Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 34
7. apríl 2004 Miðvikudagur12
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á leyndum stað í Reykjavík.
Sjónarhorn
Páskasiðir eru margvíslegir og
eiga sér misdjúpar rætur
Vissir þú ...
... að orðið páskar er dregið af
hebreska orðinu pesach, sem not-
að er yfir páskahátíð gyðinga.
Fleiri þjóðir notast við skyld orð.
Páskar á frönsku eru paques, á
spænsku eru páskar pascua og á
ítölsku eru páskar pasqua. Orðið
easter sem enskumælandi þjóðir
nota yfir páska er dregið af nafni
saxnesku gyðjunnar eostre sem
var gyðja vorsins. Eostre er
sama gyðja og föníska gyðjan
astarte sem var gyðja tunglsins.
... að tunglið lá til grundvallar
dagatali flestra þjóða til forna.
Fræðimenn hafa margir sett
fram þá kenningu að tengsl á
milli tíðarhrings kvenna og
tunglmánaðar, hvorutveggja eru
28 dagar. Þrettán 28 daga mánuð-
ir eru 364 dagar sem er sá tími
sem tekur jörðina að snúast í
kringum jörðina sem kunnugt er.
... að tunglið kemur við sögu
þegar tímasetning páskanna er
reiknuð út en páskasunnudagur
er ávallt fyrsti sunnudagur eftir
fyrsta fulla tungl að loknum vor-
jafndægrum.
... að þegar kristnin breiddist
út þá runnu ýmsar heiðnar hátíð-
ir saman við hátíðir kristni.
Tímasetning páska féll vel að
vorblótum í heiðnum sið.
... að egg eru gamalt heiðið
tákn vorblótanna, tákn um nýtt
líf og vorkomu. Kristnin yfirtók
þetta tákn og eggið hefur orðið
eitt helsta tákn páskanna. Sá sið-
ur að skreyta egg hefur lengi
þekkst. Egg voru máluð og
skreytt og gefin sem gjafir á
páskum. Súkkulaðieggin eiga sér
mun styttri sögu, eða frá 19. öld.
Þau slógu í gegn á þeirri 20. og
fæst börn myndu sennilega sætta
sig við harðsoðið egg á
páskamorgni í dag.
Svipmynd
GRUNDARFJÖRÐUR: SJÁVARÞORP Á NORÐANVERÐU SNÆFELLSNESI
ÍBUAFJÖLDI: 843
BÆJARFJALL: Kirkjufell (463 metrar), sem danskir sjómenn kölluðu
Sukkertoppen fyrr á tíð.
NAFNARUGL: Bærinn var kallaður jöfnum höndum Grafarnes og
Grundarfjörður fram til 1965 þegar nafnið Grundarfjörður var valið í
atkvæðagreiðslu.
ÞEKKTASTI SONUR: Kalli Bjarni, sigurvegari í Idol-stjörnuleit.
BLÓMATÍMI: Í upphafi 19. aldar höfðu franskir sjómenn í
hundraðatali bækistöðvar á Grundarfirði og þar var bæði
franskt sjúkrahús, kirkja og prestur. Þessi tími varði í nærri heila öld.
AÐEINS FYRIR INNVÍGÐA: Nafn kvenfélagsins á staðnum er
„Gleym mér ei“.
páá