Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 6
6 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72.42 0.00%
Sterlingspund 132.82 0.78%
Dönsk króna 11.76 -0.13%
Evra 87.57 -0.09%
Gengisvísitala krónu 122,9 -0,05%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 333
Velta 9.863 milljónir
ICEX-15 2.640 0,82%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 543.662
Landsbanki Íslands hf. 526.116
Íslandsbanki hf. 114.983
Mesta hækkun
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 3,79%
Hlutabréfamarkaðurinn hf. 1,81%
Marel hf. 1,66%
Mesta lækkun
Tangi hf. -22,73%
Samherji hf. -2,78%
AFL fjárfestingarfélag hf. -2,04%
Erlendar vísitölur
DJ * 10.522,2 -0,3%
Nasdaq * 2.054,8 -1,2%
FTSE 4.472,8 -0,2%
DAX 4.022,8 -0,6%
NK50 1.507,7 -0,3%
S&P * 1.143,5 -0,6%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Varðskipsmenn á Tý fengu óvæntangest um borð á dögunum. Hver var
gesturinn?
2Hve háa fjárhæð dró fyrrverandiaðalgjaldkeri Símans sér?
3Hvað heitir stofnandi IKEA sem eittaugnablik var sagður ríkasti maður
heims?
Svörin eru á bls. 42
Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður:
Siv vill kaupa mál-
verk á uppboði
RÍKISSTJÓRNIN Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra hefur óskað
eftir heimild ríkisstjórnarinnar
til þess að kaupa málverk af
landkönnuðinum og mannfræð-
ingnum Vilhjálmi Stefánssyni.
Málverkið er eftir þýska mál-
arann Eugen Spiro og verður
boðið upp í London á næstunni.
Siv segist ekki vita nákvæmlega
hvað málverkið sé metið á en
telur það ekki vera dýrt.
Spiro, sem lést árið 1972, er
meðal annars frægur fyrir mál-
verk af Albert Einstein. Ef ríkið
festir kaup á málverkinu mun
það verða í eigu stofnunar Vil-
hjálms Stefánssonar á Akureyri
og fara á farandssýninguna
Heimskautalöndin unaðslegu. ■
Þrír ræningjar
handteknir
Þrír menn hafa verið handteknir grunaðir um aðild að vopnuðu ráni í
Stafangri á mánudagsmorgun. Yfir tíu milljónir íslenskra króna hafa
verið settar til höfuðs ræningjunum sem skutu til bana lögreglumann.
NOREGUR Lögreglan í Gautaborg
handtók í gærkvöldi þrjá menn
sem grunaðir eru um aðild að
vopnuðu ráni í Stafangri á mánu-
dagsmorgun. Norsk Kontant-
service hefur heitið sem svarar
yfir tíu milljónum íslenskra króna
í verðlaun fyrir upplýsingar sem
leiða til þess að lögum verði kom-
ið yfir mennina sem rændu pen-
ingageymslur fyrirtækisins og
skutu lögregluþjón til bana. Lög-
reglunni í Stafangri hafa þegar
borist yfir 500 vísbendingar í mál-
inu.
Umfangsmikil leit stendur
yfir að ræningjunum og hefur
verið lýst eftir fjórum mönnum í
tengslum við rannsókn málsins.
Tveir einstaklingar voru hand-
teknir á mánudagskvöld en þeir
voru látnir lausir að loknum yfir-
heyrslum. Í gærkvöldi voru þrír
menn handteknir í Gautaborg
grunaðir um aðild að ráninu. Að
sögn lögreglu veittu mennirnir
enga mótspyrnu.
Lögreglan vinnur að því að
fara í gegnum þann aragrúa vís-
bendinga sem borist hefur og
rannsaka upptökur úr fjölda ör-
yggismyndavéla í Stafangri. Yfir
sjötíu lögreglumenn taka þátt í
rannsókn málsins.
Flugvellinum í Stafangri var
lokað um tíma í gær eftir að lög-
reglunni bárust vísbendingar um
að aðili sem tengdist ráninu væri
þar staddur. Leitað var í farþega-
þotu flugfélagsins KLM sem var á
leið frá Stafangri til Amsterdam.
Lögreglan segir að maður sem
handtekinn var á vellinum sé ekki
talinn tengjast ráninu.
Einnig var gert skyndiáhlaup á
íbúð í miðborg Stafangurs og á
yfirgefið sumarhús í Sokndal.
Auglýst hefur verið eftir eiganda
sumarhússins, sem er þekktur af-
brotamaður, en norskir fjölmiðlar
halda því fram að lögreglan hafi
fundið mikilvægar vísbendingar í
húsinu.
Ekki hefur fengist staðfest
hversu háa fjárhæð ræningjarnir
komust undan með en norskir
fjölmiðlar hafa leitt að því líkum
að um sé að ræða norskar krónur
og erlendan gjaldeyri að verð-
mæti hundruð milljóna íslenskra
króna. ■
Iceland Express:
Nýr fram-
kvæmdastjóri
FÓLK Nýr framkvæmdastjóri hef-
ur verið ráðinn til starfa hjá flug-
félaginu Iceland Ex-
press en fyrrver-
andi framkvæmda-
stjóri, Jóhannes-
Georgsson, hefur
látið af störfum að
eigin ósk. Jóhannes verður þó
áfram einn af aðaleigendum fyrir-
tækisins en eftirmaður hans í stól
framkvæmdastjórans er Arnþór
Halldórsson, bygginga- og verk-
fræðingur. Hann hefur starfað
sjálfstætt undanfarið ár en vann
áður erlendis.
Pitsudóni dæmdur:
Kynsveltur
pantaði pitsur
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur mað-
ur var dæmdur til greiðslu 140
þúsund króna sektar í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær fyrir að
fróa sér fyrir framan fjóra pitsu-
sendla í fimm skipti þegar þeir
færðu honum heimsendan mat. 28
daga fangelsi kemur í stað sektar-
innar verði hún ekki greidd innan
fjögurra vikna.
Maðurinn var nakinn að fróa
sér þegar pitsusendlarnir komu
með matinn á heimili hans. Hann
bauð þremur af sendlunum
greiðslu fyrir að bíða meðan hann
lyki sér af, meðal annars 500 og
1000 krónur.
Í dómnum segir: „Framferði
ákærða gagnvart kærendum var
ógeðfellt og þykir bera vott um
sérkennilegar hvatir. Hefur hann
með háttsemi sinni valdið drengj-
unum nokkurri vanlíðan að
ósekju“.
Pitsusendlarnir sem urðu fyrir
áreiti mannsins eru fæddir á
árunum 1981–1986. ■
Líkfundarmálið:
Styttist í lok
rannsóknar
LÖGREGLAN „Við eigum eftir að fá
niðurstöður úr DNA-greiningu
frá Noregi og úr sýnagreiningu.
Við búumst við þessum tækni-
skýrslum innan fárra daga,“
segir Arnar Jensson hjá ríkis-
lögreglustjóra um gang rann-
sóknar í líkfundarmálinu.
Arnar segir að þegar niður-
stöður úr sýnatökum berist
verði í framhaldinu farið yfir
málið og athugað hvort það sé
tilbúið til að fara til ríkis-
saksóknara. ■
M
arg
fald
a›u punktana flína
Punkta›u fla› hjá flér!
5x20W x 1x40W hátalarar
Spilar: DVD, CD, CD-R, CD-RW,
MP3, JPEG og HDCD
Dolby digital
Útvarp me› 50 stö›va minni
FRÁ ACE ELECTRONICS
HEIMABÍÓ
Ver› mi›a› vi› 1000 punkta:
14.990 kr.
Smásöluver›: 29.900 kr.
Ver›gildi punkta: x15
H
ám
ark
1000
punktar á hvert tilbo›
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
7
2
Nýtt varðskip:
Í vinnslu hjá
ráðuneytinu
Björn Bjarnason segir að stefn-
an sé skýr varðandi nýtt varðskip
Íslendinga en smíði nýs skips hefur
verið á döfinni í áraraðir. Ráðherra
segir að nýlega hafi lokið vinnu
vegna tillagna að nýju skipi og nú sé
unnið að undirbúningi málsins í
tengslum við undirbúning fjárlaga
fyrir næsta ár. Málið sé allt í
vinnslu. ■
VETTVANGUR GLÆPSINS
Svæðið umhverfis peningageymslur Norsk Kontantservice í Stafangri var lokað af á meðan
lögreglumenn leituðu vísbendinga sem gætu leitt þá á spor ræningjanna.
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
Málverk af Vilhjálmi verður
boðið upp í London.