Fréttablaðið - 07.04.2004, Page 40
28 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Afmæli
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Blóðug átök brutust út á milliuppreisnarmanna af ættbálki
Tútsa og stjórnarhermanna Hútúa
í Rúanda daginn eftir að forseti
landsins, Juvenal Habyarimana,
fórst þegar flugvél hans var skot-
inn niður með flugskeyti. Með
Habyarimana í för var Cyprien
Ntaryamira, forseti Búrúndí, en
þeir voru á heimleið frá friðarráð-
stefnu í Tansaníu.
Ættbálkarnir höfðu oft tekist á
áður. Rúanda fékk sjálfstæði frá
Belgíu árið 1962 en þremur árum
áður höfðu 100.000 manns fallið í
uppreisn Hútúa gegn Tútsum.
Þeir síðarnefndu voru í miklum
minnihluta í landinu en höfðu und-
irokað Hútúa í aldaraðir. Habya-
rimana komst til valda árið 1973
og þótti hinn mesti harðstjóri.
Hann virti réttindi minnihlutans
að vettugi og bannaði alla stjórn-
arandstöðu í landinu. Eftir fráfall
hans blossuðu átökin upp í höfuð-
borginni Kigali og sólarhring síð-
ar lágu hundruð manns í valnum,
þar á meðal Agathe Uwilingiyim-
ana, forsætisráðherra landsins, og
Joseph Kavaruganda, forseti
hæstaréttar.
Átökin breyddust síðan út um
allt land og mögnuðust upp í þjóð-
armorð. Stjórnarhermenn Hútú
manna þurftu að lokum að hörfa
yfir til nágrannaríkjanna en á
undanhaldinu myrtu þeir um
hálfa milljón óbreyttra borgara úr
röðum Tútsa. Þessi fjöldamorð
voru átakanlega ruddaleg en mik-
ill fjöldi var barinn í hel með kylf-
um og sveðjum. ■
Jón Halldór Helgason, 107 Egret Drive,
Jupiter, Flórida, lést sunnudaginn 4.
apríl.
Margrét A. Kristófersdóttir frá Kúlu-
dalsá, Höfðagrund 8, Akranesi, lést
föstudaginn 2. apríl.
Oddur Ágúst Benediktsson, frá Hvalsá í
Steingrímsfirði, lést föstudaginn 2. apríl.
Róbert Tómasson frá Færeyjum, Hring-
braut 57, Keflavík, er látinn. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Sigrún Júlíusdóttir lést sunnudaginn
28. mars. Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
Sigurður Kristinsson frá Hafranesi, Eyja-
bakka 2, Reykjavík, lést mánudaginn 5.
apríl.
Skarphéðinn Össurarson, Kleppsvegi 2,
Reykjavík, lést mánudaginn 5. apríl.
11.00 Margrét Guðbrandsdóttir og
Guðmundur Einar Sveinsson,
Furugrund 42, Akranesi, verða
jarðsungin frá Akraneskirkju.
13.30 Björn Hallgrímur Gíslason verð-
ur jarðsunginn frá Langholtskirkju.
13.30 Ragnar Björnsson húsgagna-
bólstrari, Ölduslóð 26, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnar-
fjarðarkirkju.
13.30 Sigmundur Viggósson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
14.00 Eggert Thorberg Björnsson skip-
stjóri, frá Arney, Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkis-
hólmskirkju.
14.00 Einar Gunnar Þórhallsson, Vog-
um I, Mývatnssveit, verður jarð-
sunginn frá Reykjahlíðarkirkju.
14.00 Helga Elísdóttir frá Gilsbakka,
Hellissandi, verður jarðsungin frá
Ingjaldshólskirkju.
14.00 Helga Jónsdóttir, Kjalardal, verð-
ur jarðsungin frá Akraneskirkju.
14.00 Sigríður Guðjónsdóttir, Lindar-
götu 18, verður jarðsungin frá
Siglufjarðarkirkju.
15.00 Ólafur Halldórsson, Breiðvangi
63, Hafnarfirði, verður jarðsung-
inn frá Víðistaðakirkju.
Einar Bragi skáld er 83 ára.
Arngrímur Jóhannsson flugstjóri er 64
ára.
Magnús Þór Jónsson, sem ber
listamannsnafnið Megas, er 59 ára.
Ég byrja morguninn á skipu-lagsnefndarfundi,“ segir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi og formaður skipu-
lagsnefndar Reykjavíkurborgar,
sem er 39 ára í dag. „Ég þarf svo
að fara í kistulagningu. Það er nú
bara lífsins gangur að sumir eiga
afmæli þegar aðrir falla frá. Ann-
ars á ég von á að dagurinn verði
bara rólegur og að maðurinn minn
eldi eitthvað huggulegt. Hann er
vanur því.“
Líkt og hjá fjölmörgum öðrum
er páskafríið að hefjast hjá Stein-
unni í dag og segist hún ætla að
reyna að vera heima og gera ekki
neitt. „Það hafa verið mörg stór
verkefni í skipulagsmálum sem
ég hef þurft að sinna og það verð-
ur því ágætt að komast í örlítið
frí. Stundum hef ég farið norður á
skíði í páskafríinu en nú vil ég
helst bara vera heima. Kannski
þvæ ég gluggana.“
Hún er vön því að eiga afmæli
í kringum páska og segir suma
páskadaga betri til afmælishalda
en aðra. „Ég man eftir að hafa átt
afmæli sem barn á föstudaginn
langa. Það var haldin afmælis-
veisla en þetta var dimmur og
drungalegur dagur og helst minn-
isstæður fyrir þær sakir.“
Pólitíkin hefur einnig blandast
skemmtilega við afmælisdaga
Steinunnar, því daginn eftir þrí-
tugsafmælið hennar árið 1995 var
kosið til Alþingis. „Ég hélt upp á
afmælið á föstudagskvöldið fyrir
kosningar en veislan leystist upp í
einhverju pólitísku karpi. Það
endaði með því ég þurfti að henda
einhverjum gestum út þar sem
þeir voru orðnir nokkuð grófir
gagnvart vinum mínum sem
höfðu aðrar skoðanir en þeir. Í
þessum sömu kosningum var
Kvennalistinn einnig að bjóða
fram með lágmarksfylgi og það
sat svolítið í veislugestum í hvað
stefndi.“ Á næsta ári verður hún
svo fertug og er þegar farin að
leggja drög að því að gera eitt-
hvað skemmtilegt. Miðað við stöð-
una í dag er ekki útlit fyrir að
kosningatitringur muni skipta þar
sköpum. „Í afmælum á ég ennþá
toppana eftir, bæði fertugs- og
fimmtugsafmælið,“ segir hún og
brosir blítt. ■
Afmæli
STEINUNN VALDÍS ÓSKARS-
DÓTTIR ER 39 ÁRA Í DAG
■ Farin að skipuleggja fertugsafmælið.
VICTORIA ADAMS BECKHAM
Snobbkryddið fyrrverandi er 29 ára í dag.
7. apríl
■ Þetta gerðist
30 Jesús Kristur
er krossfestur.
1614 Listamaðurinn
El Greco deyr.
1827 Fyrstu eldspýt-
urnar eru seld-
ar á Englandi.
1933 Bjór og vín verða aftur lögleg
drykkjarföng í Bandaríkjunum og
þar með lýkur 13 ára áfengis-
banni.
1947 Bílaframleiðandinn Henry Ford
deyr, 83 að aldri.
1959 Raforka er framleidd í fyrsta sinn
með því að kljúfa atóm.
1963 Kylfingurinn Jack Nicklaus verður
yngsti maðurinn til að vinna
Masters-golfmótið, 23 ára gam-
all.
JUVENAL HABYARIMANA
Blóðug borgarastyrjöld blossaði upp í Rú-
anda eftir að forsetinn fórst í flugskeyta-
árás á flugvél sem hann ferðaðist með.
RÚANDA
■ Blóðug átök brutust út í Afríkuríkinu
Rúanda á þessum degi árið 1994 en for-
seti landsins fórst í flugslysi daginn áður.
5. apríl
1994
Rólegt og huggulegt
heima um páska
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Þrítugsafmælið leystist upp í pólitísku þrasi en hún hélt upp á það daginn fyrir alþingiskosningarnar 1995.
Blóðbað í Rúanda
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Það er langur aðdragandi aðþessu,“ segir Jón Sölvi Ólafs-
son matreiðslumaður, sem er að
skipuleggja veislu í Nesjaskóla
á Höfn í Hornafirði á laugardag-
inn 10. apríl til styrktar fötluð-
um. „Allir sem koma að þessu
eru að gefa vinnuna sína, þannig
að allur ágóði rennur til málefna
fatlaðra á Höfn og nágrenni að
þessu sinni. Það er ráðgert að
kaupa lyftustól í sundlaugina á
Höfn fyrir söfnunarféð til að
auðvelda mjög aðgengi fatlaðra
að lauginni.“
Forsaga málsins er að Jón á
þrjá bræður sem eru hreyfi-
hamlaðir og því eru málefni
fatlaðra honum mjög ofarlega í
huga. „Ég tók þessa hugmynd
sem er búin að vera lengi í koll-
inum og setti hana á blað og hún
varð bara svona gríðarlega stór.
Við stefnum að því að halda aðra
styrktarveislu að ári og þá ein-
hvers staðar annars staðar.
Ágóðinn af þeirri veislu mun þá
renna til málefna fatlaðra í því
sveitarfélagi sem veislan verð-
ur. Þetta er í fyrsta skipti sem
styrktarveisla sem þessi er
haldin hér á landi.“
Veislan verður sex rétta
kvöldverður sem er matreiddur
og framreiddur af fagfólki og
verður snæddur undir ljúfri
píanótónlist. Fyrir þá sem vilja
styrkja framtakið en komast
ekki til Hafnar í Hornafirði um
páskana er hægt að leggja inn á
reikning 1147-26-100404 í Spari-
sjóði Hornafjarðar og nágrenn-
is, kennitala: 640491-1249. ■
JÓN SÖLVI ÓLAFSSON
Heldur fyrstu styrktarveisluna sína til
styrktar málefna fatlaðra á Höfn í
Hornafirði laugardaginn 10. apríl.
Allar upplýsingar um veisluna má
finna á www.kokkur.is
Styrktarveisla
JÓN SÖLVI ÓLAFSSON
■ Heldur veislu til styrktar fötluðum.
Fyrsta styrktarveislan