Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 8
8 3. júní 2004 FIMMTUDAGUR VIÐ ÖLLU BÚINN Pakistönsk stjórnvöld hafa aukið mjög ör- yggisviðbúnað í fjölmennustu borg lands- ins, Karachi, í kjölfar átaka og árása sem kostuðu á þriðja tug manna lífið. Enn er deilt um hvernig skuli staðið að valdaskiptum í Írak: Herinn burt ekki síðar en 2006 ÍRAKSÁLYKTUN, AP Írösk stjórnvöld fá stjórn yfir íraska hernum og lögregl- unni og erlent herlið fer frá Írak ekki síðar en í janúar 2006 samkvæmt breyttri ályktunartillögu sem Bretar og Bandaríkjamenn lögðu fyrir ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna. Breytingarnar eru svar við gagn- rýni sem upphafleg tillaga ríkjanna sætti af hálfu annarra aðildarríkja. Stjórnvöld í Alsír, Chile, Frakk- landi, Kína, Rússlandi og Þýskalandi hafa þó öll lýst efasemdum um ágæti tillögunnar þrátt fyrir breyt- ingarnar og óskuðu eftir nánari að- komu Íraka sjálfra og Lakhdar Brahimi, sérlegs sendimanns Kofi Annan, framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna. Jacques Chirac Frakklandsforseti sagði að enn þyrfti að bæta ályktun- ina þrátt fyrir þær breytingar sem hafa verið gerðar á henni, einkum til að tryggja fullveldi Íraksstjórnar í málefnum hersins. Ályktunin væri þó góður umræðugrundvöllur. Günther Pleuger, sendiherra Þjóðverja hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði ályktunina líta betur út nú en áður en enn væri þörf á að bæta hana. Richard Armitage, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði stjórn sína telja að hún hefði komið til móts við flestar óskir annarra ríkja. ■ ■ Lögreglufréttir 24.05.04 24.05.04 24.05.04 Atkvæðagreiðsla um fjölmiðlalög á Alþingi Lög samþykkt á Alþingi Lögin taka þegar gildi 01.06.04 Forseta afhent lög til samþykkis skv. 26. grein stjórnarskrár 02.06.04 Forseti samþykkir ekki lög Málshöfðun um hvort lög séu sett á stjórnskip- ulegan hátt Ráðherra túlkar 26. grein að forseti hafi ekki málskotsrétt Ráðherra boðar til þjóðaratkvæða- greiðslu Alþingi getur stefnt ráðherra fyrir landsdóm v/ laga um ráðherraábyrgð Ráðherra fundinn sekur Ráðherra sýknaður Lög felld Lög samþykkt Veik staða ríkisstjórnarinnar? Lög gilda áfram Hugsanlegar Alþingiskosningar 26. grein full- reynd fyrir dómi Lög felld úr gildi Veik staða ríkisstjórnarinnar? Hugsanlegar Alþingiskosningar Lög gilda áfram Hugsanleg málaferli Héraðsdómur, Hæstiréttur, Eftirlitsstofnun EFTA, Mannréttindadómstóllinn Lög sett um þjóðaratkvæða- greiðslu Þjóðar- atkvæðagreiðsla fer fram Ef lög ekki sett á stjórnskip- ulegan hátt þá ekki hægt að beita lögum MÖGULEG FRAMVINDA FJÖLMIÐLALAGANNA Í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands að veita lögum um eignarhald á fjölmiðlum ekki samþykki sitt hefur komið upp staða sem ekki eru fordæmi fyrir. Óvissa ríkir um framhaldið. FRÁ AFGANISTAN Fimm hjálparstarfsmenn voru drepnir í vesturhluta landsins í gær og fer spenna vaxandi í landinu. Afganistan: Hjálpar- starfsmenn vegnir AFGANISTAN Fimm starfsmenn mannúðarsamtakanna Læknar án landamæra voru drepnir í átökum sem urðu í vesturhluta Afganistan í gær. Var um að ræða þrjá lækna frá Noregi, Hollandi og Belgíu og tvo af- ganska hjálparstarfsmenn þeir- ra og segir lögregla að svo virð- ist sem ráðist hafi verið á bíl þeirra á ferð. Hækkar þá tala þeirra alþjóðlegu hjálparstarfs- manna sem drepnir hafa verið í landinu síðasta árið í 26 talsins. ■ BÍLVELTA VIÐ KLAUSTUR Ung stúlka slapp með lítil meiðsl þeg- ar bifreið sem hún ók lenti í lausamöl skammt fyrir utan bæ- inn með þeim afleiðingum að bíll- inn valt útaf. Var hún flutt á heilsugæslu en útskrifuð þaðan fljótlega. Bifreiðin er gjörónýt. ÁREKSTUR VIÐ BRYGGJU Flutn- ingaskip lagðist full harkalega að bryggju við Grundartanga og brotnaði lítill hluti hennar við höggið. Enginn slasaðist og skemmdirnar á bryggjunni reyndust minniháttar. Þjóðaratkvæðagreiðsla í höndum forsætisráðherra Forsætisráðherra hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að hann muni íhuga hvort forseti hafi yfirleitt málskotsrétt, muni hann beita honum. Í höndum forsætisráðherra að boða til þjóðaratkvæða- greiðslu. Ekki víst um framvindu ef hann gerir það ekki. MÁLSSKOT Forseti Íslands hefur neitað lögum staðfestingar í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Nú er það í höndum forsætisráð- herra að boða til þjóðaratkvæða- greiðslu um lög um eignarhald á fjölmiðlum. Hefur forsætisráð- herra lýst því yfir í fjölmiðlum að hann muni íhuga hvort for- setinn hafi yfirleitt rétt á að láta reyna á málskotsrétt samkvæmt 26. grein stjórnarskránnar. Með því gaf hann í skyn að ekki væri víst hvort hann myndi skilyrðis- laust boða til þjóðaratkvæða- greiðslu. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra vildi ekki ræða við fjölmiðla um málið í gær. Ef forsætisráðherra ákveður að boða ekki til þjóðaratkvæða- greiðslu með sömu rökum og Þór Vilhjálmsson, sem telur að forseti hafi ekki málskotsrétt, gæti tvennt komið til. Annars vegar gæti meirihluti Alþingis stefnt forsætisráðherra fyrir brot á lögum um ráðherraá- byrgð. Færi málið þá fram fyrir Landsdóm, sem er skipaður sér- staklega. Fimmtán sitja í Lands- dómi, þar af eru fimm hæsta- réttardómarar, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, átta einstaklingar kosn- ir af Alþingi og dómstjórinn í Reykjavík. Aldrei hefur komið til þess að til Landsdóms hafi verið kallað. Meirihluti Alþingis þarf að samþykkja málaferlin. Þess vegna er ólíklegt að til þess komi því forsætisráðherra hef- ur þegar meirihluta Alþingis á bak við sig. Hverfandi líkur þykja á því að Alþingi stefni forsætisráðherra fyrir Lands- dóm. Í öðru lagi gæti hver sem er höfðað mál fyrir dómstólum um hvort fjölmiðlalögin hafi verið sett á stjórnskipulegan hátt. Lögin giltu áfram, því sam- kvæmt stjórnarskránni taka þau gildi um leið og þau hafa verið samþykkt á Alþingi. Hins vegar myndu dómstólar úrskurða um hvort þau hefðu verið sett á stjórnskipulegan hátt. Ef dóm- stólar kæmust að þeirri niður- stöðu að svo hafi ekki verið, gilda lögin áfram en þeim væri ekki beitt. Tilvonandi forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði við fjölmiðla í gær að þjóðarat- kvæðagreiðsla muni fara fram. Kalla þurfi saman Alþingi til þess að setja lög um þjóðarat- kvæðagreiðslu, sem ekki eru til. Hann sagðist þó ekki hafa náð að ræða við Davíð Oddsson um málið í gær. ■ RÆTT UM ÁLYKTUNINA Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, og Richard Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu fullveldi Íraks. – hefur þú séð DV í dag? Bestu og verstu nýliðarnir á þingi Þór Vilhjálmsson: Forsetinn braut stjórnarskrána MÁLSKOTSRÉTTUR „Ég tel að forset- inn hafi ekki haft heimild sam- kvæmt stjórnarskránni til að synja að skrifa undir lögin,“ segir Þór Vilhjálmsson, fyrrum hæsta- réttardómari. „Ég byggi það á 13. grein stjórnarskrárinnar sem segir að forsetinn láti ráðherrann fram- kvæma vald sitt. Ég tel að sú grein valdi því að það eigi að skýra öll þau ákvæði sem hér máli skipta, sérstaklega 26. grein, þannig að það sé ráðherr- ann, ekki forsetinn persónulega, sem taki ákvörðun um slíka synj- un,“ segir Þór og bætir við: „Þetta er kjarni málsins eins og ég sé það. Aðrir sjá það allt öðru- vísi.“ ■ ÞÓR VILHJÁLMSSON Segir umræður um málið að undanförnu ekki allar hafa verið uppbyggilegar. Menn eru ósammála um hvor greinin í Stjórnarskrá Íslands sé rétthærri: 13. gr. Forsetinn lætur ráðherra fram- kvæma vald sitt. 26. gr. Ef Alþingi hefur samþykkt laga- frumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýð- veldisins til staðfestingar eigi síðar en tveimur vikum eftir að það var sam- þykkt, og veitir staðfestingin því laga- gildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu. SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING TÚLKUN FORSÆTISRÁÐHERRA Á MÁLSKOTSRÉTTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.