Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 25
3FIMMTUDAGUR 3. júní 2004
Gengið er um söguslóðir Íslendinga í Höfn.
Kóngsins Kaupmannahöfn:
Gönguferðir um
söguslóðir
Íslenskum ferðamönnum í Kaup-
mannahöfn gefst eins og undanfarin
sumur kostur á að ganga um fornar og
nýjar Íslendingaslóðir í borginni.
Gönguferðirnar eru alla sunnudaga og
miðvikudaga í sumar og standa út
september. Þær hefjast klukkan eitt á
tröppum
Ráðhússins og taka um það bil tvo
tíma. Farið er yfir Vesturvegginn og inn
í gamla bæinn þar sem þorri Íslend-
inga bjó á öldum áður. Við sögu koma
meðal annars Baldvin Einarsson, Jón
Sigurðsson og Fjölnismenn. Gengið er
fram hjá síðasta bústað Jónasar Hall-
grímssonar, Háskólanum, Gamla Garði,
Sívala turninum, svo eitthvað sé nefnt
og komið inn á handritabrunann árið
1728 og sagan skoðuð í ljósi hans.
Á sunnudögum liggur leiðin að Jóns-
húsi þar sem skoðað er nýtt og endur-
bætt minningarsafn um Jón Sigurðs-
son og Ingibjörgu Einarsdóttur, en á
miðvikudögum endar ferðin á Hviids
Vinstue við Kóngsins nýja torg nema
upp komi aðrar óskir. Ferðin kostar
100 krónur danskar á mann en ókeyp-
is er fyrir 12 ára og yngri.
Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni islandscenter.dk
Skaftafell:
Áhersla lögð á upplýsingar og fræðslu
Við leggjum höfuðáherslu á
fræðsluefni um Skaftafell og upp-
lýsingar um allt Suðausturland.
Hér er til dæmis umferðarmið-
stöð fyrir Laka, Fjallabaksleið og
Skálafellsjökul,“ segir Ragnar
Frank Kristjánsson þjóðgarðs-
vörður þar sem hann er staddur
fyrir utan Skaftafellsstofu, sem
nú er verið að stækka verulega.
Ilm af nýútsprungnu birki leggur
að vitum en inni er verið að
leggja lokahönd á breytingar.
„Þetta er í fyrsta sinn frá því hér
var byggt 1974 sem þjóðgarður-
inn fær allt húsið til umráða,“
segir Ragnar. „Auk fræðslu og
upplýsingaþjónustu verðum við
með minjagripaverslun og sölu á
því allra brýnasta sem snýr að
tjaldgestum svo sem mjólk, brauð
og grillkol. Svo verða hér stólar
og borð og sjálfsalar bæði utan
dyra og innan, meðal annars
kaffisjálfsali.“
En hvað varð um verslunina og
veitingasöluna sem sett hefur svip
á staðinn síðustu þrjátíu ár? „Við
auglýstum þann rekstur til leigu
en enginn sótti um,“ svarar hann
og heldur áfram: „Sú uppbygging
sem hefur átt sér stað hér í kring
kallar á að við endurskoðum okkar
rekstur enda ekki eðlilegt að ríkið
keppi við einkaaðila á svæðinu.
Aðalverkefni þjóðgarðsins er að
veita upplýsingar um náttúrufar
og gönguleiðir innan garðsins og
um aðra áhugaverða staði á þessu
horni.“ ■
Ragnar Frank þjóðgarðsvörður messar yfir dönskum skólabörnum.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
48
86
8
05
/2
00
4
www.urvalutsyn.is
Trygg›u flér bestu k
jörin
og bóka›u strax á n
etinu!
*Innifali›: Flug, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting
og íslensk fararstjórn. Morgunver›ur er alltaf innifalinn, nema á Kúbu.
Ver›i› er netver› á mann í tvíb‡li. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald, e›a fullgrei›a
fer› á netinu. Ef bóka› er símlei›is e›a á skrifstofu, grei›ist bókunar- og fljónustugjald,
sem er 2.000 kr. á mann.
Sérfer›ir Úrvals-Úts‡nar í haust eru a› seljast upp og vegna mikillar
eftirspurnar eru aukafer›ir í bo›i. fieir sem eru á bi›lista geta bóka› strax
á www.uu.is, e›a haft samband vi› Úrval-Úts‡n eftir helgi í síma 585 4000.
Kúba er engu lík me› ólgandi tónlist og í Palermo á Sikiley rís matar- og
vínmenning Ítala hva› hæst. Fer› til Marrakech líkist ævint‡rum 1001 nætur
og ver›lagi› í Tyrklandi er ótrúlegt. fieir sem flanga› halda koma heim
hla›nir gulli, teppum, le›ri og hverju flví sem hugurinn girnist.
Kúba
9. nóv. í 7 nætur - Uppselt
17. nóv. í 7 nætur - Aukafer›
Ver› frá: 96.370 kr.
Sikiley
Palermo
18. nóv. í 4 nætur - Uppselt
4. nóv. í 4 nætur - Aukafer›
Ver› frá: 62.820 kr.
Marokkó
Marrakech
26. okt. í 7 nætur - 19 sæti laus
Ver› frá: 79.450 kr.
Tyrkland:
Marmaris
23. sept. í 13 nætur - Uppselt
6 okt. í 9 nætur - 25 sæti laus
Antalya
11. okt. í 11 nætur - Laus sæti
Ver› frá: 99.960 kr. - „Allt innifali›“
Leifsstöð:
28% fjölgun
farþega
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar fjölgaði um tæplega 28% í
maímánuði miðað við sama tíma í
fyrra, úr rúmlega 105 þúsund far-
þegum árið 2003 í rúmlega 134
þúsund farþega nú. Fjölgun farþega
til og frá Íslandi nemur tæplega 26%
milli ára. Farþegum sem millilenda
hér á landi á leið yfir Norður-Atlants-
hafið fjölgar þó hlutfallslega enn
meira eða um 37%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúmlega
22% það sem af er árinu miðað við
sama tíma árið 2003, eða úr rúm-
lega 423 þúsund farþegum í tæp-
lega 517 þúsund farþega.