Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 44
32 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Á STÖKKI Knapinn Graham Lee stökk hátt og vel á hesti sínum Amberleigh House á Grand National mótinu í Liverpool á dögunum. Báru þeir félagar sigur úr býtum á mótinu. Hestaíþróttir Formúla 1: Bjartsýni hjá Renault FORMÚLA 1 „Stemningin er mjög góð hjá Renuault og við erum mjög ánægðir með stöðu okkar,“ sagði Bob Bell, tæknistjóri Renault, í við- tali á heimasíðu liðsins. „Samt sem áður gerum við okkur enga tálvonir um hvar við stöndum. Það er stór munur á frammistöðu okkar og Ferrari og baráttan við Williams og BAR er mjög jöfn. Að sjálfsögðu munum við reyna að minnka bilið milli okkar og Ferrari. Ég er mjög ánægður með stöðu okkar en við gerum okkur grein fyrir því að enn er verk að vinna.“ Renault er í öðru sæti heims- meistarakeppninnar eftir þrjár keppnir og ökuþórar liðsins, Jarno Trulli og Fernando Alonso, eru jafnir í fimmta sæti með ellefu stig. „Við verðum að vinna að því að auðveldara verði að stýra bílnum svo Jarno Trulli og Fernando Alonso geti náð því besta út úr bíl- unum og við höfum mörg ráð til þess. Með þessa fyrirfara í huga er árangur okkar mjög uppörvandi.“ Þó Bell sé sáttur við árangurinn telur hann að Renault hefði átt að geta náð enn betri árangri. „Hefðu bílarnir okkar verið á þeim stað í rásröðinni sem við vildum í Malasíu, hefðum við náð þriðja og fjórða sæti. Við erum vissir um það. Hefði Fernando getað byrjað framar í Barein, til dæmis í sjötta eða sjöunda sæti, eins og við bjuggumst við, hefði hann auð- veldlega getað náð betra sæti.“ „Báðir ökuþórarinir stóðu sig sérstaklega vel í Barein. Jarno var vonsvikinn vegna þess að honum fannst hann hefði getað náð þriðja sætinu en hann ók sérlega vel,“ sagði Bell. Hann telur að Alonso eigi enn mikið inni. „Sú staðreynd að hann náði næstbesta brautar- tímanum sýnir hverju er hægt að ná út úr bílnum.“ ■ Á brattann að sækja hjá Deportivo og Lyon Átta liða úrslitum meistaradeildar UEFA lýkur í kvöld. Deportivo La Coruña leikur við AC Milan og Lyon við Porto. FÓTBOLTI Átta liða úrslitum meist- aradeildar UEFA lýkur í kvöld þegar Deportivo La Coruña og Evrópumeistarar AC Milan leika á Spáni og Olympique Lyon og Porto leika í Frakklandi. Gestalið- in hafa bæði ágætt forskot úr fyrri leiknum en Milan vann Deportivo 4-1 og Porto vann Lyon 2-0. Leikirnir í meistaradeildinni í kvöld hafa ef til vill truflað ein- beitingu leikmanna um síðustu helgi. Deportivo missti niðu tveggja marka forskot á heima- velli gegn Real Betis og Milan gerði jafntefli við Modena sem á í harðri fallbaráttu á Ítalíu. Lyon tapaði 2-1 heima fyrir Marseille og missti efsta sætið til Monaco en Porto lá 2-0 fyrir Gil Vicente og var það fyrsti ósigur félagsins í portúgölsku deildinni í vetur. Deportivo verður að vinna Evr- ópumeistarana 3-0 eða með fjög- urra marka mun ef Milan skorar. Stuðningsmenn Deportivo líta ef- laust til leiksins við Marseille í meistaradeildinni fyrir þremur árum þegar félagið sneri stöðunni 0-3 í 4-3 á 27 mínútum. Milanmenn munu hins vegar líta til þess að fé- lagið hefur sigrað í báðum leikj- um sínum á Riazor, heimavelli Deportivo. Milan vann 1-0 í milli- riðli vorið 2001 og 4-0 í undanriðli haustið 2002 en þá skoraði Filippo Inzaghi þrennu. Enginn leikmanna félaganna tekur út leikbann í kvöld en sex leikmenn Deportivo og fjórir leik- menn Milan lenda í leikbanni fái þeir gult spjald í kvöld. Lyon verður rétt eins og Deportivo að vinna með þriggja marka mun í kvöld. Það gæti reynst þrautinni þyngri gegn öfl- ugri vörn Port sem hefur aðeins einu sinni fengið á sig þrjú mörk í vetur – gegn Real Madrid í fyrstu umferð riðlakeppninnar í haust. Lyon leikur án sóknarmanns- ins Sidney Govou sem meiddist í leiknum gegn Marseille. Miðju- maðurinn Eric Carrière er einnig meiddur en Lyon endurheimtir varnartengiliðinn Christophe Delmotte úr langvarandi meiðsl- um. Enginn leikmanna félaganna tekur út leikbann í kvöld en tveir leikmenn Lyon og fjórir leikmenn Porto lenda í leikbanni fái þeir gult spjald í kvöld. ■ Þjálfarinn Ivan Golac: Úr fótbolta í súkkulaði FÓTBOLTI Skoska dagblaðið Sunday Herlad birti um helgina lista yfir tíu bestu erlendu þjálfarana sem hafa starfað í skosku knattspyrn- unni. Írinn Martin O’Neill, fram- kvæmdastjóri Celtic, er talinn þeirra bestur en Celtic hefur tvisvar orðið skoskur meistari undir stjórn hans og þriðji titillinn er í augsýn. Dick Advocaat, fyrrum þjálf- ari Rangers, er í öðru sæti og Wim Jansen, fyrrum þjálfari Celtic, í því þriðja en í sjötta sæti er Ivan Goalc fyrir það afrek að gera Dundee United að bikarmeistur- um. Golac þjálfaði ÍA árið 1997 en dvöl hans hér var endaslepp. Fram kemur í greininni að Golac sé hættur þjálfun og reki nú súkkulaðiverksmiðju í Belgrad. ■ RENAULT Spánverjinn Fernando Alonso á æfingu á Montmelo-brautinni nærri Barcelona í gær. GOLF Kylfingurinn Vijay Singh segist vera með sjálfstraustið í góðu lagi fyrir bandaríska mastersmótið í golfi sem hefst á Augusta vellinum á morgun. „Mér finnst ég eiga góða mögu- leika á að vinna stórmót á nýjan leik,“ sagði Singh sem er í öðru sæti á heimslistanum á eftir Tiger Woods. Singh, sem er 41 árs, veit hvað þarf til að vinna því hann smeygði sér í græna jakkann fyrir fjórum árum eftir glæstan sigur á mastersmótinu. „Ég er að leika vel um þessar mundir og hitti boltann vel. Ég er tilbúinn í mótið,“ sagði hann. Tiger Woods mun veita Singh harða keppni enda hefur hann þrí- vegis unnið mótið. Hann hefur aftur á móti ekki unnið stórmót síðan hann vann opna bandaríska mótið fyrir tveimur árum. „Mér finnst ég vera að leika vel,“ sagði Woods. „Þau atriði sem ég hef ver- ið að reyna að laga eru farin að smella saman.“ Bandaríkjamaðurinn John Daly vonast til að vinna sitt þriðja stórmót á ferlinum. Hann hefur leikið vel að undanförnu og vann Buick-mótið ekki alls fyrir löngu. „Ég er að spila það vel um þessar mundir að ég gæti átt möguleika,“ sagði Daly, sem er 37 ára. „Ég lifi fyrir það að spila á mastersmót- inu og ef mér tekst að slá vel af teig og ná ágætum púttum verð ég í góðum málum.“ ■ KAKÁ Skoraði tvisvar þegar Milan vann Deportivo 4-1 fyrir tveimur vikum. PÉTUR MARTEINSSON Lék allan leikinn með Hammarby í gærkvöldi. Sænska úrvalsdeildin: Hammarby gerði jafntefli FÓTBOLTI Hammarby og Malmö FF gerðu markalaust jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í gær- kvöldi. Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson var í byrjunarliði Hammarby og lék allan leikinn. Þetta var síðasti leikurinn í fyrstu umferð deildarinnar, en hún hófst síðastliðinn laugardag. Þá gerði Landskrona, lið Auðuns Helgasonar, 1-1 jafntefli við Helsingborg. Halmstad, Íslendingaliðið Ör- gryte og AIK sitja í þremur efstu sætunum með fullt hús stiga eftir umferðina. Næsti leikur Hammarby í sænsku deildinni verður á mánudag. Það verður mikill Íslendingaslagur því þá mætir liðið Örgryte. ■ Mastersmótið hefst á morgun: Singh með sjálfstraustið í lagi VIJAY SINGH Hefur leikið vel að undanförnu og er sigurstranglegur fyrir mastersmótið sem hefst á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.