Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 49

Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 49
FÓTBOLTI Þjálfari franska liðsins er Elisabeth Loisel. Þetta fannst henni um íslenska liðið: „Þetta er ungt og efnilegt lið sem á ýmis- legt eftir ólært á alþjóðavettvangi en er þó greinilega í mikilli fram- för. Í liðinu eru nokkrir mjög góð- ir leikmenn eins og númer 3 (Olga Færseth) og númer 9 (Margrét Lára Viðarsdóttir) og liðið getur án nokkurs vafa staðið sig vel í umspilinu. Mér fannst liðið nota of mikið af langspyrnum í staðinn fyrir að láta boltann ganga betur og halda honum á jörðinni því það getur spilað mjög vel.“ Aðspurð sagði Loisel að hún væri nokkuð ósátt með leik síns liðs í það heila: „Það var smá þreyta í liðinu enda er deildarkeppninni í Frakklandi nýlokið og vissulega vantaði að- eins meiri ryþma í leik okkar en það skipti ekki öllu – sigurinn var fyrir öllu og gott að vera komin áfram og sleppa við umspil.“ En hvar stendur franska liðið á með- al þeirra bestu í heiminum að mati hennar? „Við erum líklega í fjórða til áttunda sæti,“ sagði Elisabeth Loisel. ■ 37FIMMTUDAGUR 3. júní 2004 Voru einu númeri of stórar Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0-3 fyrir Frakklandi á Laugardalsvelli í gær. Frakkar hafa unnið alla sex leiki sína í riðlinum og eru búnar að tryggja sig inn í lokakeppni EM næsta sumar. OLGA FÆRSETH Fékk úr litlu að moða gegn Frökkum á Laugardalsvellinum í gær. Olga Færseth: Grísamark í byrjun leiks FÓTBOLTI Olga Færseth fékk ekki úr miklu að moða í framlínunni: „Markmið okkar fyrir leik var að halda hreinu og það að fá á okkur svona grísamark strax í byrjun leiks er erfiður biti að kyngja. Síð- an þegar annað markið kom þá var þetta orðið of mikið – sér í lagi gegn svona sterku liði eins og Frakkarnir eru. Með dálítilli heppni hefðum við getað komist aftur inn í leikinn en fengum ekki víti sem við áttum réttilega að fá og svo skora þær rangstöðumark. Þetta var rosa- lega svekkjandi en það gengur bara ekki að byrja svona illa – það er svo erfitt að koma til baka. Nú leggjum við allan okkar metnað í leikinn gegn Rússum í haust, við erum búnar að gera jafntefli fjór- um sinnum við þær á undanförn- um árum en ætlum okkur sigur núna, það kemur ekkert annað til greina,“ sagði Olga Færseth. ■ Landsbankadeildin: Skagamenn í fjölmiðlabann FÓTBOLTI Leikmenn og þjálfari Skagamanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu eru komnir í sjálfskipað fjölmiðlabann og neit- uðu að ræða við fjölmiðla eftir leik liðsins gegn KA á þriðju- dagskvöldið. Þegar Fréttablaðið leitaði skýringa á þeirri ákvörðun leik- manna og þjálfara liðsins að snið- ganga fjölmiðla hjá Guðjóni Kristjánssyni, framkvæmda- stjóra knattspyrnudeildar ÍA, var fátt um svör og benti Guðjón á þjálfara liðsins. Aðspurður sagði Guðjón að for- ráðamenn félagsins hefðu ekki sett þetta bann en lét þess þó jafn- framt getið að honum finndist eðlilegt að ákveðnir fjölmiðlar væru hundsaðir. Þegar hann var spurður hvaða fjölmiðlar það væru sagði hann menn gætu ein- faldlega lagt saman tvo og tvo í þeim efnum. Ekki hefur komið nein opinber skýring frá ÍA. ■ ÍSLAND–FRAKKLAND 0–3 (0–2) 0–1 Hoda Lattaf 4. 0–2 Hoda Lattaf 12. 0–3 Laetitia Tonazzi 71. DÓMARINN Alexandra Ihringova Góð BEST Á VELLINUM Hoda Lataff Frakklandi TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–12 (2–9) Horn 5–8 Aukaspyrnur fengnar 11–14 Rangstöður 1–2 Spjöld (rauð) 0–1 (0–0) MJÖG GÓÐAR Hoda Lattaf Frakklandi Laura Georges Frakklandi GÓÐAR Erla Hendriksdóttir Íslandi Margrét Lára Viðarsdóttir Íslandi Olga Færseth Íslandi Laufey Ólafsdóttir Íslandi Corinne Diacre Frakklandi Sandrine Soubeyrand Frakklandi Sonia Bompastor Frakklandi Stephanie Mugneret-Beghe Frakklandi Laetitia Tonazzi Frakklandi ■ Það sem skipti máliÞjálfari franska liðsins Elisabeth Loisel um íslenska kvennalandsliðið: Ungt lið sem á ýmislegt eftir ólært FÓTBOLTI Íslensku stelpurnar biðu lægri hlut gegn þeim frönsku, 0-3, í gærdag á Laugardalsvelli í riðla- keppni EM 2005. Nokkur bjart- sýni ríkti fyrir leikinn enda er ís- lenska liðið búið að standa sig með miklum sóma. Að þessu sinni var andstæð- ingurinn einu númeri of stór en þó má segja að okkar stelpur hafi fært þeim sigurinn á silfurfati snemma leiks og var það alger óþarfi. Strax á fjórðu mínútu skoraði Hoda Lattaf frá vinstri kanti, ætlaði að senda fyrir mark- ið en boltinn hafnaði í netinu og verður það að skrifast alfarið á Þóru Björg Helgadóttur, mark- vörð. Átta mínútum síðar skoruðu gestirnir svo annað mark sitt – léku þá steinsofandi vörn íslenska liðsins grátt og aftur var það Hoda Lattaf sem skoraði. Þessi hörmulega byrjun sló stelpurnar algjörlega út af laginu og áhorf- endur líka. Það sem eftir lifði af fyrri hálf- leiknum voru Frakkar nærri því að bæta við og Þóra varði til að mynda vel á síðustu mínútu hálf- leiksins. Í byrjun seinni hálfleiks var allt annað að sjá til íslenska liðsins en þó lentu frönsku stelp- urnar aldrei í neinum teljandi vandræðum enda varnarleikur þeirra, með Lauru Georges í broddi fylkingar, mjög traustur. Hafi einhver von lifað þá var henni endanlega útrýmt á fimm mínútna kafla. Á sextugustu og sjöttu mínútu fór boltinn í hönd einnar frönsku stúlkunnar og það greinilega innan teigs en dómar- inn færði brotið út fyrir teig og ekkert kom út úr aukaspyrnunni. Á sjötugustu og fyrstu mínútu var svo náðarhöggið slegið – Laetitia Tonazzi skoraði þá þriðja markið og var megn rangstöðufnykur af því og er þá frekar vægt til orða tekið. Staðan því orðin 0-3 í stað 1- 2, en svona er þetta stundum. í kjölfarið fjaraði leikurinn hægt og rólega út án þess að nokkurt markvert gerðist að ráði. Skellur í upphafi leiks Erla Hendriksdóttir fyrirliði var einna sprækust í íslenska lið- inu og þetta hafði hún að segja eftir leik: „Það var hrikalegt að fá þennan skell eftir aðeins fjórar mínútur og hálf lamaði okkur og annað markið var síðan ekki til að bæta úr skák. Það er engin skömm að tapa fyrir þessu geysisterka liði og við verðum bara að taka það jákvæða úr þessum leik sem var það að við náðum að sækja miklu meira á þær en í leiknum úti. Við settum hins vegar ákveð- na pressu á okkur fyrir leikinn og vildum fá í það minnsta eitt stig og við erum engan veginn sáttar með eigin frammistöðu allar sam- an – við eigum mikið inni. Staðan er enn ágæt hjá okkur í riðlinum en við verðum að mæta tilbúnar frá fyrstu mínútu í leikn- um gegn Rússum ef við ætlum að landa sigri þá,“ sagði Erla. Margrét Lára Viðarsdóttir, Olga Færseth, Laufey Ólafsdóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, stóðu sig allar með ágætum. sms@frettabladid.is BROT Á MARKVERÐI FRAKKA Hólmfríður Magnúsdóttir brýtur hér á markverði franska landsliðsins í leiknum í gær. NÚMERI OF STÓRAR Helena Ólafsdóttir, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gat ekki leynt von- brigðum sínum á meðan á leik Íslands og Frakka stóð í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T TVÖ GLÆSIMÖRK FRÁ BJÖRGÓLFI Björgólfur Takefusa opnaði markareikning sinn hjá Fylki í Landsbankadeildinni í gær. Fylkir á toppinn í Landsbankadeild karla: Björgólfur farinn í gang FÓTBOLTI Fylkismenn náðu tveggja stiga forustu á toppi Landsbanka- deildar karla eftir 2–0 sigur á Keflavík í lokaleik 4. umferðar í gær. Markakóngur síðasta tíma- bils, Björgólfur Takefusa, opnaði markareikninginn sinn í sumar með því að skora bæði mörkin. Keflvíkingar byrjuðu betur og Þórhallur Dan Jóhannsson bjarg- aði á marklínu strax á þriðju mínútu. Þegar leið á hálfleikinn tóku Fylkismenn völdin og tvö stórglæsileg mörk Björgólfs Takefusa með átta mínútna milli- bili kom þeim tveimur mörkum yfir. Fyrra markið var hnitmiðað skot utan teigs en í hinum síðari snéri hann laglega af sér varnar- mann og skoraði með tilþrifum. Leikurinn bauð upp á fjölda góðra marktækifæra og mörkin hefðu getað orðið mun fleiri. Ólaf- ur Stígsson átti sinn langbesta leik á þessu tímabili. Hann var eins og kóngur á miðjunni og hélt Stefáni Gíslasyni niðri. ■ BESTUR Á VELLINUM Ólafur Stígsson Fylki TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 13–13 (6–5) Horn 4–7 Aukaspyrnur fengnar 9–15 Rangstöður 4–0 Spjöld (rauð) 0–1 (0–0) FRÁBÆRIR Enginn MJÖG GÓÐIR Ólafur Stígsson Fylki GÓÐIR Guðni Rúnar Helgason Fylki Valur Fannar Gíslason Fylki Finnur Kolbeinsson Fylki Þórhallur Dan Jóhannsson Fylki Sævar Þór Gíslason Fylki Björgólfur Takefusa Fylki Stefán Gíslason Keflavík Haraldur Guðmundsson Keflavík Magnús Þorsteinsson Keflavík FYLKIR–KEFLAVÍK 2–0 (2–0) 1–0 Björgólfur Takefusa 22. 2–0 Björgólfur Takefusa 30. DÓMARINN Jóhannes Valgeirsson Góður ■ Það sem skipti máli FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E . Ó L. ■ Staðan í deildinni LANDSBANKADEILD KARLA Fylkir 4 3 1 0 6–1 10 ÍA 4 2 2 0 5–2 8 Keflavík 4 2 1 1 6–5 7 ÍBV 4 1 3 0 5–4 6 FH 4 1 2 1 3–3 5 Grindavík 4 1 2 1 4–5 5 Fram 4 1 1 2 6–6 4 KR 4 1 1 2 5–7 4 KA 4 1 0 3 3–5 3 Víkingur 4 0 1 3 2–7 1 MARKAHÆSTIR Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík 3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 3 Björgólfur Takefusa, Fylki 2 Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram 2 Sævar Þór Gíslason, Fylki 2 Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki 2 Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV 2 Arnar Gunnlaugsson, KR 2 Ríkharður Daðason, Fram 2 Atli Sveinn Þórarinsson, KA 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.