Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004
afmælis-
tilboð
Þann 5. apríl 1944 hóf Þorvaldur Guðmundsson
rekstur matvöruverslunarinnar Síld & fiskur.
Fljótlega hóf hann framleiðslu kjötvara undir
vörumerkinu Ali sem síðan hafa verið tíðir gestir
á matborðum Íslendinga.
Ali kjötvörur byggja á sterkri hefð vöruvöndunar
og nýsköpunar þar sem kappkostað er að neytandinn
upplifi gæði íslenskra landbúnaðarafurða, auk þess
sem áhersla er lögð á nýjungar og framþróun í
vöruframboði Ali. Við trúum því að neytendur sækist
eftir þessum eiginleikum í þeim kjötvörum sem þeir
kaupa og leggjum okkur fram um að standast
væntingar þeirra.
Um leið og Ali þakkar Íslendingum fyrir samfylgdina
síðustu 60 árin vonast fyrirtækið til þess að eiga
ánægjuleg viðskipti við neytendur á komandi árum.
Í tilefni tímamótanna efnir Ali til afmælisveislu í
samvinnu við smásöluverslanir um allt land.
1 9 4 4 - 2 0 0 4
sextíu ára
hunangsreyktar kótilettur
pepperoni
spægipylsa bacon
skinka
Vörur á afmælistilboði til 20. apríl:
Au
gl
. Þ
ór
h.
17
17
.5
9
BROT OG DÓMAR STEFÁNS
LOGA SÍVARSSONAR
■ 29. desember 1996
Stal bifreið móður sinnar og keyrði óvar-
lega um götur Reykjavíkur án ökurétt-
inda, ók á ljósastaur og flúði af vett-
vangi.
Dómur: Skilorðsbundin ákærufrestun í 2
ár vegna ungs aldurs og vegna þess að
hann var í meðferð. Hafði enn fremur
ekki áður hlotið refsingu.
■ Október 1997
Líkamsárás og þjófnaður
Dómur: Skilorðsbundin ákærufrestun
í 2 ár.
■ 17. nóvember 1997
Rán í versluninni Litla-Horninu.
Dómur: 4 mánuðir í fangelsi með fulln-
ustufrestun skilorðsbundið í 3 mánuði.
■ Mars 1998
Líkamsárás
Dómur: Skilorðsbundinn ákærufrestun í
2 ár.
■ Maí 1998
Þjófnaður
Dómur: 75 daga fangelsi skilorðsbundið
í 2 ár (fyrri dómar dæmdir upp og felldir
inn í refsinguna).
■ 6. apríl 1998
Innbrot í íbúð og þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 23. apríl 1998
Innbrot í Mýrarhúsaskóla og þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan
■ 25. eða 26. apríl 1998
Innbrot í geymslu í íbúðarhúsnæði og
þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ Maí 1998
Innbrot í geymslu í íbúðarhúsnæði og
þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 10. maí 1998
Innbrot í bíl og þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 10. maí 1998
Innbrot í bíl og þjófnaður
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 24. apríl 1998
Tilraun til innbrots og þjófnaðar í Vestur-
bæjarskóla
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 9. apríl 1998
Líkamsárás
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 18. október
Líkamsárás og rán
Dómur: Sjá 1. janúar 1998 að neðan.
■ 1. janúar 1998
Líkamsárás
Dómur: Fyrir 10 ofantalin brot: 6 mán-
aða fangelsi með frestun fullnustu
þriggja mánaða af refsingunni og skal
hún falla niður að liðnum tveimur árum.
Gæsluvarðhald sem þegar hafði verið af-
plánað kom til fulls frádráttar.
■ 21. júlí 1998
Þjófnaður
Dómur: 5 mánaða fangelsi með fulln-
ustufrestun í 3 ár með skilorði.
■ 23. apríl 1998
Líkamsárás
Dómur: Engin refsing vegna ungs aldurs
og vafa um ásetning. Stefán Logi enn
fremur í meðferð á Vogi og kvaðst ætla í
Iðnskólann.
■ 10. júlí 1999
Varsla á 1,2 g af hassi
Umferðarlagabrot
Dómur: Ökuréttarsvipting í 8 mánuði og
sekt.
■ 21. maí 2002
Umferðalagabrot
Dómur: Sekt.
■ 2. ágúst 2002
Stórfelld líkamsárás.
Dómur: Tveggja ára fangelsi.
■ 2. ágúst 2002
Líkamsárás
Dómur: Dæmdur með ofangreindu og
neðangreindu broti í tveggja ára fang-
elsi.
■ 13. apríl 2002
Hylming og að taka við þýfi
Dómur: Dæmdur með tveimur ofan-
greindum brotum í tveggja ára fangelsi.
Heimild: Héraðsdómur Reykjavíkur
STÁLU BÍL Bíll sem hafði staðið
númerslaus við lögreglustöðina
á Húsavík var horfinn af bíla-
planinu þegar lögreglan mætti
á vaktina í gærmorgun. Bíllinn
fannst skömmu síðar í íbúðar-
hverfi í bænum. Stelpa og
strákur, sem ekki hafa náð tví-
tugsaldri, hafa játað að hafa
stolið bílnum.
FÉKK Í SKRÚFUNA Daðey GK
fékk í skrúfuna 25 sjómílur
vestur af Sandgerði í gær.
Björgunarskip Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, Hannes
Þ. Hafstein, fór á staðinn og
skáru kafarar úr skrúfunni.
Gat áhöfn Daðeyjar haldið
áfram veiðum að því loknu.
Veður var gott og engin hætta
á ferðum.
RANIA DROTTNING
Rania, drottning Jórdaníu, ræðir við hátt-
setta embættismenn í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum á fjáröflunarsam-
komu á Royal Mirage-hótelinu í Dubai.
BANDARÍKIN, AP Annar af tveimur
Marsjeppunum, Spirit, hefur lokið
við öll verkefnin sem hann átti að
inna af hendi, en heldur samt
ótrauður áfram. Ætlun NASA,
Geimvísindastofnunar Bandaríkj-
anna, með Spirit og tvíbura hans,
Opportunity, er að kanna hvort ein-
hvern tímann hafi runnið vatn á
Mars.
Spirit hefur nú verið níutíu daga
á Mars og sýnir engin merki um að
vera að gefast upp. Að sögn NASA
hefur ferðin gengið vonum framar
og tvíburajepparnir hafa þegar skil-
að mikilvægum upplýsingum og
myndum frá rauðu plánetunni. ■
Marsleiðangur NASA:
Spirit lýkur verkefni sínu
YFIRBORÐ MARS
Geimjeppinn Spirit hefur gert ýmiss konar rannsóknir á yfirborði Mars í því skyni að kanna
hvort vatn hafi runnið á plánetunni.
■ Lögreglufréttir