Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 22

Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 22
22 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Vilja banna birtingu upplýsinga úr skattskrám: Einkaskattrannsóknum ljúki SKATTAR Þrettán þingmenn stjórn- arflokkanna hafa lagt fram frum- varp sem felur í sér að opinber birting og framlagning álagningar- og skattskráa verði lögð af. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks. Í greinargerð segir að veiga- mestu rökin að baki frumvarpinu séu þau að telja verði að birting álagningar- og skattskráa sam- kvæmt ákvæðum núgildandi laga brjóti meðal annars gegn rétti ein- staklinga til friðhelgi einkalífs. Tíunduð er árleg umfjöllun fjölmiðla um upplýsingar úr álagningar- og skattskrám og sagt að slík fjölmiðlaumræða feli í sér hættu á að einstaklingar verði fyrir óverðskuldaðri áreitni vegna tekna sinna, ýmist vegna þess að þær þyki of háar eða of lágar. Þá segir í greinargerðinni að birting upplýsinganna sé til þess fallin að grafa undan því trúnaðarsambandi sem viðgengist hefur á vinnumarkaði um launa- kjör. Með því að skylda skatt- stjóra til þess að birta upplýsing- arnar geri ríkisvaldið trúnað um launakjör að engu. Í lok greinargerðarinnar segir að verði frumvarpið að lögum ljúki einkaskattrannsóknum borg- aranna á hverjum öðrum. ■ SKATTAMÁL Talsmaður ítalska verk- takarisans Impregilo, Ómar R. Valdimarsson, segir nokkrar ástæður vera fyrir því að útsvars- greiðslur erlendra verkamanna fyrirtækisins hafi ekki borist til Norður-Héraðs og Fljótsdalshér- aðs eins og lög gera ráð fyrir. Hafa sveitarstjórnir beggja hér- aða ítrekað óskað eftir liðsinni Ríkisskattstjóra vegna málsins enda sé nú að verða ár liðið síðan fyrstu verkamennirnir hófu störf við Kárahnjúka. Ómar viðurkenn- ir að sökina sé að finna hjá Impregilo en fleira spili þar einnig inn í. „Helsta skýringin er sú að dráttur hefur verið á frágangi um- sókna um dvalarleyfi og þar er við okkur að sakast. Áður en dvalar- leyfi eru veitt eru erlendir verka- menn á svokallaðri utangarðsskrá og þegar svo er er erfitt að átta sig á hlut einstakra sveitarfélaga í staðgreiðslu skatta.“ Ómar bendir þó á að sam- kvæmt tvísköttunarsamningi Ís- lands og Portúgal þurfi menn að dvelja sex mánuði eða lengur í viðkomandi landi áður en skatt- skylda færist milli landanna. Meirihluti erlendu verkamann- anna við stíflugerðina við Kára- hnjúka eru af portúgölsku bergi brotnir. „Hjá Impregilo starfa núna tæplega 750 útlendingar og nýlega sendum við inn 300 um- sóknir um dvalarleyfi. Þá eru eft- ir tæplega 300 sem ekki hafa starfað hér lengur en þrjá mánuði og ekki fengið slík leyfi útgefin. Aðeins er um nokkra einstaklinga að ræða sem hafa dvalið hér leng- ur en þrjá mánuði og fyrirtækinu hefur ekki tekist að skila inn gögnum um ennþá. Þó er unnið að því að leggja lokahönd á það.“ Impregilo viðurkennir hins vegar ekki neina skyldu til að inn- heimta tryggingagjald af erlend- um starfsmönnum sínum fyrstu sex mánuðina sem þeir starfa hér á landi. Helgast það af því að fólk frá Evrópska efnahagssvæðinu er tryggt í sínum heimalöndum fyrstu sex mánuði sem starfað er hér á Íslandi. Hyggjast Impregilo menn sækja rétt sinn fyrir dóm- stólum varðandi þetta atriði ef þurfa þykir. albert@frettabladid.is Gigtarfélag Íslands: Mælirinn stútfullur Sú ákvörðun innan heilbrigðis-ráðuneytisins að hætta greiðsluþáttöku í hinum nýju bólgueyðandi lyfjum nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er harðlega gagnrýnd af Gigtar- félagi Íslands. Er talið að slík ákvörðun muni eingöngu auka all- an kostnað þegar til lengri tíma er litið. Enn fremur snerti þessi ákvörðun stóran hóp fólks í land- inu sem þjáist af gigt en það sé staðreynd að vanda þessa fólks hafi aldrei verið forgangsraðað innan íslensk heilbrigðiskerfis. Þessi ákvörðun þýði að mælirinn sé orðinn stútfullur. ■ VIÐ KÁRAHNJÚKA Þar starfa alls 750 erlendir starfsmenn um þessar mundir auk 300 Íslendinga. www.os tu r. i s Sælker amatur Sannir sælkerar nota hvítlaukssmjör me› steinselju á brau›, me› pasta, í ofnrétti, til steikingar e›a á grillmat. Hvítlaukssmjör me› steinselju SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON Hefur ásamt tólf þingmönnum stjórnar- flokkanna lagt fram frumvarp um bann við opinberri birtingu skattskráa. Þingmennirn- ir segja að þar með ljúki einkaskattrann- sóknum borgaranna á hverjum öðrum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I PÁSKAHÁTIÐ GYÐINGA Strangtrúaður gyðingur í Mea Shearin- hverfinu í Jerúsalem tekur þátt í undirbún- ingi páskahátíðarinnar með því að brenna brauð. Á páskum halda gyðingar upp á ferð Móse frá Egyptalandi og í dymbilvik- unni er bannað að neyta brauðmetis. Kjarasamningar: Vökull samdi við SA KJARASAMNINGAR Vökull-stéttarfé- lag á Höfn í Hornafirði og Samtök atvinnulífsins náðu í gær sam- komulagi um nýjan kjarasamning til næstu fjögurra ára hjá ríkissáttasemjara. Félagsmenn felldu í síðasta mánuði kjara- samning Starfsgreinasambands- ins við Samtök atvinnulífsins með sjö atkvæða mun, 86 atkvæðum gegn 79. Nýgert samkomulag Vökuls og Samtaka atvinnulífsins er sam- hljóða þeim samningum sem tók- ust á dögunum milli stéttarfélag- anna og Samtaka atvinnulífsins. Þó náði Vökull ákvæði um að at- vinnurekendur greiða nú heil- brigðisvottorð starfsmanna en um það hefur lengi verið deilt. Atkvæði verða greidd um samninginn á næstu dögum. ■ Impregilo viðurkennir sök Verktakafyrirtækið Impregilo viðurkennir sök vegna dráttar á umsóknum um dvalarleyfi til handa erlendum starfsmönnum sínum. Það sé að hluta til ástæða þess að opinber gjöld skila sér ekki til viðkomandi sveitarfélaga fyrir austan. LUNDÚNIR, AP Leynilögreglan í Bretlandi og Bandaríkjunum telur sig hafa komið upp um áætl- anir um efnavopnaárás á Bret- land. Lítið hefur verið gefið upp um málið að svo stöddu en talið er að áætlanirnar hafi verið stutt á veg komnar þegar lögreglan skarst í leikinn. Í þeim var gert ráð fyrir að eiturefninu osmíum- tetroxíði yrði blandað í sprengju sem yrði sprengd í Bretlandi, lík- legast í London. Mismunandi skoðanir eru um skaðsemi osmíum-tetroxíðs en efnið er ekki mikið notað í efna- vopn. Sumir telja það valda því að fórnarlömb sem anda að sér gas- inu kafni. Aðrir telja að það valdi einungis smávægilegri ertingu í öndunarvegi og sé ekki nándar nærri eins skaðsamt og til dæmis sinnepsgas. Ekki er enn vitað hvort þessi fyrirhugaða efnavopnaárás teng- ist handtökum sem bresku lög- reglan framkvæmdi í síðustu viku. Þá voru níu manns hand- teknir og hálft tonn af ammóní- umnítrati gert upptækt. ■ Breska leynilögreglan: Efnavopnaárás afstýrt LUNDÚNIR Talið er líklegt að borgin hafi átt að vera skotmark efnavopnaárásar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.