Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 37
25MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004
Kringlunni 588 7669 www.sonycenter.is
MHC-RG110
Sony hljómtækjasamstæða
Magnari 2 x60W RMS
Geislaspilari fyrir 3 diska
3 Way hátalarar
Fermingartilboð 28.950,-
CMT-GP5
Sony hljómtækjasamstæða
Magnari 2x30W RMS
Segulband með Auto-Reverse
2 Way hátalarar
Fermingartilboð kr. 29.950,-
CMT-CPX1
Sony hljómtækjasamstæða
Magnari 2x70W RMS
S-Master Digital magnari
2 Way hátalarar
Fermingartilboð kr. 34.950,-
Fermingargjöfin
frá Sony
DAV-SA30
Sony Heimabíó með DVD
Magnari 5x44W RMS
Bassahátalari 80W RMS
Útvarp FM/AM RDS
Fermingartilboð kr. 64.950.-
Í Fréttablaðið 22. mars sl. skrif-aði ég grein um landskemmda-
og landbúnaðarhugsjónir Margrét-
ar okkar á Skaganum. Ekki vegna
þess að ég telji árangursríkt að
tala við hana, held-
ur vegna þess að ég
hefi í blöðunum lít-
ilsháttar orðið var
við lofsyrði og
hvatningu til henn-
ar. Til virðist fólk
sem telur málflutn-
ing hennar góðan
og nefnir djörfung.
Margur hefur
áhuga á því, sem
hann þekkir
minnst.
„Vorkunn er heimskum manni“
Margrét dregur meiningu
sína saman í nokkra punkta í
greininni 24. mars. Hún segir
mig ekki kunna að „lesa landið“
né nenna að lesa sérfræðirit.
Mér þykir hún „lesa landið“
e.t.v. með vitlausum gleraugum
og/eða snúa þeim öfugt. „Gam-
an að rífast“ vitnaði ég og geri
hér með að lögmáli. Margréti
þótti „sorglegt“. Sorg olli mér
það eitt í grein minni (óvilja-
verk í vinnslu), að einar
gæsalappir rötuðu á rangan
stað og mátti af þeim ætla að
mín eigin meining um ákveðna
matreiðslu og kryddun lamba-
kjöts væru orð Margrétar. Orð
hennar voru „namm, namm“,
sennilega í háði.
Ég hefi ekki lesið allt, sem
„Gaman að rífast“ lögmálið hef-
ur fært fram í viðræðum Mar-
grétar og bænda. Eitt held ég
þó að sé ónefnt. Hún fullyrðir
að fólk verði „feitt, feitt, feitt“
af kjötáti. Þvættingur! Rógur
heimskunnar!
Meðan landbúnaðarafurðirn-
ar íslensku voru aðalfæða þjóð-
arinnar var hún ekki til lýta
feit. Það er hún hins vegar
óðum að verða nú og það svo
sýnist mér, að sjái maður fjórar
manneskjur saman þá séu þrjár
spikfeitar. Svo er nú það allt
niður í hálfvaxna krakka.
Fæðuvalið er víst breytt og sitt-
hvað fleira. Íslenskt alþýðu-
fæði, eins og það var, er hollt.
Langlífi alltaf til
Langlífi einstaklinga var
alltaf til, ekki síður en nú.
Hinsvegar hefur meðalaldur
hækkað, því veldur að þekking
og vísindi ráða nú við margan
kvillann sem áður drap fólkið.
„Þá var ekki verið að halda
lífinu í hverjum smákrakka ein-
sog nú er farið að verða,“ sagði
áttræður karl í minningu æsku-
daga. Sá var fæddur um 1870.
Gott er að þetta er breytt, en
böggull fylgir skammrifi.
Kaldranaleg þversögn kann að
vera ef þekkingin og getan til
að halda lífi í fólki veldur
arfgengri óhreysti og úrkynj-
un.
Ég efa að Íslensk erfða-
greining sporni við því.
Til að skera úr um hvað rétt
er eða rangt er svo gjarna
notaður dómstóllinn: „Gaman
að rífast“. Um það mun ég
fjalla í annarri grein.■
Trúmál og kvalalosti
Undirritaður asnaðist til að fara
í bíó um helgina og sjá nýjustu
mynd Mel Gibson; The Passion
of the Christ. Og þótt maður
héldi að maður þyldi ýmislegt
þá verður að viðurkennast að
eftir hundruðustu húðstrýking-
una þótti manni vera komið
nóg. Greinilegt er að kvik-
myndamógúlar Hollywood hafa
fundið í Biblíusögunum eitthvað
sem getur dregið fólk í bíó;
lægstu hvata mannskepnunnar,
pyntingar og písl. Með þessu ná
þeir bæði til þeirra sem hafa
áhuga á trúmálum og þeirra
sem eru haldnir kvalalosta.
JÓN EINARSSON Á MADDAMAN.IS
Vegið að rótum jafnréttis
Það er mat Samfylkingarinnar
að skólagjöld á grunnnám til að
fjármagna rekstur opinberra
háskóla vegi illilega að rótum
jafnréttis til náms og þau verði
til þess að hið opinbera dragi
enn frekar úr framlögum til
menntamála. Stjórnvöld muni
vísa í heimild til álagningar
skólagjalda skorti skólana fé.
Allt verði þetta til þess að
veikja verulega íslenskt há-
skólanám og leggja af jafnrétti
til náms. Háskólinn mundi
standa veikari á eftir og sam-
keppnisstaða hans yrði ennþá
verri. Skólagjöld á grunnnám
draga úr sókn í háskólanám og
mismuna eftir efnalegri stöðu
námsmanna og aðstandenda
þeirra. Starf alhliða fræða- og
rannsóknarháskóla þjóðarinnar
væri í uppnámi.
BJÖRGVIN SIGURÐSSON Á BJORGVIN.IS
Fáfræðirökleiðslan
Fáfræðirökleiðslan (argument-
um ad ignorantiam) er rökvilla
sem kemur upp þegar því er
haldið fram að fullyrðing sé
sönn vegna þess að það hefur
ekki verið sannað að hún sé
ósönn eða að eitthvað sé ósatt
vegna þess að það hefur ekki
verið sannað að það sé satt.
MATTI Á. Á VANTRU.IS
Auka þarf vald forsetans
Auka völd þarf aðila sem kosnir
eru beinni kosningu. Í stjórnar-
skránni eru forseta Íslands t.d.
tryggð ákveðin formleg völd
sem eiga að stemma stigu við
ofríki ráðherra. Kór þeirra sem
amast við valddreifingu í sam-
félaginu hefur sett sig mjög upp
á móti þessu og kallar „aðför að
þingræðinu“. Í þeim ummælum
birtist þó ekki annað en mið-
stýringarárátta og valdasýki
ráðherra sem vilja hafa alla
þræði valds í eigin hendi. Til að
efla lýðræðið í landi væri þvert
á móti ráð að auka völd forseta
Íslands sem hefur fengið skýrt
umboð frá þjóðinni til að beita
þeim völdum í samræmi við
stjórnarskrá Íslands. Með öðr-
um orðum þarf að standa vörð
um stjórnarskrána og tryggja að
forsetavaldi sé beitt í samræmi
við hana, en ekki draga tenn-
urnar úr embættinu. Slíkt væri
beinlínis óvirðing við lýðræði.
SVERRIR JAKOBSSON Á MURINN.IS
Andsvar
JÓHANNES GEIR GÍSLASON
■ svarar Margréti Jónsdóttur.
■
„Þá var ekki
verið að halda
lífinu í hverjum
smákrakka
einsog nú er
farið að
verða,“ sagði
áttræður karl í
minningu
æskudaga. Sá
var fæddur um
1870.
■ Af netinu
Að „lesa landið“ með vitlausum gleraugum