Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 4
4 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Eru reglur um reynslulausn refsifanga fullnægjandi? Spurning dagsins í dag: Ertu fylgjandi sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 6% Nei Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir Steingrímur J. Sigfússon varð undrandi þegar hann las skýrsluna: Segir Halldór aðhyllast Texas-hugmyndafræði ALÞINGI Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra aðhyllist Texas- hugmyndafræði George W. Bush bandaríkjaforseta í utan- ríkismálum að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri-grænna í umræðum á Alþingi um utanríkismála- skýrslu ráðherrans. „Ég varð ákaflega undrandi þegar ég las skýrsluna. Ég átti von á því að hann yrði á mýkri nótum í sinni lokaræðu – í sínum svanasöng hér,“ sagði Steingrím- ur J. „Ég hélt að ljósi þess hvern- ig alþjóðamál hafa verið að þró- ast núna á síðustu vikum og mán- uðum að það myndi votta fyrir skilningi svo ég segi ekki sjálfs- gagnrýni eða efasemdum í mál- flutningi ráðherra varðandi þá atburði sem nýliðnir eru og ríkis- stjórn Íslands hefur tekið af- stöðu til. Ég á þar auðvitað alveg sérstaklega við hið ólögmæta hernám í Írak. Það vottar ekki fyrir neinu slíku í ræðu utan- ríkisráðherra. Það er ekkert end- urmat á ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja þessa inn- rás.“ Steingrímur sagði kaflann í skýrslu ráðherra sem fjallar um hryðjuverkasamtök vera ótrú- legan og gagnrýndi Halldór fyrir að einfalda vandann. „Þar er málum þannig stillt upp að aðeins tvær leiðir séu færar. Annað hvort að fylgja harðlínustefnu Bandaríkja- stjórnar með vopnaða íhlutun og hörku eða sýna linkind og vilja til að semja við glæpamenn. Það er eins og það sé enginn milli- vegur. Ráðherra lætur eins og hann viti ekki af því að þjóðir eins og Frakkar, Þjóðverjar, Kín- verjar og Rússar hafa haft djúp- stæðar efasemdir um harðlínu- stefnu Bush-stjórnarinnar.” ■ ALÞINGI Árásargjarn málflutningur og hryðjuverk öfgamanna tengist ekki utanríkisstefnu Bandaríkj- anna. Þetta kom fram í ræðu Hall- dórs Ásgrímssonar utanríkisráð- herra á Alþingi í gær þegar hann gerði grein fyrir skýrslu um utan- ríkis- og alþjóðamál. „Vesturlandabúar, einkum Evr- ópubúar, hafa tilhneigingu til að leita rökrænna skýringa og mála- miðlunarlausna vegna átaka,“ sagði Halldór. „Margir spyrja því hvort ofbeldið sé ekki afleiðing dvalar bandarísks herliðs í Sádí-Arabíu, stuðnings bandarískra stjórnvalda við Ísrael eða íhlutunina í Írak? Engar þessara skýringa standast því bandarískt herlið er að mestu horfið frá Sádí-Arabíu og stórfelld- ar hryðjuverkaárásir voru gerðar á sendiráð Bandaríkjanna í Kenía og Tansaníu í sama mund og friðarferl- ið fyrir botni Miðjarðarhafs stóð sem hæst fyrir sex árum. Þá getur andstaða við íhlutunina í Írak ekki skýrt mannskæð hryðjuverk sömu öfgamanna úr hópi súnníta-múslima gegn sjía-múslimum og Kúrdum sem eru mikill meirihluti írösku þjóðarinnar. Ennþá síður getur stuðningur við íhlutunina í Írak valdið hótunum íslamskra öfga- manna um hryðjuverk í Frakklandi. Evrópubúar verða að horfast í augu við þá staðreynd að það eru ekki rökrænar skýringar á öllu atferli.“ Halldór sagði að stjórnvöldum á Vesturlöndum hefði verið legið á hálsi að reyna að auka öryggi al- mennings með því að berjast gegn öfgaöflunum í stað þess að sýna samningsvilja. „Þeir sem tala svo misskilja þá hættu sem við stöndum frammi fyrir. Þeir ganga út frá að hryðju- verkamennirnir séu réttmætir full- trúar hins íslamska menningar- heims.“ Síðan spurði Halldór: „Um hvað vilja menn semja við al-Kaída eða gistiríki liðsmanna samtak- anna? Útrýmingu Ísraelsríkis? Aft- urhvarf hvað varðar jafnrétti kynj- anna eða réttindi samkynhneigðra? Forræði trúarlegra laga gagnvart veraldlegum lögum? Gleymum því ekki hver pólitísk markmið al-Kaída og viðlíka samtaka eru. Það er með öllu óskiljanlegt að samningar við slík myrkraöfl skuli hvarfla að nokkrum upplýstum manni því samningsefnið getur ekki orðið ann- að heldur en grundvallargildi lýð- ræðisríkja.“ Halldór sagði að nú skipti sköp- um að samstaða lýðræðisríkja bresti ekki og að baráttan gegn al- þjóðlegri hryðjuverkastarfsemi verði hert um allan helming. „Öll ríki, smærri sem stærri, verða að leggja af mörkum í þeirri baráttu. Yfirlýstur ein- beittur vilji til að sigrast á hryðjuverkamönnum, jafn- vel þótt það taki ár eða jafnvel ára- tugi, er forsenda árangurs. Um leið verða lýðræðisríki að gæta þess að ganga ekki ómeðvitað erinda hryðjuverkamanna með tilgangs- lausri skerðingu á frelsi eigin borg- ara eða óþörfu harðræði gagnvart borgurum annarra ríkja.“ trausti@frettabladid.is GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON Sagði mikilvægt að efla löggæslu á Íslandi. Guðmundur Árni Stef- ánsson um utanríkismál: Talsmenn öruggra varna ALÞINGI Guðmundur Árni Stefáns- son gagnrýndi harðlega stefnu Bandaríkjanna í utanríkismálum í ræðu sinni í umræðum um skýrslu ráðherra um utanríkis- mál. Hann benti á að Samfylking- in hefði verið ötul við að halda uppi þessari gagnrýni, þótt hún hafi ekki verið ein um það. „Sem betur fer eru þeir fjölmennari en svo hóparnir sem hafa haldið uppi heiðarlegri, efnislegri og öruggri gagnrýni á ýmislegt sem miður hefur farið í hernaðarstefnu Bandaríkjanna á undanförnum misserum og árum.“ Hann sagði einnig að jafnaðar- menn hefðu ávallt verið talsmenn öruggra varna og ræddi meðal annars um mikilvægi þess að efla löggæslu í landinu. Hann benti á þversögnina í því að Sólveig Pét- ursdóttir, formaður utanríkis- málanefndar, hefði ekki tekið svo vel í það þegar Samfylkingin lagði til að efla löggæslu í landinu. „Það eru nefnilega fleiri sem geta, kunna og vita heldur en hæstvirt- ur ráðherra. Veröldin er ekki svo svarthvít að þeir sem eru ekki al- veg sammála mér í einu og öllu sé bara ómálgir.“ ■ SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Hrósaði íslenskum friðargæsluliðum í um- ræðum á Alþingi í gær. Sólveig Pétursdóttir: Óvissan erfið ALÞINGI Sólveigu Pétursdóttur, varaformanni allsherjarnefndar Alþingis, var tíðrætt um mikil- vægi þess að koma varnarsamn- ingi Íslands og Bandaríkjanna á hreint, í umræðum á Alþingi um skýrslu utanríkisráðherra. „Það er erfitt að hafa varnarmál lands- ins í einhverri óvissu einkum í ljósi atburða síðasta mánaðar. Í samræmi við áratugalangt og vin- samlegt samstarf Íslands og Bandaríkjanna er ákaflega mikil- vægt að þjóðirnar leysi þessi vandamál hið allra fyrsta.“ Hún notaði einnig tækifærið til að hrósa íslenskum friðargæslu- liðum fyrir vel unnin störf og undirstrikaði tilgang þeirra. „Ís- lenskir friðargæsluliðar eru ekki hermenn. Markmið þeirra er að sinna borgaralegum verkefnum þar sem hernaðarátökum er lok- ið.“ ■ -ráð dagsins Skiptið reglulega um ryksugupoka. Kraftur ryksugunnar verður meiri og verkið léttara. STÁLU BÍL Bíll sem hafði staðið númerslaus við lögreglustöðina á Húsavík var horfinn af bílaplan- inu þegar lögreglan mætti á vakt- ina í gærmorgun. Bíllinn fannst skömmu síðar í íbúðarhverfi í bænum. Stelpa og strákur, sem ekki hafa náð tvítugsaldri, hafa játað að hafa stolið bílnum. HRAÐAKSTUR Fjórir voru teknir fyrir of hraðan akstur í Rangár- vallasýslu í gærdag. Allir öku- mennirnir óku yfir 110 kílómetra hraða. ALÞINGI Það er ófrávíkjanleg afstaða íslenskra stjórnvalda að trúverðug- ur varnarviðbúnaður á Íslandi sé forsenda áframhaldandi varnar- samstarfs. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar, utanríkis- ráðherra á Alþingi í gær. „Ógnin sem öllum vestrænum lýðræðisríkjum stafar af alþjóð- legri hryðjuverkastarfsemi hefur hert þessa afstöðu,“ sagði Halldór þegar hann ræddi um tvíhliða varn- arsamstarf milli Íslands og Banda- ríkjanna. Hann sagði íslensk stjórn- völd hafa lýst sig reiðubúin til efnis- legra viðræðna við bandarísk stjórnvöld um það hvernig trúverð- ugur viðbúnaður gæti orðið á Ís- landi til lengri tíma litið. „Eins og kunnugt er hafa fulltrú- ar ríkjanna átt undirbúningsfundi en efnislegar viðræður á grundvelli skilgreindra lágmarksvarna hafa ekki enn hafist,“ sagði Halldór. „Málamyndavarnir veita falskt ör- yggi og geta því verið verri en eng- ar. Það breytir því ekki að Íslend- ingar verða sjálfir að bera ábyrgð á innra öryggi og þeir verða að sýna vilja til aukinnar þátttöku í stuðn- ingi við ytri landvarnir ekki síst með meiri þátttöku í friðaraðgerð- um á vegum Atlantshafsbandalags- ins. ■ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Steingrímur sagðist hafa átt von á að Hall- dór yrði á mýkri nótum í sinni lokaræðu sem utanríkisráðherra. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Ræða utanríkisráðherra: Málamyndavarnir veita falskt öryggi VARNARLIÐIÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Efnislegar viðræður við bandarísk stjórn- völd um áframhaldandi varnarsamstarf hafa enn ekki hafist. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Halldór sagði að stjórnvöldum á Vesturlöndum hefði verið legið á hálsi að reyna að auka öryggi almennings með því að berjast gegn öfgaöflunum í stað þess að sýna samningsvilja. Samstaðan má aldrei bresta Utanríkisráðherra flutti á Alþingi skýrslu sína um utanríkis- og alþjóða- mál í gær. Hann sagði brýnt að samstaða lýðræðisríkja brysti ekki í bar- áttunni gegn hryðjuverkum. Já 94%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.