Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 7. apríl 2004
NÁM
SA
M
H
LI
Ð
A
ST
ARFI
NÁM
H A U S T 2 0 0 4
S A M H L I Ð A S T A R F I
LÆRÐU MEIRA
MEÐ ENDURMENNTUN
H
im
in
n
o
g
h
a
f
KYNNTU ÞÉR MÖGULEIKANA
REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANÁM
● Þriggja eða fjögurra missera nám.
● Hefst í ágúst 2004.
● Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
MARKAÐS- OG ÚTFLUTNINGSFRÆÐI
● Tveggja missera nám.
● Hefst í ágúst 2004.
● Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
MANNAUÐSSTJÓRNUN
● Þriggja missera nám.
● Hefst í ágúst 2004.
● Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
VERKEFNASTJÓRNUN _ LEIÐTOGAÞJÁLFUN
● Tveggja missera nám.
● Hefst í ágúst 2004.
● Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
OPINBER STJÓRNSÝSLA OG STJÓRNUN
● Námið er í endurskoðun.
● Áætlað er að endurskoðað nám fari af stað
í upphafi ársins 2005.
STJÓRNUN OG REKSTUR Í
HEILBRIGÐIS ÞJÓNUSTU
● Námið er í endurskoðun.
● Endurskoðað nám fer af stað haustið 2005.
STJÓRNUN OG FORYSTA Í
SKÓLAUMHVERFI
● Tveggja missera nám.
● Hefst í janúar 2005.
STJÓRNUN OG REKSTUR FYRIR
SJÁLFSTÆTT STARFANDI SÉRFRÆÐINGA
● Tveggja missera nám.
● Hefst í ágúst 2004.
● Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
SÁLGÆSLA
● 8 námskeið sem samsvara alls 27 einingum.
Nánari upplýsingar:
www.endurmenntun.is _ sími: 525-4444
Víngerðarlist!
Áman stendur fyrir námskeiði í heimavíngerð
þann 15. apríl n.k. kl. 19:00.
Farið verður yfir ferilinn við víngerðina
og gefin góð ráð. Leiðbeinendur eru starfsmenn
Ámunnar. Lengd u.þ.b. 2 klukkustundir.
Verð kr. 2.000- og innifalið er byrjunarsett.
Þátttakendum býðst 20% afsláttur af öllum vörum
Ámunnar Skeifunni á námskeiðskvöldinu.
Skráning og nánari upplýsingar í
síma: 533 1020 og á aman.is
BYRJENDUR Í HEIMAVÍNGERÐ!
NÁMSKEIÐ
Ég hafði átt þann draum lengi að fara utan í
málaskóla,“ segir Drífa Björgvinsdóttir, 50
ára, sem fór í skóla í Exeter á Englandi að
læra ensku. „Ég skildi enskuna alltaf ágæt-
lega en skorti sjálfstraust til að tala.“
Drífa hafði aldrei áður ferðast ein erlend-
is. „Á ferðalögum stólaði ég alltaf á manninn
minn.“ En það var einmitt maðurinn hennar
ásamt enskukennaranum á Íslandi sem
hvöttu hana til að fara.
Drífa segist hafa lært mikið á þeim tíma
sem hún var þarna og hefði vel getað hugsað
sér að vera lengur. Hún öðlaðist sjálfstraust-
ið sem hún leitaði eftir auk þess sem hún
bætti heilmiklu við sig í málfræði. Kennslan
var mjög góð og mikið gert til að gera dvöl-
ina skemmtilega. „Eitt sinn fór kennarinn
með okkur í kvöldgöngu um bæinn og sagði
okkur draugasögur af staðnum, það var
alveg stórkostlegt.“
Hún bjó inn á heimili hjá enskum hjónum
í göngufæri við skólann. Hjónin sendu hana
út með nesti á morgnana og í frímínútum
sátu nemendurnir saman á grasflötinni og
borðuðu nestið sitt.
„Að vissu leyti var þetta eins og að verða
unglingur aftur. Þetta var alveg frábært.“
Drífa segir að skólinn sé lítill og maður nái
góðu sambandi við samnemendur sína. Hún
hafi jafnvel fengið tvo þeirra í heimsókn
hingað til Íslands. „Ég ætla örugglega að
fara þarna aftur og taka þá fjölskylduna með
mér.“
Drífa Björgvinsdóttir
Lét gamlan draum rætast og fór
til Englands í tungumálanám.
Á tungumálanámskeiði erlendis:
Var send með nesti í skólann
Tungumálanám erlendis fyrir fullorðna:
Áhugi vex
Meirihluti þeirra sem sækja nám í málaskól-
um erlendis er ungt fólk. Hins vegar hefur
mikið borið á áhuga fullorðinna á slíku námi
þar sem krafan um tungumálaþekkingu
eykst sífellt. Áslaug Gunnarsdóttir hjá Úrvali-
Útsýn segir talsvert vera spurt um málaskóla
sem aðeins eru ætlaðir fullorðnum. Eldra
fólk óttist að lenda í hópi með ungu fólki og
margir skólanna hafi því aldurstakmark frá
18 ára aldri og boðið sé upp á sérstök nám-
skeið fyrir byrjendur 50 ára og eldri. Fullorð-
ið fólk gerir aðrar kröfur og getur séð um
sig sjálft. Talsvert er um að hjón fari saman
og nýti sumarleyfið sitt til að læra tungu-
mál. Hægt er að velja um að dvelja á hóteli
eða á heimili, auk þess sem val er um
skoðunarferðir og fleira. Vinsælast er að
læra ensku og spænsku en einnig er í boði
nám í frönsku, þýsku og ítölsku.