Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 49
MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004 Í gærkvöldi steig Nylon, fyrstaalvöru tilbúna stelpusveitin, fram á sjónarsviðið í Íslandi í dag. Einar Bárðarson raðaði sveitinni saman eftir að á annað hundruð stúlkna sóttu um pláss í sveitinni snemma á sunnudagsmorgni á Nasa í síðasta mánuði. Hugmyndin er að skapa íslenska sveit á borð við bresku stúlknabylgjuna sem Spice Girls hrintu af stað. Í kjöl- farið hafa fylgt Atomic Kitten, Girls Aloud, All Saints og B*Witched. Sugababes eru ekki í þessum hópi þar sem stúlkurnar stofnuðu sveitina sjálfar og voru ekki til- búnar á skrifstofu. Þetta er í fyrsta skipti sem það er gert hér á landi, og því blað brotið í íslenskri poppsögu. Stúlkurnar frumfluttu mynd- band við lagið Lög unga fólsins sem Unun sló í gegn með árið 1994. Frá því að þær voru valdar í hópinn hafa þær verið í raddþjálf- un, dansæfingum, upptökum og stöðugum myndatökum. Lífið gæti tekið skemmtilega u-beygju því stefnt er á breiðskífu í haust, en hverjar eru svo þessar stelpur? Steinunn Þóra Camilla Sigurðar- dóttir Verður tvítug í sumar og er að klára stúdentsprófin í Versló eftir viku. Er glamúr-stúlkan í hópnum og vinnur í skartgripaverslun for- eldra sinna hér í bæ. Til þess að slaka á klæðir hún sig í pollagall- ann, fer út í á og veiðir lax. H e f u r sungið frá því að hún man eftir sér. Fór í söngskóla í þrjú ár og söng við hvert tækifæri í grunnskóla. Komst í 32 manna hópinn í Idol. Ákvað að taka þátt í Sólsting, sem skólinn setti upp, eftir að hafa séð um förðun og hár síðustu tvö árin á skólasýningum. „Ég var alltaf svo feimin við að fara í prufurnar og koksaði alltaf á því,“ segir Steinunn. „En eftir að hafa sungið fyrir framan Bubba í Idol þá getur þetta aldrei orðið verra. Simon Cowell böggar fólk af ástæðu en Bubbi ákvað bara að vera fúll í tvo daga. Ég hitti á hann á slæmum degi.“ Steinunn segist ekki geta fengið leið á laginu. Kannaðist ekki alveg við það í fyrstu en það rifjaðist upp fyrir henni við aukna hlustun. Klara Ósk Elíasdóttir Ári yngri en hinar í hópnum og er 18 ára nemi í Versló á þriðja ári. Reynsluboltinn í hópnum. Söng ellefu ára dúettinn Álfakóngurinn með Guðrúnu Gunnarsdóttur á diskinn Sól í eldi. Tólf ára tók hún þátt í u p p f æ r s l u B u g s y Malone í Loft- kastalanum. Hafnaði í þriðja sæti á söngvakeppni Samfés þeg- ar hún var í tíunda bekk og tók þátt í sýningunni Sólsting sem Versló setti upp nýverið. Kannaðist varla við lagið Lög unga fólsins þegar hún heyrði það fyrst. „Ég vil bara fá ánægjuna út úr þessu,“ segir Klara. „Maður á að gera það sem manni finnst gaman að gera.“ Emilía Björg Óskarsdóttir 19 ára nemandi í Fjölbrauta- skóla Breiðholts. Vinnur í leiks- skóla með náminu. Segist hafa verið syngjandi frá því að hún var pínulítil. Söng aðal- hlutverkið í uppfærslu FB á Queen söngleiknum Lifi Rokkið. Kannaðist við lagið áður en hún heyrði. „Ég fíla það í klessu, mér finnst það æðislegt,“ segir Emilía. „ Ó g e ð s l e g a skemmtilegt lag sem kem- ur manni í gott skap. Takturinn er góður og text- inn fríkaður. Þetta er kúl lag.“ Segist vera búin að eignast þrjár nýjar vinkon- ur frá því að hún söng sig inn í hóp- inn. Alma Guðmundsdóttir 19 ára, verður 20 í lok desem- ber. Er í Fjölbraut í Garðabæ og leikur Auði í uppfærslu skólans á Litlu Hryllingsbúðinni. Vinnur í hlutastarfi á elliheim- ili í eldhúsinu. Bjó tímabundið í Frakklandi þar sem hún var í rokkhljómsveit. Hún var líka í hiphopsveit hér fyr- ir nokkrum árum síðan. Getur sungið á frönsku, ensku og ís- lensku. „Það yrðu geðveik for- réttindi að fá að starfa við það sem manni finnst skemmtilegast að gera,“ segir Alma, sem vonast til að geta gert sönginn að starfi sínu. „Það verður fyrst og fremst miðað við þetta sumar og svo sjá- um við til hvað gerist.“ biggi@frettabladid.is TÓNLIST Búið er að ganga frá aukatónleikum með bandarísku rokksveitinni Pixies. Þeir verða haldnir 25. maí í Kaplakrika, dag- inn fyrir tónleikana sem áttu upp- haflega að verða einu tónleikar sveitarinnar hér á landi. Ekki hefði verið mögulegt að skella öðrum tónleikum daginn eftir, svo brugðið var á þetta ráð. Ljóst er að áhuginn á tónleik- um Pixies hér á landi er gífurleg- ur og segjast tónleikahaldarar hafa þurft að taka á móti mörg- um símtölum frá svekktum tón- listaráhugamönnum sem misstu af miðum. Miðasala hefst 30. apríl klukk- an 9 í verslunum Skífunnar, Laugavegi, Kringlunni og Smára- lind. Á landsbyggðinni verður hægt að fá miða í Hljóðhúsinu, Selfossi, Pennanum-Eymundsson, Glerártorgi, Akureyri, og Bóka- búð Andrésar/Pennanum, Akra- nesi. Einnig verður hægt að nálgast miða á icelandair.is/haenan. Þess má geta að Pixies mun gefa út sér- stakan tónleikadisk frá seinni tón- leikunum. Diskurinn mun koma út í mjög takmörkuðu upplagi, eða um þúsund stykkjum. Hægt er að panta gripinn á disclive.com. ■ Aukatónleikar með Pixies PIXIES Bandaríska rokksveitin ætlar að mæta deginum fyrr og halda aukatónleika, á undan þeim sem seldist upp á, fyrir þá sem misstu af miðum síðast. NYLON Fyrsta íslenska tilbúna stúlknasveitin. Frá vinstri: Klara, Steinunn, Emilía og Alma. Allar fæddar 1984 nema ein, sem er ári yngri. Tónlist NYLON ■ Stelpusveit Einars Bárðarsonar er orðin að veruleika. Þær frumfluttu útgáfu sína af Lögum unga fólsins á Stöð 2 í gærkvöldi. Blað brotið í íslenskri poppsögu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.