.990 kr. Nanoq Pamir 4ra manna 9.990 kr. Buffalo Phoenix V-2 Vandaður poki úr bestu efnum. Þyngd 1.830 g. Mesta kuldaþol -13°C. 9.990 kr. Mountain Eagle 4.990 kr. Nanoq Compact plus 7.990 kr. ...tilboð Fermingar...GIANLUIGI BUFFON Markverðir Juventus, Gianluigi Buffon (til vinstri) og Antonio Chimenti, fagna meistaratitli Juventus í fyrra. Markvörðurinn Gianluigi Buffon: Hjá Juve til 2008 FÓTBOLTI Markvörðurinn Gianluigi Buffon hefur samþykkt að fram- lengja samning sinn við Juventus um tvö ár. Fyrri samningur hans átti að renna út árið 2006 en sá nýi bindur Buffon Juventus til 2008. „Þetta er öflugt félag og sigur- lið og það er hvetjandi fyrir mig,“ sagði Buffon á heimasíðu félags- ins. „Það er mjög ánægjulegt fyr- ir mig að taka þátt í atburða- rásinni hér.“ Mörg ítölsk félög eiga í fjár- hagskröggum sem stafa af mjög háum launagreiðslum til leik- manna. Ítalska fréttastofan ANSA heldur því fram að Buffon hafi samþykkt launalækkun með nýja samningnum. „Þessi ákvörðun er á sömu forsendum og þær sem samherjar mínir hafa tekið og við sendum réttu skilaboðin til ítal- skrar knattspyrnu,“ sagði Buffon við fréttastofuna. Fyrr í vetur samþykktu Alessandro Del Piero, Ciro Ferrara, Gianluca Zambrotta og Alessio Tacchinardi höfðu þeg- ar samið við Juventus um að framlengja samning sinn. Gianluigi Buffon, sem varð 26 ára í janúar, hóf feril sinn hjá Parma árið 1994. Hann lék með Parma í sjö ár en þetta er þriðja tímabilið sem hann leikur með Juventus. Buffon hefur leikið 262 leiki í A-deildinni ítölsku með félögunum tveimur. ■ FÓTBOLTI Adu er líkamlega sterk- ur, fljótur og klókur og Manchester United, Chelsea og Inter Milan hafa öll borið víurn- ar í hann. Hann er einnig hæst launaðasti fótboltamaðurinn í Bandaríkjunum auk þess sem hann hefur þegar gert um 70 milljóna króna auglýsingasamn- ing, aðeins fjórtán ára að aldri. Adu spilaði um síðustu helgi sinn fyrsta leik fyrir DC United í bandarísku atvinnumanna- deildinni þegar hann kom inn á sem varamaður gegn San Jose Earthquake. DC United vann leikinn 2-1 en Adu náði ekki að skora. Engu að síður var honum fagnað mjög í hvert skipti sem hann snerti boltann, enda yngsti leikmaðurinn í níu ára sögu deildarinnar og gríðarlega efni- legur. Hann segir aldur sinn ekki skipta máli þegar komið er út á fótboltavöllinn. „Ef þú ert nógu góður ertu nógu gamall,“ sagði Adu eftir leikinn. „Mér er alveg sama hversu mikið eldri einhver annar er á vellinum. Mér er sama þótt aðrir séu stærri en ég. Ég fer út á völlinn til að spila fótbolta og skemmta mér,“ sagði hann. Adu fæddist í Ghana en flutti til Bandaríkjanna þegar móðir hans vann í lottói. Smám saman fór hann að vekja athygli á fót- boltavellinum og nokkur af stærstu félögum heimsins sýndu áhuga á honum. Á endan- um ákvað hann að semja við DC United til að geta búið heima hjá sér. Adu hefur þegar spilað með 17 og 20 ára landsliðum Banda- ríkjanna og vonast fótbolta- forkólfar í landinu til að strák- urinn muni auka vinsældir íþróttarinnar í landinu. Ekki veitir af því samkeppnin er gíf- urlega hörð. Hafnarbolti, körfu- bolti og ruðningur hafa hingað til haft yfirhöndina en hver veit nema Adu eigi eftir að breyta því og leiða bandarískan fót- bolta inn í bjarta framtíð. ■ NBA-deildin: Mikilvægur sigur Utah KÖRFUBOLTI Gordan Giricek skor- aði 25 stig fyrir Utah Jazz sem vann Memphis Grizzlies með 92 stigum gegn 81 í NBA-deild- inni í fyrra- kvöld. Andrei Kiri- lenko var einnig sterkur í liði h e i m a m a n n a því kappinn skoraði 17 stig og tók 11 frá- köst. Sigurinn var mikilvægur fyrir Jazz því liðið á í harðri baráttu um átt- unda lausa sætið í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Grizzlies eru aftur á móti þegar komnir í úr- slitakeppnina. ■ Freddy Adu spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku deildinni aðeins 14 ára: Táningurinn Adu vekur athygli FREDDY ADU Adu rekur boltann áfram í leiknum gegn San Jose Earth- quake á RFK-leikvanginum í Washington. JASON WILLIAMS Bakvörður Memphis Grizzlies setur boltann í körfuna gegn Utah Jazz. Willams og félagar töpuðu leiknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.