Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 12
12 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR ÓTTI VIÐ HRYÐJUVERK Ítalskur lögreglumaður stendur vörð á Malpensa-flugvellinum í Mílanó. Öryggis- gæsla hefur verið efld til muna á flugvöll- um og öðrum fjölförnum stöðum á Ítalíu af ótta við að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða á meðan á páskahátíðinni stendur. UPPGJÖR Eigið fé Ríkisútvarpsins var um áramót einn tíundi hluti þess sem það var í árslok árið 2000. Eigið fé RÚV var tæpar 900 milljónir í árslok árið 2000, en var 82 milljónir í árslok í fyrra. Miðað við að tap síðasta árs hafi haldið áfram fyrstu þrjá mánuði þessa árs er eigið fé Ríkisútvarpsins að klárast um þessar mundir. Neikvætt eigið fé þýðir að fyr- irtæki eiga ekki fyrir skuldum og er því tæknilega gjaldþrota Af- notagjöldin hafa undanfarin ár staðið fyrir ríflega tveimur þriðju hlutum tekna Ríkisútvarpsins. Þriðjungur eru aðrar tekjur svo sem auglýsingatekjur og kostanir. Með versnandi stöðu eykst fjár- magnskostnaður RÚV sem nam rúmum 200 milljónum á síðasta ári. Skuldir RÚV námu um áramót 4,5 milljörðum króna af 4,5 millj- arða eignum. Eiginfjárhlutfallið var því tæplega tvö prósent um áramót. Dagskrá er langstærsti kostn- aðarliður RÚV og nam hann tæp- lega 2,2 milljörðum króna á síð- asta ári. Ef tekjur aukast ekki verulega liggur fyrir að skera verður niður í dagskrárgerð. ■ JERÚSALEM, AP Ísraelski herinn segist hafa sprengt upp jarðgöng sem herskáir Palestínumenn á Gaza-ströndinni notuðu til að smygla vopnum frá Egyptalandi. Ísraelar hafa fundið áttatíu slík göng síðan uppreisn Palestínu- manna hófst að nýju fyrir þrem- ur árum. Göngin lágu frá Egyptalandi að flóttamannabúðunum í Rafah á Gaza-ströndinni. Síðan árið 2000 hefur ísraelski herinn ítrek- að gert áhlaup á búðirnar og jafn- að við jörðu fjölda húsa í grennd við landamærin. ■ KANADA, AP Yfirvöld í Bresku Kól- umbíu í Kanada hafa ákveðið að láta slátra nítján milljónum kjúklinga og kalkúna til að hefta út- breiðslu fuglaflensu. Þegar hefur um 400.000 alifuglum verið slátrað í héraðinu vegna sjúkdómsins. Tveir starfsmenn á kanadískum alifuglabúum hafa smitast af veirunni sem veldur fuglaflensu en þeir hafa báðir náð fullum bata. Það afbrigði fuglaflensunnar sem greinst hefur í Kanada er mun hættuminna en það sem olli dauða á þriðja tug manna í Asíu fyrr á þessu ári. ■ EIGIÐ FÉ AÐ HVERFA Ríkisútvarpið hefur verið rekið með miklu tapi undanfarin ár. Stofnunin stefnir í tæknilegt gjaldþrot takist Markúsi Erni út- varpsstjóra og hans fólki ekki að skera nið- ur kostnað eða auka tekjur. RÚV UPPGJÖRSTÖLUR 2003 2002 2001 2000 Afnotagjöld 2.123 2.108 1.985 1.819 Tekjur 3087 2976 2.771 2.662 Tap 314 188 250 92 Eigið fé 82 396 721 894 Allar tölur í milljónum króna Ársreikningur RÚV: Stefnir í tæknilegt gjaldþrot ALIFUGLAR Landbúnaðarráðherra Kanada segir að öllum alifuglum á um 600 býlum í bresku Kólumbíu verði slátrað til að hefta útbreiðslu fuglaflensu. Fuglaflensan í Kanada: Nítján milljónum fugla slátrað HERMAÐUR RANNSAKAR GÖNG Ísraelskur hermaður skoðar göng sem fundust í húsi í flóttamannabúðunum í Rafah. Vopnum smyglað frá Egyptalandi: Herinn sprengir göng
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.