Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 23
Páskatilboð!
Toyota Land Cruiser 80 GX árg. ‘95 ek-
inn 236 þ. Turbo intercooler 38”, læst-
ur, sjálfsk., 3” púst og m.fl. Verð 2.590.
Uppl. í s. 862 5175 & 421 5175.
Kjósahreppur - Til sölu fallegt sumar-
hús (bjálkahús) á tveimur hæðum
með verönd og svölum. Tvö góð svefn-
herbegi, stofa, eldhús og baðherbergi.
S. 847 7510.
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 119 stk.
Keypt & selt 40 stk.
Þjónusta 47 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 18 stk.
Tómstundir & ferðir 15 stk.
Húsnæði 37 stk.
Atvinna 19 stk.
Tilkynningar 3 stk.
til London og Kaupmannahafnar
Tvisvar á dag
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 7. apríl,
98. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.23 13.30 20.38
Akureyri 6.03 13.14 20.28
Heimild: Almanak Háskólans
sólarupprás hádegi sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Suðuramerísk tónlist berst fram á stiga-
pallinn á fjórðu hæð í Brautarholti 4 og
þegar hurðinni er lokið upp blasa við börn
sem svífa um sal í léttum dansi. Ótrúlega
fallegt. Við erum stödd í Dansskóla Heið-
ars Ástvaldssonar sem hefur eflt fóta-
mennt Íslendinga í áratugi. Nokkrar
mömmur sitja til hliðar í salnum og ein
þeirra upplýsir að dansinn heiti cha cha.
Börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára.
Hreyfingar þeirra allra eru fjaðurmagnað-
ar og liðamót líkamans ósapart notuð.
Marta María Arnarsdóttir sjö ára og Guð-
mundur Gauti Sigurðarson á níunda ári eru
yngsta dansparið í salnum. Þau sýna þó
bæði fimi og öryggi á gólfinu. Bæði eru
búin að vera í dansnámi frá fjögurra ára
aldri og cha cha reynist vera uppáhalds-
dansinn. Skórnir vekja athygli, ekta dans-
skór enda fengnir að láni hjá skólanum.
Mörtu Maríu skór meira að segja með hæl-
um. „Ég er nýbyrjuð að nota þá og þeir eru
svolítið sleipir en maður venst því,“ segir
hún. Dansinn er aðaláhugamál beggja.
Guðmundur Gauti æfði þó fótbolta um
tíma. „Mér fannst það ekki gaman lengur
svo ég hætti,“ segir hann en Marta María
kveðst læra á fiðlu. Þau hafa tekið þátt
bæði í danssýningum og keppnum og geng-
ið vel. Marta María býst ekki við að leggja
dansinn fyrir sig þegar hún verður stór en
Guðmundur Gauti er volgur. „Mig langar
að verða dansari,“ viðurkennir hann.
Sjá síðu 2.
Heimsókn í dansskóla:
Cha cha
með tilbrigðum
matur@frettabladid.is
Súkkulaði flæðir út um allt á
flestum heimilum um páskana.
Fæstir þurfa að hafa áhyggjur af
geymslunni á súkkulaði, það klárast
yfirleitt svo fljótt en þeir sem þurfa
að geyma súkkulaði
um sinn ættu að
geyma það vel
innpakkað á
dimmum og
þurrum
stað.
Æskilegt
hitastig
er í kring-
um 18
gráður.
Súkkulaði tekur auðveldlega í sig
bragð af öðrum mat þannig að best
er að geyma það sem fjærst mat
sem lyktar mikið.
Matvöruverslanir eru opnar
á morgun, skírdag, eins og á
hverjum öðrum sunnudegi en á
föstudaginn langa eru flestar
verslanir lokaðar og því um að
gera að ljúka innkaupunum af á
morgun.
Óperulínan heitir ný lína af
sósu í glerkrukkum frá Vogabæ und-
ir vörumerkinu E. Finnsson. Heiti lín-
unnar er dregið af því að fimm
krónur af hverri seldri krukku renna
til Íslensku óperunnar. Þarna eru
meðal annars á ferðinni grillsósa
(barbeque), pasta- og spagettísósa,
pizzu- og
pastasósa og
samloku- og
kjúklinga-
sósa. Upp-
skriftabæk-
lingur þar
sem sósurn-
ar koma við
sögu liggur
víða frammi
í búðum og
fleiri upp-
skriftir eru á
vogabaer.is
Létt kota-
sæla er enn
fituminni teg-
und hins
sérstaka
osts, Kotasælu,
sem þó er fitulítil afurð. Létt kota-
sæla inniheldur einungis 1,5% fitu
en hún er framleidd úr undan-
rennu og mjólk. Kotasæla er að
ýmsu leyti frábrugðin öðrum ost-
um, bæði hvað varðar áferð og
notkun og minnir bragðið á rjóma,
til dæmis þegar hún er sett út í
súpur
Léttvín og bjór vilja margir
sjá í hillum matvöruverslana. Sam-
tök verslunar og þjónustu hafa nú í
annað sinn látið dreifa bæklingi
sem heitir „Má bjóða þér eitthvað
fleira?“ og fjallar um sölu á léttvíni
og bjór. Í bæklingnum er þess kraf-
ist að smásöluverslunum verði
heimilað að mæta kröfum neyt-
enda um sölu á þessum vörum.
Samtök verslunar og þjónustu gáfu
bæklinginn fyrst út árið 2002.
Ástæða útgáfunnar er vilji smásölu-
verslana til að bæta þjónustuna
með því að koma til móts við sífellt
vaxandi kröfur neytenda um að
geta keypt léttvín og bjór um leið
og matvöru og aðrar nauðsynjar. Í
bæklingnum er þess krafist að af-
numin verði einkaréttur ríkisins á
sölu léttvíns og bjórs. Þar eru ein-
nig færð rök fyrir því að
aukið frelsi í sölu
á léttvíni
og bjór
myndi
styrkja
stöðu lít-
illa versl-
ana á
landsbyggð-
inni og í
þéttbýli. Þess-
ar verslanir
gætu boðið
viðskiptavinum
sínum meiri og
betri þjónustu.
Guðmundur Gauti og Marta María
Suðuramerísk sveifla, Cha, cha.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ELDHÚSINU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA O.FL.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
AFS á Íslandi býður nú í fyrsta
skipti fjögurra vikna sumar-
dvöl í Danmörku fyrir ung-
menni á aldrinum 15–18 ára.
Tilgangurinn er að veita þátt-
takendum tækifæri til þjálfa
dönskukunnáttuna og að
kynnast danskri menningu. Þeir munu búa hjá dönskum
fósturfjölskyldum í Kaupmannahöfn eða Hróarskeldu,
fara í menningartengdar vettvangsheimsóknir og fá
fræðslu um norræna sögu og danskt samfélag nútímans.
Nemendurnir munu sækja danskan skóla í eina til tvær
vikur til að kynnast dönskum nemendum og dönsku skóla-
kerfi. Síðast en ekki síst gefst þeim tækifæri til að skoða
markverða ferðamannastaði í Kaupmannahöfn og ná-
grenni undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda frá AFS.
Dvölin er ætluð ungmennum frá Íslandi, Færeyjum og
Grænlandi og stendur frá 17. júlí til 14. ágúst. Umsóknar-
frestur er til 15. maí.
Nánari upplýsingar fást hjá AFS á Íslandi, s. 552 5450,
info-isl@afs.org og á heimasíðunni afs.is
Kaupmannahöfn
Íslenskum ungmennum gefst kostur
á sumardvöl þar á vegum AFS.
Sumardvöl í Danmörku:
Dönskukunnáttan
þjálfuð
Hvorki gnegur né rekur
á umhverfisverndarþingi
í Damaskus!
Bandaríkjamenn neita að
skrifa undir sáttmála
um losun kolvísýrins í
andrúmsloftið og
Guðfinna Olgeirsdóttir á
Hvammstanga neitar að
draga úr notkun hárúða
Öðruvísi páskaegg
BLS. 4