Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Bakþankar
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
Vísdómur á
tepakka
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
VERTU fiAR SEM
FJÖRI‹ ER!
Fylgstu me› dagskránni
WWW.NORDUR.IS
Allir gera mistök. Sumir meiri ogoftar en aðrir. Þannig er það.
Þeir eru til sem virðast aldrei gera
neitt rangt. Ekki svo sjáist. Allir
þekkja fólk sem er alltaf strokið og
fínt, innan sem utan. Veit um mann
sem blótar aldrei. Hann var spurður
hvers vegna og svaraði að það væri
óþarfi þar sem íslenskan sé svo auð-
ug að vandræðalaust sé að finna
falleg orð sem eigi betur við en ragn
og blót. Svo eru aðrir sem geta ekki
sagt setningu án þess að bæði blóta
og jafnvel hnýta í annað fólk.
MISTÖK eru svo allt annað. Þeir
sem aldrei verður neitt á, svo aðrir
sjái eða viti, eru oft öfundaðir. Einn
var svo óheppinn, einmitt þegar
hann stóð frammi fyrir stórri
ákvörðun, að lesa á tepakkann þegar
hann sötraði tesopann: „Þeir sem
aldrei taka áhættu vinna ekki sigra“.
Hann tók þetta sem tákn um að hann
ætti að láta slag standa. Það var ekki
að sökum að spyrja. Áralöng barátta
vegna rangrar ákvörðunar bíður
mannsins. Af því má læra að það
sem framleiðendur tepakka kalla vís-
dóm er ekki til að taka mark á og alls
ekki má taka því sem tákni sem beri
að hlýða.
MISTÖK geta líka verið sakleysis-
leg. Svo sem að fara í rangan strætó
eða sokka sinn af hvorri tegundinni.
Í heimi fjarstýringa og þráðlausra
síma getur það hent að fólk fari að
heiman með vasann útroðinn af fjar-
stýringum í stað síma. Einn fór með
þráðlausa heimilissímann í stað far-
símans. Konan átti von á áríðandi
símtali og þegar síminn loks hringdi
gat hún ekki svarað þar sem hús-
bóndinn var úti með símtólið í vasan-
um.
MISTÖK getur verið erfitt að taka
til baka. Blaðamönnum getur orðið
á. Gert mistök sem eru brosleg. Sá
sem þetta skrifar skrifaði einu sinni
frétt um slagsmál í miðborginni.
Fyrirsögnin var skemmtileg: „Slags-
mál við Reykjavíkurapótek“. Annar
átti þó betri og skemmtilegri fyrir-
sögn í sorglegu máli, en manni hafði
verið ráðinn bani og lögregla var að
rannsaka málið af alefli. Fjórir
menn höfðu verið í haldi en þeim
síðan sleppt. Fyrirsögnin var svona:
„Fjórir látnir lausir að lokinni
krufningu“.