Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 48
36 3. júní 2004 FIMMTUDAGUR
KUERTEN GRETTINN
Brasilíski tenniskappinn Gustavo Kuerten
grettir sig hér eftir tap gegn Argentínu-
manninum David Nalbandian í 8 liða úrsli-
tum Opna franska mótsins í tennis.
TENNIS
Vill sjá meiri samvinnu hjá Everton og Liverpool:
Með sama heimavöll
FÓTBOLTI Trevor Birch, nýr fram-
kvæmdastjóri enska úrvalsdeild-
arliðsins Everton, segir að félagið
þurfi að deila heimavelli með ná-
grönnunum úr Liverpool ætli fé-
lagið sér að komast aftur í hóp
bestu knattspyrnuliða Englands
en liðið hefur átt í basli undan-
farin ár og oftar en ekki verið í
neðri hluta deildarinnar.
Fyrrnefndur Birch trúir því að
félagið þurfi að brjóta á bak aftur
112 ára hefð og yfirgefa Goodison
Park eigi það að breytast en völl-
urinn tekur aðeins 40 þúsund
manns. Það þykir Birch ekki næg-
anlegt til að keppa við lið eins og
Manchester United, Arsenal,
Chelsea og svo auðvitað nágrann-
ana og erkifjendurnar í Liverpool.
Borgaryfirvöld í Liverpool
hafa tekið vel í að setja peninga í
nýjan völl fyrir bæði liðin en
Liverpool er þegar komið vel af
stað í því byggja nýjan leikvang
sem á að vera tilbúinn 2006.
Everton lék á Anfield á árunum
í kringum 1880 en flutti sig yfir á
Goodison Park 1892 eftir rifildi
við landeigendur. Umræddir land-
eigendur brugðu þá á það ráð að
stofna nýtt félag, Liverpool.
Það má því sjá að allt frá fyrs-
ta degi hafa félögin skipað sér í
andstæðar fylkingar en nú er að
sjá hvort þau sameinist í framtíð-
inni á nýjum glæsilegum leik-
vangi. ■
Varinn fyrir
Charlotte Bobcats
Staða Jóns Arnórs hjá Dallas Mavericks virðist traust þar sem hann fer
ekki í pottinn sem nýja liðið í NBA-deildinni getur valið sér leikmenn úr.
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson,
leikmaður Dallas Mavericks í
NBA-deildinni, virðist vera nokk-
uð fastur í sessi hjá liðinu þrátt
fyrir að hafa ekki spilað einn ein-
asta leik á tímabilinu. Félagið ætl-
ar sér að verja Jón Arnór fyrir
nýja liðinu sem kemur inn í deild-
ina á næsta keppnistímabili,
Charlotte Bobcats.
Þannig er mál með vexti að
þegar ný lið koma inn í deildina
geta þau valið sér ákveðna leik-
menn úr hinum liðum deildarinn-
ar eftir að þau eru búin að skila
inn leikmannalista til stjórnar
NBA-deildarinnar. Á listanum er
oftast um að ræða leikmenn sem
einhverra hluta vegna mega
missa sín, frammistöðunnar
vegna, launa eða annarra þátta.
Þannig byggja nýju liðin sig upp
auk þess að fá leikmenn úr nýliða-
valinu.
Samkvæmt dallasnews.com
ætla forráðamenn Dallas Maver-
icks að setja Jón Arnór á lista
þeirra leikmanna sem nýja liðið,
Charlotte Bobcats, getur ekki val-
ið sér.ÝÞetta segir ýmislegt um
stöðu Jóns Arnórs, forráðamenn
Dallas líta á hann sem framtíðar-
leikmann og þá er samningur
þeirra við Jón þeim hagstæður.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari nýliða Fjölnis, þekkir vel til
Jóns Arnórs en hann þjálfaði hann
í yngri flokkunum hjá KR. Frétta-
blaðið sló á þráðinn til hans og
fékk viðbrögð við tíðindunum:
„Jón er greinilega inni í framtíð-
aráætlunum Dallas og þetta eru
mjög góð tíðindi fyrir hann.
Donnie Nelson lét Jón vita að það
væri uppi orðrómur um það að
Bobcats ætlaði að velja hann ef
hann yrði á listanum. Hann sagð-
ist ætla að gera allt sem hann gæti
til að halda Jóni í Dallas og nú hef-
ur það gengið eftir.
Bobcats hefur ekki séð hann
spila en forráðamenn félagsins
vita að ef Donnie Nelson er að
gera samning við einhvern
óþekktan strák frá Evrópu er eitt-
hvað spunnið í hann. Það er því al-
veg greinilegt að þú færð gæða-
stimpil á þig ef Donnie Nelson
semur við þig.
Á hinn bóginn hefði það ekkert
þurft að vera neitt slæmt að fara
til Bobcats – Jón hefði alls ekki
slegið hendinni á móti því en hann
vildi þó heldur vera áfram í
Dallas þar sem hann er búinn að
koma sér fyrir og líður vel. Hann
vill halda áfram að byggja sig upp
þar og nú er orðið ljóst að Travis
Best verður ekki áfram og spurn-
ing hvað Steve Nash gerir, en
hann er með lausan samning.
Möguleikar Jóns á því að spila
á næsta tímabili eru því ágætir og
þetta er auðvitað stór og metnað-
arfullur klúbbur sem ætlar sér
meira en á síðasta tímabili,“ sagði
Benedikt Guðmundsson.
Talið er líklegt að þeir leik-
menn Dallas sem verði óvarðir
fyrir Charlotte Bobcats séu þeir
Danny Fortson, Tariq Abdul-Wa-
had, Tony Delk og Shawn Bradley
en þessir fjórir leikmenn eru með
háa samninga sem Dallas vill
losna við. ■
KÖRFUBOLTI Ágúst Sigurður Björg-
vinsson hefur skrifað undir samn-
ing um að taka við þjálfun meist-
araflokks kvenna í körfubolta hjá
Haukum.
Liðið vann sér sæti í deildinni á
nýjan leik með miklum glæsibrag
í vetur, vann alla 16 leiki sína með
62,2 stigum að meðaltali í leik.
Ágúst tekur við af Predrag
Bojovic sem hefur þjálfað Hauka-
stelpurnar undanfarin tvö ár.
Ágúst er þekktastur fyrir störf
sín hjá Val en hann hefur einnig
þjálfað á vegum KKÍ.
Ágúst þjálfaði síðast karlalið
Vals í úrvalsdeildinni fyrir tveim-
ur árum en hann dvaldi í Litháen
síðasta vetur og vann þar fyrir
eitt af sterkustu atvinnumannalið-
um landsins.
Ágúst mun samhliða þjálfun
meistaraflokks kvenna sjá um
þjálfun allra yngstu flokka deild-
arinnar. Nú hafa fjögur af sex lið-
um deildarinnar ráðið þjálfara
fyrir næsta vetur og aðeins Njarð-
vík og ÍS eru enn þjálfaralaus. Öll
liðin nema KR verða með nýjan
þjálfara næsta vetur en Gréta
María Grétarsdóttir stýrir KR-
stúlkum annað árið í röð.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
31 1 2 3 4 5 6
Fimmtudagur
JÚNÍ
SJÓNVARP
18.15 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
18.30 Saga EM í fótbolta (15:16)
á RÚV.
19.30 Kraftasport á Sýn.
20.00 Kraftasport á Sýn.
20.30 Inside the US PGA Tour á
Sýn. Sýnt frá bandarísku PGA-
mótaröðinni í golfi.
20.40 Leiðin á EM 2004 (4:4) á
RÚV. Sýnt frá leikjum liðanna
sextán sem spila á EM í Portúgal í
undankeppni EM.
21.30 European PGA Tour 2003 á
Sýn. sýnt frá Volvo-mótinu í evr-
ópsku PGA-mótaröðinni sem
fram fór í fyrra.
22.00 Olíssport á Sýn.
1. deild kvenna í körfubolta:
Ágúst þjálfar nýliða
Hauka næsta vetur
HAMILTON OG PRINCE FAGNA
Richard Hamilton og Tayshaun Prince, leik-
menn Detroit Pistons, fagna hér sigrinum
á Indiana Pacers að hætti hússins.
Detroit Pistons mætir
Lakers í úrslitum:
Lögðu Pacers
með 4 stigum
KÖRFUBOLTI Detroit Pistons tryggði
sér í fyrrinótt sigur í austurdeild
NBA-deildarinnar þegar liðið bar
sigurorð af Indiana Pacers, 69-65,
í sjötta leik liðanna í Detroit. Pi-
stons vann einvígið, 4-2, og mætir
Los Angeles Lakers, sigurvegur-
um vesturdeildarinnar, í lokaúr-
slitum. Þau hefjast á sunnudaginn
og er fyrsti leikurinn í Los Angel-
es.
Indiana byrjaði leikinn mun
betur og hafði átta stiga forystu
eftir fyrsta leikhluta. Detroit
minnkaði muninn jafnt og þétt
eftir því sem leið á leikinn og
tryggði sér síðan sigur í lokaleik-
hlutanum.
Richard Hamilton var at-
kvæðamestur hjá Detroit með 21
stig, Ben Wallace skoraði 12 stig
og tók 16 fráköst, Rasheed
Wallace skoraði 11 stig og tók 11
fráköst og Chauncy Billups skor-
aði 10 stig.
Jermaine O’Neal var stiga-
hæstur hjá Indiana með 20 stig og
tók 10 fráköst, Austin Croshere
skoraði 12 stig og Ron Artest 11
stig og tók 10 fráköst. ■
Grönkjaer er ósáttur við
meðferð Chelsea á Ranieri:
Einn stór
brandari
FÓTBOLTI Jesper Grönkjær, Daninn
hjá Chelsea, er ósáttur með þá
meðferð sem Claudio Ranieri
fékk frá klúbbnum en hinn 52 ára
gamli Ítali var rekinn í vikunni
eftir að það hafði legið í loftinu í
langan tíma. Daginn eftir var Jose
Mourinho ráðinn í staðinn.
Grönkjaær, sem spilar ekki
með Chelsea á næsta tímabili, er
líklega á leiðinni til Birmingham á
næstu vikum.
Hann efast um ástæðurnar fyr-
ir því að Ranieri missti starfið sitt
en undir hans stjórn endaði Chel-
sea í 2. sæti í ensku úrvalsdeild-
inni og komst í undanúrslit meist-
aradeildarinnar. „Þetta hefur ver-
ið einn stór brandari í langan
tíma.“ sagði Grönkjaær við
Ekstra Bladet. ■
JÓN ARNÓR STEF-
ÁNSSON
Staða hans hjá Dallas
Mavericks virðist trygg.