Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 54
Undanfarnar vikur hefur staðiðyfir allsérstætt Íslandsmót á vegum Casa Fiesta, Uno og Kiss FM. Þar er keppt um titilinn „Ís- landsmeistari í jalapeno-áti“. Keppnin er, eins og nafnið gefur til kynna, sjóðandi heit en úrslitin fara fram í dag klukkan þrjú á Uno í Gnoðarvogi. Þá keppa fjórir piltar, þeir Björn Þór Karlsson, Hörður Ingþór Harðarson, Krist- inn Gísli Guðmundsson og Andri Þór Guðmundsson, um titilinn, og hafa þeir fimm mínútur til að klára eitt kíló af jalapeno. Sigur- vegarinn hlýtur að launum 100.000 króna inneign hjá Uno en alls skráðu 600 keppendur sig til leiks. Valgeir Magnússon, sem er einn aðstandenda keppninnar, sagði aðspurður að hún hefði haf- ist fyrir rúmlega mánuði síðan: „Við þurftum að velja úr kepp- endum og hafa aldurstakmarkið 18 ár því við vildum ekki fá yfir okkur her af mömmum sem væru brjálaðar yfir því að við sendum börnin þeirra heim með drullu – keppendur eiga það nefnilega til að fá í magann af þessu.“ En hvað- an er hugmyndin komin? „Þetta er nokkuð vinsæl sjónvarpsíþrótt erlendis og því ekkert nýtt af nál- inni þó þetta sé haldið í fyrsta sinn hérlendis og 70 mínútur hafa gert þessu skil,“ sagði Valgeir. En hvernig skyldi keppendum líða á meðan á keppninni stendur og þá ekki síst eftir hana? Svona orðaði einn þeirra, Kristinn Gísli Guð- mundsson það: „Þetta er vont en það venst!“ ■ Hrósið 42 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Íslandsmót JALAPENO-ÁT ■ Það eru fá takmörk fyrir því hverju menn etja kappi um og nú takast nokkrir jaxlar á um hver geti þolað sterkasta piparinn. Rocky ... fær hljómsveitin Pixies fyrir að bregðast vel við óskum íslenskra aðdáenda sinna og halda auka- tónleika á Íslandi í sumar. Fréttiraf fólki Fréttiraf fólki Blaðamannafélag Íslands hefurbirt félagatal sitt fyrir árið 2004. Listinn er fjölskrúðugur að vanda og hefur lengst töluvert frá því í fyrra og munar þar mest um nýjan mannskap á endurreistu DV. Það er þó varla á neinn hallað þó fullyrt sé að Friðrik Weisshappel sé glæsilegasti nýlið- inn en hann kemur sterkur inn númer 545 á lista sem telur 546 manns. Á toppnum tróna blaða- menn sem muna tímana í það minnsta tvenna. Þorbjörn Guð- mundsson er númer 1, Elín Pálmadóttir númer 4, Matthías Johannessen númer 5 og gamli DV ritstjórinn Jónas Kristjáns- son númer 7. Þá er Árni Johnsen ekki fjarri góðu gamni en hann hóf störf í blaðamennsku þann 10. júní 1967 og er númer 19. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Smyrill. 261 milljón króna. Ingvar Kamprad. 1 6 7 8 9 14 16 17 15 18 2 3 4 1311 10 12 5 • Rekstraraðilar og leiðbeinendur: Rauða kross deildir á Norðurlandi og höfuðborgarsvæðinu reka búðirnar og Þjóðkirkjan (Löngumýrarnefnd) styður dyggilega við reksturinn með lágmarksverði fyrir gistingu, fæði og þrif. Sumarbúðastjóri verður Karl Lúðvíksson íþróttakennari og aðrir starfsmenn verða Theodór Karlsson þroskaþjálfi, Árdís Antonsdóttir félagsráðgjafi , Jón Þorsteinn Sigurðsson, Helle Kristensen og Anna Bára Sigurjónsdóttir stuðningsfulltrúar. • Fyrirhuguð dagskrá: Íþróttir (sund, leikir, frj.íþr. fótbolti, borðtennis og júdó), hestamennska, sjó- og veiðiferð að Drangey. Heimsókn í Vesturfarasetrið og/eða aðra áhuga-verða staði. „Rafting“ eða flúðasiglingar niður Blöndu og fjallganga upp í Gvendarskál. Fræðsla um Rauða krossinn (Solferinoleikurinn og skyndihjálp), morgunstund, kvöldvökur með söng, leikjum og sögulestri og diskótek síðasta kvöldið. Ennfremur býðst þátttakendum að sofa eina nótt í tjaldi ef veður leyfir. • Þátttakendur: Sumarbúðirnar eru öllum opnar, 10 ára og eldri. Þeir sem búa við einhverja fötlun og einstaklingar með sérþarfir hafa forgang. • Þátttökugjald - Tímabil: Þátttökugjald fyrir hvert tímabil er kr. 24.500. Tímabilin eru tvö: 28.júní -5. júlí og 19.-26. júlí Útbúnaður: Sængurfatnaður (sæng og koddi er á staðnum), tjald og svefnpoki fyrir þá sem ætla að prófa að sofa eina nótt í tjaldi. Nóg af handklæðum (sund daglega), tannbursti og tannkrem, hárbursti, sólarolía og íþróttaföt (úti- og inni-). Ullarsokkar, stígvél, gönguskór, úlpa, húfa og vettlingar. Merkja þarf vel allan fatnað og búnað. Ferðir, komu- og brottfarartími: Þátttakendur sjá sér sjálfir fyrir fari. Mæting um kl. 14:00 fyrsta dag hvers tímabils og brottför á sama tíma síðasta dag hvers tímabils. Innritun og frekari upplýsingar annast Karl Lúðvíksson í síma 453 8816 eða 896 8416 eftir kl. 17.00 virka daga og kl. 09:00 til 17:00 um helgar. Skráning hefst föstudaginn 16. apríl. Sumarbúðir Rauða krossins að Löngumýri í Skagafirði 2004 Lárétt: 1 höfuðborg, 6 títt, 7 snjókoma, 8 sólguð, 9 tíðum, 10 reiðihljóð, 12 and- lit, 14 ambátt, 15 nes, 16 verkfæri, 17 stefna, 18 þvaður. Lóðrétt: 1 afturganga, 2 munda, 3 í röð, 4 svar goða, 5 rödd, 9 amboð, 11 mæla, 13 samlyndi, 14 sær, 17 hæð. LAUSN. Bresku hnáturnar í hljómsveit-inni Sugababes koma til landsins í kvöld en þær halda tónleika í Laugardalshöll á skír- dag, eins og frægt er orðið. Það spurðist út að stelpurnar ætluðu beint úr flugvélinni á djammið í Reykjavík og nú segir sagan að leiðin liggi á skemmtistaðinn Pravda. Þar eru menn á haus að undirbúa móttökurnar sem verða í fullkomnu samræmi við stöðu þeirra sem poppstjörnur og þeirra býður sem sagt sannköll- uð VIP-meðferð á efri hæð stað- arins. Fáum útvöldum hefur ver- ið boðið að tjútta með píunum og þar eru hetjurnar úr 70 mínútum efstir á blaði en Pétur Jóhann Sigfússon heillaði stelpurnar upp úr skónum þegar hann átti viðtal við þær í Brighton á dögunum. Auðun Blöndal heldur því fram að þegar slökkt hafi verið á töku- vélunum hafi Mutya gert sér dælt við Pétur og spurt hvort hann væri á lausu. Það verða því væntanlega fagnaðarfundir á Pravda þegar Pétur kemur hvæsandi til leiks. Lárétt: 1moskva,6ótt,7él,8ra,9oft, 10urr, 12fés,14man,15tá,16al,17 átt,18raus. Lóðrétt: 1móri,2ota,3st,4véfrétt,5 alt,9orf, 11tala,13sátt,14mar, 17ás. Gaf hún þér einhverja ástæðu fyrir því að hætta saman? Bara topp þrjár klisjurnar! „Ég vil vera ein“? „Ég veit ekki hvað mér finnst“? „Það er ekki þú, það er ég“? Jabb! Jabb! Þú hefur unnið hamborgara- tilboð! Heldurðu að hún sé að dingla sér með einhverjum öðrum gaur? Nei, ég held hún sé ekki týpan í það... Ég ætti kannski ekki að segja þér þetta, en hún nuddaði einu sinni öðru brjóstinu utan í öxlina á mér! AAARRGHHH!!! Hver verður Íslands- meistari í jalapeno-áti? BJÖRN ÞÓR KARLSSON, KRISTINN GÍSLI OG ANDRI ÞÓR GUÐMUNDSSYNIR Þessir kappar, ásamt Herði Ingþóri Harðarsyni, ætla að sýna hvað í þeim býr á Íslandsmótinu í jalapeno-áti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M G U N N AR SS O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.