Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 47
35MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004 • Vörutilboð í verslun • Kynning á Blue Lagoon Iceland húðvörum • Tilboð á veitingastað • Spa meðferðir og nudd fáanlegt Kalli Bjarni skemmtir gestum heilsulindar á skírdag kl. 16.00 Opið alla páskahelgina frá 10.00–20.00 Páskatónar Ég hef verið að færa mig úrfigúratívu málverki yfir í abstrakt málverk undanfarið, en ég hef í raun ekki fundið réttu leið- ina fyrr en nú,“ segir Kristján Jónsson myndlist- armaður, sem sýn- ir málverk í Lista- safni Reykjanes- bæjar í Duus-húsi um þessar mundir. „Mér hefur alltaf fundist vera meiri spenna í því að mála abstrakt.“ Sýningin í Reykjanesbæ er níunda einkasýn- ing Kristjáns á tíu árum, en hann starfar einnig sem hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Mættinum og dýrðinni. Hann nam myndlist á sínum tíma bæði í Reykjavík og Barcelona. Verk Kristjáns hafa selst vel og sjálfur játar hann fúslega að markmiðið sé að selja verkin. „Þegar ég er bú- inn að mála fer helgibragurinn af þessu og þetta verður í raun spurning um bissness,“ segir hann. En hvötin til þess að mála er þó ekki við- skiptalegs eðlis. „Það er nánast launhelgi yfir at- höfninni sjálfri,“ segir Kristján. „En þegar maður ætlar að reyna að koma því í orð af hverju maður málar, og svo framvegis, þá getur orðalagið orðið svo yfirþyrmandi dramatískt að það verður eiginlega hálf óþægilegt að lesa það.“ Myndlistarsýning Kristjáns stendur til 2. maí, en þess má geta að í sama húsi er hin umtalaða sýn- ing Árna Johnsen á grjótskúlptúr- um. Kristján er alls ekki ósáttur við sambýlið. „Maður er einu sinni Eyjapeyi sjálfur,“ segir hann. ■ Kristján Jónsson myndlistarmaður sýnir málverk í Listasafni Reykjanesbæjar: Úr fígúratívu í abstrakt BREYTTAR ÁHERSLUR Þetta verk, Undirlag, er glöggt dæmi um breyttar áherslur í myndlist Kristjáns. KRISTJÁN JÓNSSON Hann sýnir í sama húsi og Árni Johnsen en segist ekki óttast samkeppnina. hugmyndina við hann. „Ragnari fannst hug- myndin geð- veik og hringdi í fleiri hljóm- sveitir sem voru til í slag- inn. Út frá því vissum við að þetta væri hægt,“ útskýr- ir Örn Elías. „Það fannst öllum svo frá- bært að fá að koma út á land og taka þátt í að kynna tón- listina sem h e i m a m e n n eru að gera. Tónlist þeirra hefur verið svolítið illa kynnt.“ Meðal þeirra sem spila á Ísa- firði eru aðkomumennirnir The Funerals, Trabant, Kippi Kanínus og Gus Gus en af heimamönnum má nefna BMX, Mugison, Mugga og stórsveit Sigga Björns. „Það eru frábærar grúbbur á Ísafirði, eins og BMX og Apollo, sem eru fjórtán eða fimmtán ára guttar með virki- lega metnaðarfullt frumsamið efni,“ segir Örn Elías. Örn Elías segir að tónlistar- menn eins og hann, sem hafa farið neðanjarðar um nokkurt skeið, hafi ekki verið nógu sýnilegir úti á landi og aðallega spilað í miðborg Reykjavíkur. „Okkur fannst að við þyrftum að spila meira úti á landi enda fréttir fólk ekkert af tónlist- inni okkar nema það sé komið með hana til þeirra,“ segir hann. Allir gefa vinnu sína Eins og gefur að skilja er tals- verður kostnaður fólgin í því að halda svo metnaðarfulla hátíð, ekki síst í ljósi þess að aðgangs- eyrir á hana er enginn. „Það gefa allir vinnuna sína og fólk fær meira að segja að éta þegar það kemur. Trillukarlarnir gefa fisk í stærstu fiskisúpu sem gerð hefur verið – að minnsta kosti á bryggj- unni á Ísafirði,“ útskýrir Örn Elí- as en tónleikarnir verða haldnir í gömlu frystihúsi sem nú fær annað hlutverk. Hátíðin fékk styrk frá Menn- ingarborgarsjóði sem dugir fyrir helmingnum af flugfargjaldi tón- listarmannanna en Flugfélag Ís- lands og Ísafjarðarbær taka einnig þátt í kostnaðinum. Skrýtið en æðislegt Þó nokkrar hljómsveitir frá Ísafirði hafa gert garðinn frægan og má þar nefna Grafík, Villa Valla og BG & Ingibjörgu. Örn El- ías segir hátíðina samt ekki ein- skorðast við Ísafjörð því fulltrúar frá stöðum í kring munu einnig skemmta. „Steindór Andersen mun þeyta skífum og verður full- trúi Suðureyrar, svo kemur einn frá Þingeyri og vonandi einn frá Bolungarvík,“ segir Örn Elías, sem vonast til að hátíðin gangi vel og verði árlegur viðburður. „Þetta er svolítið eins og fermingar- veisla á hláturgasi. Það er eitt- hvað skrýtið við hana en líka eitt- hvað æðislegt.“ Fjöllin halda Mugison við efnið Sjálfur hefur Mugison verið á tónleikaferðalagi um Evrópu og er nýbúinn að semja tónlist við bíómyndina Niceland eftir Friðrik Þór Friðriksson. Fram undan er tónleikaferðalag með múm en síð- an hefst vinna að nýrri plötu. „Ég ætla að fara vestur, loka mig af og klára plötu á þremur mánuðum eða svo,“ segir Örn Elí- as, sem kolféll fyrir Vestfjörðum. „Ég flutti þangað fyrir rúmu ári síðan og þar er ótrúlega gott að vinna. Mér verður eitthvað svo mikið úr verki. Það er gott að loka sig þarna inni því ég þarf á þröng- sýninni að halda svo ég sjái ekki endalausa möguleika. Fjöllin halda mér við efnið. Ég ætla að flakka um firðina og bæina í kring og taka upp plötuna. Ég verð kannski hálfan mánuð í hverjum bæ,“ segir Örn Elías eða Mugison að lokum. kristjan@frettabladid.is HELSTU HLJÓMSVEITIR Á HÁTÍÐINNI 9/11 BMX Dr. Gunni Funerals Gjörningaklúbburinn Gus Gus Haddi Bæjó Hudson Wayne Jóhann Jóhannsson Jói 701 Kippi Kanínus Muggi Mugison Siggi Björns BigBand Singapore Sling Skúli Þórðar Steindór Andersen The Lonesome Traveller Trabant Tristian
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.