Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 8
8 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Áfram Borgó „Auðvitað má dómari ekki halda með neinu liði en það má alveg koma fram að Versló hefur aldrei verið uppáhaldsskólinn minn.“ Stefán Pálsson, dómari Gettu betur, DV 6. apríl. Hver er hættan? „Einu þjóðirnar sem tæknilega geta ráðist á okkur Íslendinga úr lofti eru Bretar, Bandaríkja- menn og Rússar. Aðrar þjóðir búa ekki yfir herþotum með langdrægni í aðra eins vitleysu.“ Gunnar Örn Örlygsson þingmaður, Fréttablaðið 6. apríl. Er ekki Halldór Blöndal í Norðausturkjördæmi? „Það er erfitt að trúa því að þingmenn Norðvesturkjördæmis sjái ekki þær hættur sem af Norðurvegi mundu leiða fyrir byggðarlögin á Norðvesturlandi. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins 6. apríl. Orðrétt Litháíska þingið greiðir atkvæði: Forsetanum vikið úr embætti LITHÁEN, AP Litháíska þingið sam- þykkti með naumum meirihluta að víkja forseta landsins, Rolandas Paksas, úr embætti fyrir að brjóta gegn stjórnarskrá landsins. Arturas Paulauskas, forseti þingsins og einn helsti andstæðingur Paksas, tekur við forsetaembættinu og gegnir því fram að kosningum. Paksas, sem er 47 ára, hefur ver- ið sakaður um að hafa veitt rúss- neskum kaupsýslumanni ríkisborg- ararétt í skiptum fyrir fjárhagsleg- an stuðning í kosningabaráttu sinni í fyrra. Paksas hefur neitað öllum sakargiftum og haldið því fram að um sé að ræða samsæri gegn sér. Stjórnarskrárdómstóll í Litháen komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að Paksas hefði gerst brotleg- ur við stjórnarskrána. Í kjölfarið var boðað til atkvæðagreiðslu í þinginu um framtíð hans í embætti forseta. Um tveir þriðju þingmanna reyndust á þeirri skoðun að forset- inn hefði gerst sekur um stjórnar- skrárbrot og var honum því vikið umsvifalaust úr embætti. ■ Á reynslulausn þrátt fyrir ítrekað ofbeldi Stefán Logi Sívarsson fékk reynslulausn fyrir skömmu. Hún var veitt þrátt fyrir að hann hafi ít- rekað verið dæmdur. Flestir dómanna voru með skilorði eða ákærufrestun vegna aldurs Stefáns. Þess vegna var ekki horft til þeirra þegar honum var veitt frelsi. Dæmdur ofbeldismaður, Stef-án Logi Sívarsson, er grun- aður um fjórar líkamsárásir á þremur dögum eftir að hafa ný- lega verið látinn laus á skilorðs- bundinni reynslulausn fyrir stórfellda líkamsárás sem hann framdi ásamt bróður sínum 2. ágúst 2002. Fyrri árásin var á laugardag er Stefán gekk í skrokk á sextán ára pilti með þeim afleiðingum að hann var hætt kominn vegna innvortis blæðinga. Lögregla fór fram á gæsluvarðhaldsúrskurð en dómari taldi ekki ástæðu til þess og var Stefáni því sleppt úr haldi. Rétt rúmum sólarhring síðar, á mánudag, var Stefán handtekinn að nýju vegna lík- amsárása. Að sögn Harðar Jóhannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns var um þrjú brot að ræða er Stefán hafði framið við þriðja mann. Réðust þeir á karlmann fyrir utan lögreglustöðina við Hverf- isgötu, beittu því næst konu of- beldi sem var með þeim í bíl og voru að lokum handteknir eftir að ábendingar bárust um þriðju slagsmálin. Eitt fórnarlambanna var flutt á sjúkrahús til aðhlynn- ingar en fékk að fara heim skömmu síðar. Farið var fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Stefáni og einum samverka- manna hans. Hrottaleg líkamsárás 2002 Stefán hlaut tveggja ára fang- elsisdóm fyrir árásina 2002, svo- kallaða Skeljagrandaárás, auk annarrar líkamsárásar sem hann framdi sama dag. Í dómskjölum kemur fram að bræðurnir hafi „margsinnis slegið fórnarlambið í andlit og líkama með krepptum hnefum og bareflum, stungið hann og skorið með eggvopnum og misþyrmt honum með öðrum hætti, með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut, auk annarra áverka, tólf stungu- og skurðsár í andlit og líkama, gat á vinstra eyra, sem ákærði Stefán Logi veitti honum með beltisgatara, brot í ennisbeini og nefrót, fjóra skurði á höfði, blóðsöfnun undir höfuðleðri og lífshættulega blæðingu milli heilahimna.“ Tíð afbrot frá 16 ára aldri Skeljagrandaárásin var langt frá því fyrsta brot Stefáns. Hann var sextán ára þegar hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi í undirrétti í júní 1998. Þrír mánuð- ir af dómnum voru óskilorðs- bundnir. Til frádráttar kom 42 daga gæsluvarðhald sem pilturinn hafði sætt fram að dómsupp- kvaðningunni. Dómnum var ekki áfrýjað. Bræðurnir gengu saman í skrokk á 49 ára gömlum manni við áramótabrennu við Ægisíðu á gamlárskvöld 1997. Maðurinn var sleginn og margsinnis var sparkað í andlit hans og líkama. Rétta þurfti nef mannsins með aðgerð. Enn fremur var Stefán dæmdur fyrir líkamsárás á mann á fimmtugsaldri þar sem þeir voru við sjúkrastöðina Vog. Þá vantar í ofangreinda upp- talningu fjölda innbrota í hús og bíla í næsta nágrenni við heimili bræðranna á Skeljagranda. Með- al annars stálu þeir ýmsum skot- vopnum. Dómur þótti mildur Þrátt fyrir það hve hrottaleg Skeljagrandaárásin var og hve mörg brot Stefán átti þegar að baki, þar á meðal fjölda ofbeldis- brota, var hann einungis dæmd- ur í tveggja ára fangelsi. Fram kom í dómnum að brot Stefáns fyrir líkamsárásir sem hann framdi áður en hann varð 18 ára hafa ekki ítrekunaráhrif á refs- ingu samkvæmt almennum hegningarlögum. Einnig var tek- ið tillit til ungs aldurs hans þeg- ar brotið átti sér stað. Þá fékk Stefán reynslulausn eftir að hafa afplánað tvo þriðju hluta dómsins. Að sögn Erlendar Baldurssonar hjá Fangelsis- málastofnun eru skýrar reglur um það hvenær veita skuli föng- um reynslulausn. Almennt fái fangar reynslulausn eftir að hafa afplánað helming eða tvo þriðju hluta refsingar en það fari eftir eðli brotsins. Einnig sé litið til þess hve marga dóma viðkomandi hafi afplánað í fang- elsi. Ekki sé litið til skilorðsbund- inna dóma eða dóma með ákæru- frestun þegar ákvörðun er tekin um reynslulausn. Ef afbrotamenn á reynslu- lausn brjóta af sér er ekki hægt að koma þeim aftur í fangelsi nema með nýjum dómi. Fyrir lagabreytingar 1999 gátu Fang- elsismálastofnun og dómsmála- ráðuneytið afturkallað reynslu- lausnir en því var breytt í kjöl- far úrskurðar umboðsmanns Al- þingis því það samræmdist ekki Mannréttindasáttmála Evrópu. Breytingar á lögum Mikil umræða hefur spunnist um ákvæði reynslulausna í kjöl- far síðustu líkamsárása Stefáns og kynnti Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fyrirhugaðar breytingar á lögum um reynslu- lausn á ríkisstjórnarfundi í gær. Talin er þörf á að brot á reynslu- lausn fái flýtimeðferð fyrir dómi svo úrskurður fáist eins fljótt og mögulegt er. Auk þess sem Björn benti á mætti þó einnig kanna hvort ástæða sé til þess að breyta ákvæðum um veitingu reynslu- lausna og horfa eigi á allan brotaferil viðkomandi í stað ein- ungis afplánana eins og nú er. Athygli vekur að ekki þótti ástæða til þess að telja ítrekuð ofbeldis- og auðgunarbrot Stef- áns gegn honum við veitingu reynslulausnar. Stóran hluta brotanna framdi hann áður en hann varð átján ára en reynt er að veita afbrotamönnum yngri en átján ára ákærufrestun eða skilorðsbundna dóma í stað fangelsisvistar. ■ STUÐNINGSMENN FORSETANS Stuðningsmenn Rolandas Paksas söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið í Vilníus, höfuð- borg Litháens, á meðan þingmenn greiddu atkvæði um framtíð hans í embætti forseta. IGOR SUTYAGIN Dæmdur njósnari. Njósnari fyrir dóm: Sautján ára fangelsis krafist MOSKVA, AP Saksóknari í Rússlandi krefst sautján ára fangelsis yfir vopnasérfræðingi sem hefur verið dæmdur fyrir njósnir. Maðurinn var handsamaður árið 1999 fyrir að hafa selt upplýsingar um rúss- neska kjarnorkukafbáta til bresks fyrirtækis sem rússneska leyni- þjónustan telur að hafi verið útibú frá bandarísku leyniþjónustunni. Ef maðurinn fær þennan dóm er það talið reiðarslag fyrir rúss- neska vísindamenn. Síðan Vladimír Pútín tók við embætti forseta Rússlands hefur FSB, sem hefur að mestu leyti tekið yfir störf KGB, fengið meiri völd. Pútín var sjálfur útsendari KGB og yfirmaður FSB. ■ www.plusferdir.is Benidorm 29.900 kr. N E T á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur á Gemelos XXII, Gemelos XX og Levante Club, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Enginn barnaafsláttur. NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is 15. -22. apríl VIII. kafli. Atriði, er áhrif hafa á refsihæðina. 70. gr. Þegar hegning er tiltekin, á einkum að taka til greina eft- irtalin atriði: [...] 4. Aldur þess, sem að verkinu er valdur. 71. gr. Þegar lög ákveða eða heimila aukna hegningu eða önn- ur viðurlög við ítrekun brots, skal ekki beita þeim ákvæðum, nema sökunautur hafi, áður en hann framdi síðara brotið, verið dæmdur sekur um brot eða gengist undir refsingu hér á landi fyrir brot, sem ítrekunaráhrif hefur á síðara brotið, eða tilraun til eða hlutdeild í slíku broti, og að hann hafi þar að auki verið fullra 18 ára, þegar hann framdi fyrra brotið. 74. gr. Refsingu þá, sem í lögum er lögð við broti, má færa nið- ur úr lágmarki því, sem þar er ákveðið, þegar svo stendur á, sem hér á eftir segir: [...] 2. Þegar brot er drýgt af manni, sem þá er ekki fullra 18 ára að aldri, og álíta má vegna æsku hans, að full refsing sé ónauðsyn- leg eða skaðleg. Aldrei má dæma í þyngri hegningu fyrir brot, sem menn hafa framið á þessum aldri, en 8 ára fangelsi. Til þyngingar dóms var tekið tillit til eftirfarandi lagaákvæða: VIII. kafli. Atriði, er áhrif hafa á refsihæðina. 70. gr. Þegar hegning er tiltekin, á einkum að taka til greina eft- irtalin atriði: [...] 5. Hegðun hans að undanförnu. 2. mgr. Hafi fleiri menn en einn unnið verkið í sameiningu, skal að jafnaði taka það til greina til þyngingar refsingunni. TIL STYTTINGAR REFSINGAR STEFÁNS Í SKELJAGRANDAÁRÁSINNI VAR TEKIÐ TILLIT TIL EFTIRFARANDI LAGAÁKVÆÐA: Fréttaskýring SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR ■ skrifar um ofbeldisbrot í reynslulausn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.