Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 24
Sigling út í Papey hefur verið vinsæl afþreying meðal ferðamanna síð-
ustu ár. Hún tekur fjóra tíma frá því haldið er úr höfn á Djúpavogi þar
til lagst er þar að bryggju á ný. Sögufróður maður er með í för og miðl-
ar fróðleik. Lagt er upp kl. 13 alla daga. Fyrirtækið Papeyjarferðir býður
líka upp á styttri ferðir, sjóstangaveiði og fugla- og selaskoðun.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til Salou
17. júní
frá kr. 29.995
Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spáni,
einungis um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og
fólk á öllum aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður
Spánar, gott úrval veitingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega
kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd. Bókaðu núna og festu þér
Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðu svo að vita hvar þú
gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl.
Verð kr. 29.995 á mann
M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið
flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
Verð kr. 39.890 á mann
M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug,
gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
Brekkugötu 27a
sími: 461 2500 • gsm: 895 0625 • fax: 461 2502
600 Akureyri • akurinn@hotmail.com
JÚNÍ TILBOÐ
Gistiheimilið Akur Inn
3 nætur á 16.800
2 manna herbergi
Uppáhaldsborgin:
Ómótstæðileg og
falleg Þórshöfn
„Uppáhaldsborgin mín er Þórs-
höfn í Færeyjum. Það er eina
borgin sem hefur komið mér gjör-
samlega í opna skjöldu,“ segir
Helga Haraldsdóttir, skrifstofu-
stjóri í samgönguráðuneytinu.
„Það er að segja ef það er hægt að
kalla Þórshöfn borg, það búa
þarna 15.000 manns,“ bætir hún
við hlæjandi. „En þetta er nú samt
höfuðborg.“
Helga, sem hefur ferðast um
víða veröld, segir margar ástæður
fyrir ást sinni á Þórshöfn. „Það er
nú í fyrsta lagi svo fljótlegt að
komast þangað, en þar fyrir utan
er þetta yndislegur, lítill bær. Fær-
eyingar hafa passað ofboðslega vel
upp á gömlu húsin sín og staðið sig
mun betur en við. Gamli bærinn er
svo heillegur og fallegur og það
sem þeir byggja nýtt er hvort
tveggja í stíl við það sem er fyrir
og svo nýjar tilraunir í arkitektúr,
sem er rosalega flott. Svo eru nátt-
úrlega mjög góðir veitingastaðir
þarna, miklu fleiri og fjölbreyttari
en ég átti von á, og smart búðir!“
Helga ber Færeyingum vel
söguna og finnst þeir bara yndis-
legir. „Fjörugir og skemmtilegir
og finnst gaman að syngja og
dansa. Það er sko ekki erfitt að
blanda geði við þá.“
Hún segir ekki fara milli mála
að dönsk áhrif séu sterk í Færeyj-
um. „En það er svo ótal margt
merkilegt við Færeyingana, þeir
eiga til dæmis frábæra listamenn,
málararnir þeirra mála mjög
óvenjuleg og sterk verk og lista-
safnið í Þórshöfn er mjög
skemmtilegt. Svo má ekki gleyma
að frá Þórshöfn er auðvelt að
komast um allar eyjarnar, sam-
göngur eru gríðarlega góðar og
allt svo óvenjulegt og spennandi.“
Helga talar ekki færeysku þó
henni takist að skilja heimamenn
og hefur aldrei verið á Ólafsvöku.
„Það er synd og skömm,“ segir
hún, „og engin spurning að úr því
verður bætt fyrr en seinna.“
edda@frettabladid.is
Helga Haraldsdóttir hélt að Þórshöfn væri ferlega sveitó, en upplifði
hana svo alls ekki þannig. Nú er Þórshöfn uppáhaldsborg hennar.
Beint leiguflug
til München
Nú í haust býður ferðaskrifstofan
Terra Nova upp á beint leiguflug til
München í Þýskalandi. München er
höfuðstaður Bæjaralands, stærsta
fylkis Þýskalands, og er nóg um að
vera þar og ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. Ýmsar fræðandi
kynnisferðir verða í boði um borgina
og nágrenni með íslenskum farar-
stjórum hjá Terra Nova. Nánari upp-
lýsingar er að finna á terranova.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Til þess að ná góðum tökum á tungumáli er nauðsynlegt að dveljast í því landi
þar sem tungumálið er talað. Stúdentaferðir eru í samstarfi við málaskóla um
allan heim og bjóða þeir nám jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
Málaskólar eru fyrir fólk á öllum aldri. Sérstök námskeið í boði fyrir 13 - 16 ára.
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?