Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 36

Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 36
Veðurspáin fyrir páskana erágæt. Hæg vestlæg átt á morgun, snýst síðan í norðaustan en síðan verður hann suðlægur á laugardag og fram yfir páska. Við getum búist við að hitinn verði um og yfir 5 gráður hér í Reykjavík; eitthvað lægri á föstudaginn langa en jafnvel hærri um helg- ina. Eitthvað mun rigna á okkur – en hver getur kvartað yfir því? Það er rétt byrjaður apríl og brum komið á runnana. Þegar sólin nær að skína er vor – ef hitamælirinn er efins þá finnum við það á fiðr- ingnum í okkur sjálfum að við erum sloppin frá vetrinum (sem var varla nokkur vetur fremur en undanfarin ár). Ef vetur ætlar að minna á sig aftur verður það veikt og stutt; varla svo það taki því að fussa yfir því. Sólin kom upp fyrir klukkan hálf sjö í morgun. Ég heyrði það frá veðurfræð- ingi um daginn að allir undan- farnir sautján mánuðir hafi verið yfir meðaltali. Þótt það þyki góð- ur siður að hafa varann á og ekki fagna of snemma held ég að það sé svo komið að við getum fullyrt að það hefur hlýnað á ný eftir rúmlega þrjátíu ára kuldatíð. Við erum að sigla inn í hlýrri tíð – veðurfar sem er líkara því sem elstu menn muna frá 1930 og fram yfir 1960. Ég man ekki þessa tíð. En mig grunar að veðr- ið hafi verið betra þegar ég var í frumbernsku. Ég er ber að ofan á flestum myndum sem eru til af mér sem barni og ég trúi ekki að mamma hafi sent mig þannig út í garð í einhverjum kalsa. Sigurð- ur Þór Guðjónsson hefur skrifað langar greinar og lærðar um hvað veðrið var betra hér áður fyrr svo við þurfum ekki að deila um það. Og veðrið þarf ekki að batna mikið til að verða miklu betra. Ein gráða hljómar ekki sem mikið stökk en ef við smyrj- um henni á hvern dag erum við komin í annan heim; blíðari daga, lengri setur úti í garði á kvöldin, myndarlegri tré og kátari blóm – tilefni til að setjast á bekk eða labba niður í fjöru. Auðvitað eru öll veður góð ef við klæðum okk- ur rétt. En sum veður eru betri en önnur og stundum kalla þau á okkur – einkum á vorin. Hvað það vilja okkur er önnur saga. Einu sinni héldu menn að sólskinið vildi að við sveifluðum haka og ræktuðum nýjan skóg. Nú taka flestir því þannig að sólin vilji að við grillum úti. Eftir því sem við venjumst skárri tíð lesum við hugsanlega fleira úr þessum skil- boðum. Það hefur legið vor í lofti und- anfarna daga og vorsiðir pásk- anna eru skiljanlegri nú en þegar páskaliljurnar náðu ekki upp úr moldinni fyrr en eftir sumardag- inn fyrsta. Kannski hlýnar enn hjá okkur og páskarnir verða aftur vorhátíð og það hættir að snjóa á sumardaginn fyrsta. Hver veit? ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um hlýnandi veður. 24 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Vor um páska Það er oft skrítið hvernig er talaðum mat og matarvenjur Íslend- inga í dag. Allir eru of feitir, latir, þunglyndir, stressaðir; við fáum alla sjúkdóma sem hægt er að hugsa sér og tökum mest allra af geð-, svefn- og gleðilyfjum eða hvað þetta heitir nú allt saman. Hvernig er þetta eiginlega með hamingjusömustu þjóð heims? Elstir og hraustastir Ég veit ekki betur en Íslending- ar séu elstir og hraustastir allra í heiminum og vitið þið af hverju? Það eru ekki margir sem setja samansemmerki þarna á milli nema að hér er góður fisk- ur, hreint loft og gott vatn. En gleymum því ekki að þeir sem eru nú áttatíu ára og eldri voru ekki að hugsa um mataræðið á sín- um tíma heldur var bara borðaður hollur matur alla daga án þess að nokkur vissi af því, en því miður er búið að setja allt þetta á bannlista í dag sem þótti venjulegur heimilis- matur í þá daga og nú oftast kallað- ur „mömmumatur“. Á bannlista Hvaða matur var þetta? Þetta var vel saltur fiskur með hömsum og kartöflum, rúgbrauð með smjöri og feitum osti, spikfeitt kjöt með rjómasósu, kartöflum og grófu brauði. Þetta var heimareykt hangi- kjöt með uppstú og tilheyrandi. Vel saltað saltkjöt og baunir. Í kaffinu var ekki boðið upp á annað en heimabakstur, brauð og flatbrauð með smjöri og osti, kleinur og feitasta mjólkin drukkin með. Súrmatur með öllu því sem til- heyrir og margt fleira og ekki að þetta hafi aðeins verið borðað á tyllidögum, nei nei þetta var í öll mál. Ég hef ekki geð í mér að telja meira upp því ég og flestir eru komnir með hálfgerða velgju að lesa þetta, nema gamla fólkið, það slefar yfir þessu öllu saman. Já, svona verðum við gömul og hraust, en þegar farið er yfir nær- ingatöflur í dag er nánast allt þetta sem upp var talið komið á bannlista eða svo lélegt að við verðum komin undir græna torfu um fimmtugt. „Maturinn“ ekki vandamálið. Ég er ekki að segja að ég lifi á þessu fæði en það gerir pabbi minn og ég veit að ég mun sitja uppi með hann langt fram á tíræðisaldur, étandi brauðið ofan á smjörið og hálf drekka feitina með fiskinum og hann er enn að spyrja hvað þetta „græna“ er sem borið er fram með matnum. Ástæðan fyrir því hvernig er komið fyrir fólki í dag er ekki „maturinn“ sem við borðum, heldur allur skyndibitamaturinn og sjoppufæðið. Það voru ekki til skyndibitastað- ir hér áður fyrr, sjoppur og pizza- staðir voru ekki á hverju horni, og svo er það skrítið að alltaf er tilboð á því sem óhollast er. Þetta og svo miklu meira gerir það að verkum að flestir í dag eru of feitir eða illa á sig komnir, síðan setjast allir fyrir framan sjónvarpið og éta meira, svo fara allir á Atkinskúrinn og halda að hann geri eitthvað gagn í einn mánuð. Þvílík heimska. Meðalhófið er best Það er eitthvað að þegar fólki er ráðlagt að borða ekki brauð, mjólk- urmat, hvít hrísgrjón og sagt að allt grænmeti þurfi að vera lífrænt ræktað og meira segja eru kartöfl- urnar komnar í lægsta flokk hvað varðar næringu. Síðan á helst ekki að borða kjöt því það gæti verið einhver sjúkdómur sem fylgir því og svo framvegis. Finnst mér við komin aðeins út fyrir mörkin þar sem við viljum vera í okkar dag- lega lífi og gleymum því að meðal- hófið er alltaf best og það að setja sér langtíma markmið til að ná ár- angri; það skilar bestum árangri. ■ Í könnun á launum karla ogkvenna hjá Kópavogsbæ kom í ljós að konur í fullu starfi voru að jafnaði með 76% af heildarlaun- um karla og þær voru að jafnaði með tæplega 90% af dagvinnu- launum karlanna. Konur sem star- fa hjá Kópavogsbæ þurfa að hækka um rúman þriðjung í heild- arlaunum til að ná körlunum. Fram kemur að karlar fá mun hærri greiðslur að meðaltali fyrir yfirvinnu hjá bænum. Karlar fá 5–9% hærri laun en konur þegar tekið er tillit til vinnutíma, aldurs, starfsaldurs og starfsgreinar, þ.e. launamunur sem ekki verður skýrður með neinu öðru en kynferði. Þegar að- eins er miðað við dagvinnulaun er óskýrði munurinn 5,5% hjá öllum en án grunnskólakennara eru dag- vinnulaun kvenna 11% lægri en hjá körlum. Kópavogur betri en Reykja- vík Þegar Gunnar Birgisson, bæjar- fulltrúi sjálfstæðismanna, var spurður álits á niðurstöðum könn- unarinnar í Fréttablaðinu voru við- brögð hans að státa sig af því að út- koman hjá Kópavogsbæ væri betri en hjá öðrum sveitarfélögum. Hann nýtti tækifærið til að hnýta sérstaklega í Reykvíkinga og sagði að „Reykjavík væri ekki höfuðborg jafnréttis“. Jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur hefur gert athuga- semdir við samanburðinn í skýrsl- unni sem Gunnar vitnaði til og dró í efa sambærileika talnanna. Þær eru t.d. ekki allar frá sama ári og ólíkar forsendur liggi að baki þeim. Lægstu launin Samanburður tölfræðilegra upplýsinga getur vissulega verið fróðlegur og oft gagnlegur, en gæta þarf að upplýsingar sem ligg- ja til grundvallar séu sambærileg- ar. Haft var eftir Sigurði Geirdal bæjarstjóra að hann væri ánægður með stöðu jafnréttismála í Kópa- vogi eins og þau birtist í umræddri launakönnun. Í þessu sambandi er rétt að benda á að á sama bæjar- stjórnarfundi og við ræddum launakönnunina ítarlega komu fram svör við fyrirspurn Samfylk- ingarinnar um laun leiðbeinenda í leikskólum í Kópavogi og ná- grannasveitarfélögunum (frá leik- skólafulltrúa bæjarins). Sambærilegar tölur Þessar launatölur eru frá byrj- un ársins og eru sambærilegar. Þar kom fram að í öllum tilfellum eru leiðbeinendur í leikskólum í Kópavogi með lægri mánaðarlaun en leiðbeinendur sem starfa hjá nágrannasveitarfélögunum. Dæmi um launamuninn er að 25 ára leið- beinandi hjá Kópavogsbæ með stúdentspróf fær rúmar 105.000 kr. í byrjunarlaun, en um 118.000 kr. hjá Reykjavík. 45 ára stúdent fær rúmar 122.000 kr. hjá Kópa- vogi en rúmar 134.000 kr. í Garða- bæ. Laun hjá Kópavogsbæ eru 8–35.000 kr. lægri á mánuði en hjá því sveitarfélagi sem borgar hæstu launin, en munurinn er mis- munandi eftir aldri og menntun starfsfólks. Á ári getur því munað 60–420.000 kr. eftir því hjá hvaða sveitarfélagi unnið er í fullu starfi. Hjá Kópavogsbæ eru rúmlega 55% starfsfólks í leikskólum leið- beinendur og örar mannabreyt- ingar hafa verið meðal þessa hóps. Nú er unnið að undirbúningi viðhorfskönnunar meðal leiðbein- enda til starfsumhverfis og fleiri atriða er snerta störf þeirra, sem Samfylkingin lagði til að yrði gerð. Það hefur verið okkur mikið áhyggjuefni hve tíðar manna- breytingar hafa verið í leikskól- um bæjarins og launamálin hafa efalaust átt sinn þátt í því. Launamun verður að eyða Launamunur kynjanna er óþol- andi. Launamunur upp á 5–11% sem skýrist eingöngu með kyni segir okkur að konur og karlar sem vinna hjá Kópavogsbæ búa ekki við sömu launakjör. Launatölur um laun leiðbeinenda sýna þar að auki að starfsfólk hjá okkur er lægra launað en hjá nágrannasveitarfé- lögunum. Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróun launamála hjá bænum og kanna stöðuna reglulega eins og jafnréttisáætlun- in segir til um. Grípa verður til markvissra aðgerða nú þegar til að vinna bug á launamun kynjanna hjá Kópavogsbæ. ■ Einkarekinn her Eitt helsta vandamálið við einka- rekin her og öryggisfyrirtæki er hugmyndafræðin sem býr að baki þeim. Þetta sést greinilega þegar reynir á ábyrgð á störfum þeirra og hvernig megi koma lögum yfir þau eða starfsmenn þeirra. Í eðli sínu er það nefnilega ekki hlut- verk þeirra að vinna að stefnu Sameinuðu þjóðanna, Evrópu- sambandsins eða vestrænna ríkja heldur vinna þau fyrir pening. Fyrirtækin setja sér sjálf starfs- og siðareglur sem þau auglýsa svo að þau vinni eftir. KATRÍN HELGA HALLGRÍMSDÓTTIR Á DEIGLAN. COM Gætið ykkar Ástæða er til að gjalda varhug við ýmsum atriðum sem fram koma í frumvarpi dómsmálaráð- herra til breytinga á lögum um meðferð opinberra mála. Sem lög- manni, verjanda og varaþing- manni ber mér siðferðisleg og samfélagsleg skylda til að vara Alþingi við áhrifum þeirra breyt- inga sem hér eru lagðar til. Þær fela í sér enn frekari heimildir til handa lögreglu á kostnað sak- borninga og almennings og eru þvert á þá mannréttindaþróun sem hér hefur átt sér stað á und- anförnum árum og m.a. má sjá merki í lögum um meðferð opin- berra mála. Gætið ykkar. GUÐJÓN ÓLAFUR JÓNSSON Á HRIFLA.IS Glórulaus rekstur Það hefur verið vitað til fjölda ára að rekstur Ríkisútvarpsins er glórulaus með öllu og að rekstrar- form fyrirtækisins getur ekki gengið til lengdar. Þetta var end- anlega staðfest í vikunni í til- kynningu frá Ríkisútvarpinu. Þar kom fram að rekstrarhalli RÚV á síðasta ári hefðu numið um 314 milljónum króna. Auglýsinga- og kostunartekjur náðu ekki áætlun á árinu 2003 og fram kom að rekstur flestra deilda hafi verið í allgóðu samræmi við þá ramma sem settir voru. Með þessu orða- lagi er ljóst að reksturinn stendur ekki undir væntingum og er að flestu leyti á algjörum villigötum. Fram kemur í fyrrnefndri yfirlýs- ingu að vaxandi byrðar stofnunar- innar megi rekja að mestu leyti til lífeyrisskuldbindinga og kostn- aðar vegna rekstrar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. Það blasir við þegar tölur úr rekstrinum eru skoðaðar að rekstrarhallinn er ekki viðunandi og breytinga þörf á rekstrarfyrirkomulaginu. STEFÁN FRIÐRIK STEFÁNSSON Á STEBBIFR.COM Launamunur hjá Kópavogsbæ ■ Af netinu ■ Ástæðan fyrir því hvernig er komið fyrir fólki í dag er ekki „maturinn“ sem við borð- um, heldur allur skyndibita- maturinn og sjoppufæðið Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. NÝ SENDING TVÍSKIPTIR KJÓLAR Umræðan JÓI FEL ■ skrifar um matarvenjur Íslendinga. Óhollt hvað? SKYNDIBITINN Of mikið af sjoppu- fæði er ekki hollt. GUNNAR BIRGISSON BÆJARFULLTRÚI Sigrún Jónsdóttir er ósátt við túlkun hans á niðurstöðum könnunar um launamun kynjanna hjá Kópavogsbæ. Umræðan SIGRÚN JÓNSDÓTTIR ■ bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að grípa verði til markvissra aðgerða til að vinna bug á launamun kynjanna hjá Kópavogsbæ.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.