Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 41
29MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004
Þrjátíu manns hafa nú þegarskráð sig í undankeppni frönsku
spurningakeppninnar Questions
pour un Champion, sem haldin
verður í húsakynnum Alliance
française í kvöld. Þar verða valdir
fjórir sigurvegarar sem taka þátt í
keppninni úti í Frakklandi vikuna 1.
til 8. maí næstkomandi.
„Þetta er einn vinsælasti sjón-
varpsþátturinn í Frakklandi, og hef-
ur verið í gangi síðan 1988,“ segir
Olivier Dintinger, framkvæmda-
stjóri Alliance française í Reykja-
vík.
Íslendingarnir fjórir taka þátt í
sérstakri alþjóðlegri útgáfu af þess-
um vinsæla spurningaþætti, þar
sem att er kappi við keppendur frá
níu öðrum löndum: Kamerún, Kína,
Stóra-Bretlandi, Gvatemala, Ung-
verjalandi, Ítalíu, Nýja-Sjálandi,
Óman og Túnis.
Íslendingarnir fjórir taka fyrst
þátt í forkeppni úti, þar sem þeir
keppa sín á milli. Sigurvegarinn úr
þeirri keppni tekur síðan þátt í
þætti þar sem hann mætir keppend-
um frá hinum löndunum.
„Við vonumst til þess að mun
fleiri mæti í kvöld en þeir þrjátíu
sem eru búnir að skrá sig. Þetta er
opið öllum íslenskum ríkisborgur-
um sem eru orðnir átján ára.“
Eina skilyrðið er góð frönsku-
kunnátta enda fer keppnin fram á
frönsku. Þetta er í annað sinn sem
Íslendingum er boðið að taka þátt í
keppninni.
„Þetta var rosalega gaman,“ seg-
ir Guðrún Norðfjörð, sem var einn
keppendanna síðast. „Maður verður
að vera ansi sleipur í frönskunni, en
þetta var skemmtileg reynsla og vel
að öllu staðið. Það er allt borgað
undir mann og við fórum í skoðun-
arferðir bæði í París og aðeins fyrir
utan París.“ ■
Spurt og svarað í París
HAFSTEINN VIÐAR HAFSTEINSSON
Var í sigurliði Verslunarskólans í Gettu
betur. Urgur var í stuðningsmönnum Borg-
hyltinga en Stefán Pálsson, dómari og
spurningahöfundur, segir Versló hafa
unnið verðskuldað.
Hver?
18 ára nemandi í Verslunarskóla Íslands,
í 5. bekk á hagfræðibraut.
Hvar?
Heima hjá mér, kominn í páskafrí.
Hvaðan?
Héðan úr Kópavogi en eflaust ættaður
einhvers staðar annars staðar að,
kannski eitthvað að vestan.
Hvað?
Ég hef gaman af fótbolta, að lesa góðar
bækur og vera með vinum mínum, bara
svona venjulegur unglingur. Sérsvið mitt
í Gettu betur var landafræði, Íslandssaga
og ýmis minni svið. Annars vorum við
ekkert að skipta þessu mikið þannig. Af
minni sviðum hafði ég mjög gaman af
goðafræðinni og las mjög mikið um
fiska og fugla.
Hvernig?
Þetta er bara lestur, lestur og meiri
lestur og svo þjappa sér saman við fé-
lagana. Ég hefði ekki getað gert þetta
án þeirra.
Hvers vegna?
Þetta er bara gaman. Það er eina rétta
svarið við því. Ég var í fyrra og þurfti ekki
að fara í gegnum neina forkeppni, fór í
gegnum það á fyrsta ári.
Hvenær?
Á næsta ári. Að minnsta kosti mun ég
gera tilraun til að verja titilinn.
■ Persónan
VONAST EFTIR SEM FLESTUM
ÞÁTTTAKENDUM
Olivier Dintinger, framkvæmda-
stjóri Alliance française, ásamt
tveimur dómurum keppninnar.
FRANCIS FORD COPPOLA
Kvikmyndaleikstjórinn góðkunni er 65 ára í
dag. Hann snæddi afmæliskvöldverð á
Humarhúsinu í Reykjavík á laugardaginn.
Spurningakeppni
■ QUESTIONS POUR UN CHAMPION
Í kvöld klukkan átta verður undankeppni í
húsnæði Alliance française fyrir spurn-
ingakeppni frönsku sjónvarpsstöðvarinnar
France 3. Fjórir keppendur verða valdir frá
Íslandi til þess að taka þátt í keppninni
vikuna 1. – 8. maí næstkomandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M