Fréttablaðið - 07.04.2004, Blaðsíða 18
STOFNMÆLINGAR Stofnmælingum
botnfiska á Íslandsmiðum,
svokölluðu togararralli Hafrann-
sóknastofnunarinnar, er nýlokið
og eru fiskifræðingar ánægðir
með fyrstu niðurstöður. Hitastig
sjávar umhverfis landið var með
því hæsta sem hefur mælst frá
upphafi stofnmælingarinnar árið
1985 og hefur aðeins mælst hærra
árin 1996 og 2003.
Þorskur virðist enn á uppleið
en stofnvísitala þorsks hækkaði
um fjórðung frá mælingunni í
fyrra, sem er ekki fjarri því sem
gert var ráð fyrir. Óvissan í mæl-
ingunni er hins vegar mun meiri
en í fyrra. Líkt og í togararallinu í
fyrra bendir lengdardreifing
þorsksins til að árgangur 2002 sé
meðalárgangur en árgangur 2001
hins vegar mjög lélegur. Árgang-
ur 2003 virðist vera nokkuð undir
meðalstærð. Mest fékkst af
þorski djúpt út af Norðaustur-
landi og inn á Húnaflóa. Holdafar
þorsksins var svipað og í fyrra,
þegar það var það lélegasta frá
1993, en þá hófust reglulegar vigt-
anir á þorski. Loðnumagn í þorsk-
mögum var mikið fyrir norðan
land en engin loðna fannst í þorsk-
mögum á svæðinu frá Vík vestur
að Ísafjarðardjúpi.
Stofnvísitala ýsu lækkaði um
5% frá árinu 2003 þegar hún var
sú hæsta frá upphafi mælinga.
Mæliskekkjan í stofnvísitölunni
er hins vegar mun minni en í
fyrra, sem skýrist af mjög jafnri
útbreiðslu ýsunnar. Lengdardreif-
ing ýsunnar bendir til að árgang-
ur 2001 sé lélegur en árgangar
2002 og 2003 mjög stórir, einkum
árgangur 2003 sem er talsvert
stærri en áður hefur mælst.
Ýsan veiddist allt í kringum
land en mest fyrir norðan og suð-
vestan land.
Stofnvísitala gullkarfa var
hærri en í fyrra, en þá hækkaði
hún um helming frá árinu 2002 og
var ein sú hæsta frá upphafi tog-
araralls. Mæliskekkjan í vísitöl-
unni er hins vegar mjög mikil nú.
Hafró segir engar vísbendingar
nú um sterka nýliðun í gullkarfa-
stofninum en síðasti sterki ár-
gangur karfa er frá 1990.
Af öðrum tegundum er það að
segja að vísitala steinbíts lækkaði
verulega frá fyrra ári og er nú
með því lægsta sem hefur sést frá
upphafi rallsins. Vísitölur ufsa
hækkuðu frá fyrra ári og benda
eins og fyrri mælingar til að ár-
gangur 2000 sé nokkuð sterkur.
Vísitala skarkola jókst frá fyrra
ári og hefur vaxið frá árinu 2001,
mest vegna aukningar fyrir norð-
an land. Af lýsu fékkst meira
magn en áður hefur sést en magn
lýsu hefur verið að aukast undan-
farin ár, væntanlega vegna hækk-
andi sjávarhita.
Togararallið fór fram í 20. sinn
dagana 1. til 21. mars. Fjórir tog-
arar tóku þátt í rallinu og var tog-
að á 541 rallstöð allt í kringum
landið. Þessa dagana stendur yfir
frekari úrvinnsla gagna svo sem
aldursgreining helstu tegunda.
Lokaúttekt á niðurstöðum og til-
lögur Hafrannsóknastofnunarinn-
ar um aflamark fyrir næsta fisk-
veiðiár verða kynntar í byrjun
júní.
the@frettabladid.is
18 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
DROTTNINGIN HEIMSÆKIR LOUVRE
Elísabet II Englandsdrottning heimsótti
Louvre-safnið í París í gær. Þriggja daga
opinberri heimsókn drottningarinnar til
Frakklands lýkur í dag.
Landhelgisgæslan:
Varar við sprengjum á Vogaheiði
SPRENGJUR Landhelgisgæslan varar
almenning við þeirri hættu sem
getur stafað af gömlum sprengjum
á Vogaheiði. Viðvörunarskilti við
gamalt skotæfingasvæði banda-
ríska hersins á Vogaheiði hafa ver-
ið endurnýjuð og einnig sett upp ný
skilti. Enn á eftir að bæta nokkrum
við. Landhelgsigæslan segir að
gamlar sprengjur hafi fundist í
miklu magni á Vogaheiði, sem er
vinsælt útivistarsvæði.
Bandaríski herinn stóð fyrir
mikilli leit á svæðinu árið 1986 í
samráði við varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins. Aftur var
hafist handa við að leita að
sprengjum á svæðinu árið 1996 og í
fyrra stóð Landhelgisgæslan fyrir
nokkuð ítarlegri leit. Alls hafa
fundist u.þ.b. 800 ósprungnar
sprengjur á svæðinu síðan 1986 og
telja sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar víst að þar sé enn
mikið magn af sprengjum.
Sprengjurnar eru yfirleitt undir
jarðveginum en geta komið upp á
yfirborðið þegar rignt hefur um
tíma eða vegna annarra jarðvegs-
breytinga.
Landhelgisgæslan brýnir fyrir
fólki ef það finnur torkennilega
hluti á svæðinu, að snerta þá ekki,
heldur merkja staðinn og láta lög-
reglu eða sprengjudeild Landhelg-
isgæslunnar vita. ■
Hlýnandi sjór og
þorskurinn vex
Fyrstu niðurstöður stofnmælinga botnfiska á Íslandsmiðum eru að mörgu leyti jákvæðar. Hita-
stig sjávar var með því hæsta sem mælst hefur. Stofnvísitala þorsks er fjórðungi hærri en í fyrra
og ýsa virðist á uppleið. Loðna fannst hins vegar í mjög litlum mæli fyrir sunnan land.
Orkan hunsar tilmæli
Samkeppnisyfirvalda:
Ekki alltaf
ódýrastir
NEYTENDUR Bensínorkan hefur enn
ekki breytt slagorði sínu „alltaf
ódýrast“ þrátt fyrir tilmæli Sam-
keppnisstofnunar þar um í síðasta
mánuði. Nýlega hækkaði Orkan
verð á sjálfsafgreiðslustöðvum
sínum en býður enn lægst á einni
stöð sinni í Kópavogi. Samkeppn-
isstofnun gerði kröfur um að allar
stöðvar félagsins byðu ódýrasta
verðið á landinu til að hægt væri
auglýsa fyrirtækið með þessum
hætti. ■
Endurvinnslan:
Umsýslu-
gjald hækkar
UMHVERFISMENGUN Til stendur
að hækka fjárhæð umsýslu-
þóknunar fyrir ólitað plastefni
í júní á þessu ári samkvæmt
nýju frumvarpi sem lagt hefur
verið á Alþingi. Umsýsluþókn-
un er það gjald sem lagt er á
einnota drykkjarumbúðir eins
og til dæmis gler og plast til að
mæta kostnaði Endurvinnsl-
unnar hf. en henni er gert að
skila arði til eigenda sinna á
ári hverju. Hækkun þessi, úr
0,36 krónum í 0,76 krónur, mun
skila þeim 12 milljónum til
Endurvinnslunnar sem á vant-
ar á þessu ári. ■
FRamtíDaRBóK-
www.kbbanki.is
Draumur fermingarbarnsins getur or›i› a› veruleika me› a›sto› Framtí›arbókar.
Me› flví a› ávaxta fermingarpeningana á Framtí›arbók er lag›ur grunnur a› flví a› stórir draumar
geti or›i› a› veruleika í framtí›inni. Gjafakort fyrir Framtí›arbókina fást í öllum útibúum KB banka.
Láttu draumana rætast!
ÉG Á MÉR
DRAUM
Ver›trygg›ur sparireikningur, sem ber 6% vexti.
Innstæ›an ver›ur laus til úttektar vi› 18 ára aldur.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
1
1
8
4
5
•
s
ia
.i
s
ORKAN
Hafa ekki breytt slagorði sínu þrátt fyrir
tilmæli Samkeppnisstofnunar.
TROLLIÐ TEKIÐ
Stofnmælingar á gullkarfa gefa til kynna að stofninn sé enn á uppleið. Síðasti sterki stofn gullkarfa er frá 1990.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
Ð
AL
ST
EI
N
N
E
IN
AR
SS
O
N
SPRENGJUR Á VOGAHEIÐI
Alls hafa fundist 800 ósprungnar sprengjur
á Vogaheiði frá árinu 1986. Sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar telja víst að
þar sé enn að finna mikið af sprengjum.
M
YN
D
/L
H
G
-
D
AG
M
AR
S
IG
U
RÐ
AR
D
Ó
TT
IR