Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 45
33MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004 9. - 12. APRÍL Í SÝNINGARSAL B&L GRJÓTHÁLSI 1 STÓRSÝNINGIN BÍLADELLA 2004 FÓTBOLTI Chelsea er komið í undan- úrslit meistaradeildar Evrópu í fót- bolta eftir óvæntan 1-2 sigur á Arsenal á Highbury. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn með Chelsea og lagði upp sigurmark liðsins á 87. mínútu fyrir varnar- manninn Wayne Bridge. Fyrri leik- ur liðanna í meistaradeildinni end- aði með 1-1 jafntefli á Stamford Bridge og því stefndi allt í fram- lengingu áður en Bridge skoraði. Arsenal byrjaði leikinn betur og komst yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki frá Spánverjanum Jose Antonio Reyes af stuttu færi. Chel- sea gafst ekki upp og Frank Lampard jafnaði metin í byrjun síð- ari hálfleiks eftir að Jens Lehmann, markvörður Arsenal, sló boltann klaufalega fyrir fætur hans. Skömmu áður en Chelsea skoraði sigurmarkið fékk Eiður Smári gott tækifæri til að skora en skoti hans var bjargað naumlega á marklínu. Fyrir leikinn hafði Arsenal ekki tapað gegn Chelsea í sautján síðustu leikjum Lundúnarliðanna og var sigurinn því heldur betur langþráð- ur. Chelsea er þar með komið í - undanúrslit meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins og mæt- ir þar Mónakó. Arsenal situr aftur á móti eftir með sárt ennið og hefur ekki enn tekist að komast í undan- úrslit keppninnar. Liðið á nú aðeins möguleika á sigri í ensku úrvalsdeildinni en fyrir skömmu síðan átti það ágætan möguleika á að ná þrennunni eftir- sóttu. Tap gegn Manchester United í undanúrslitum bikarsins gerði þann draum að engu um síðustu helgi og tapið gegn Chelsea í gær var annað reiðarslag liðsins á aðeins fjórum dögum. Chelsea sló Arsenal út í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar: Eiður lagði upp sigurmarkið FÖGNUÐUR Wayne Bridge og Eiður Smári Guðjohnsen fagna sigurmark- inu gegn Arsenal. Remaxdeild kvenna: Valur í undanúrslit HANDBOLTI Valsstúlkur eru komnar í undanúrslit Remaxdeildar kven- na í handbolta eftir sigur á Víking 19-17 í oddaleik liðanna sem var háður að Hlíðarenda. Þegar skammt var til leiksloka höfðu Víkingar yfir 17-16 en Val- ur átti góðan endasprett og skor- aði síðustu þrjú mörkin. Ágúst Edda Björnsdóttir var marka- hæst í liði Vals með fjögur mörk en Margrét Egilsdóttir skoraði sex fyrir Víking. ■ SKOT Á MARK Valsstúlkur eru komnar í undanúrslit Remax-deildar kvenna eftir sigur á Víkingi. FÓTBOLTI Mónakó er komið í undan- úrslit meistaradeildarinnar eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Real Madrid í gærkvöldi. Real vann fyrri leik- inn 4-2 á heimavelli en franska lið- ið kemst áfram með fleiri mörk- um skoruðum á útivelli. Svo virtist sem Real Madrid væri komið áfram í keppninni þegar Raul skoraði á 35. mínútu og kom liðinu samanlagt í 5-2. Mónakó var ekki af baki dottið því Ludvic Giuly jafnaði metin skömmu áður en flautað var til leikhlés. Fernando Morientes, sem er í láni hjá Mónakó frá Real, kom Frökkunum í 2-1 í byrjun síð- ari hálfleiks og gaf sínum mönn- um von. Morientes skoraði einnig í fyrri leik liðanna og naga for- ráðamenn Real sig eflaust í hand- arbökin fyrir að hafa lánað leik- manninn til Mónakó. Giuly skor- aði annað mark sitt og þriðja mark Mónakó á 66. mínútu og tryggði liðinu sæti í undanúrslitunum þar sem Chelsea verður andstæðingur- inn. Raul fékk tvö tækifæri til að jafna metin fyrir Real en hann var ekki á skotskónum. ■ 8 liða úrslit meistaradeildar Evrópu: Mónakó sló út Real Madrid Í UNDANÚRSLIT Leikmenn Mónakó fagna sæti sínu í undanúrslitum meistaradeildarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.