Fréttablaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
... ekki
lengur
www.finna.is
„Sérlega skemmtileg, spennandi og snjöll saga um
tálkvendi ... Líklega er þetta best skrifaða bók
Arnaldar.“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Fréttablaðinu
„Sálfræðileg spennusaga [sem] gengur fullkomlega
upp.“
Katrín Jakobsdóttir, DV
„Sagan [er] spennandi, svo, að lesandi leggur hana
trauðla frá sér.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„[Arnaldur] er í röð okkar fremstu rithöfunda.“
Skafti Þ. Halldórsson, Morgunblaðinu
„Fín bók með magnaðasta fléttuhnykk sem ég hef
lengi séð.“
Hallgrímur Thorsteinsson, Útvarpi Sögu
Komin í kilju
Hver vill
verða forseti?
Nú fer að hitna í kolunum. Kosn-ingar í aðsigi. Ekki leiðinlegar
kosningar, nei síður en svo. Kaffi-
könnur fyllast og tæmast og æsingur
í kjaftakerlingum og körlum er að
ná hámarki um það leyti sem hellt er
upp á enn einu sinni.
Í SÍÐDEGISKAFFIBOÐI þar sem
nokkrar kynslóðir voru saman komnar
voru kosningar rifjaðar upp. Ó hann
var nú alltaf svo mikill sjentilmaður
hann Albert, í rauninni vildi þjóðin
hann, það voru bara of margir í fram-
boði. Vigga var best, af hverju var ver-
ið að tala svona um hana Halldóru?
Var nokkur sem sá hana með rúllur í
Hagkaupsslopp á flókainniskóm fyrir
aftan Þjóðminjasafnið? Ástþór er víst
kominn með nýja kærustu. Eða er
þetta eiginkona? Eða er þetta einhver
kona sem borgar fyrir hann?
ROSALEGA ER þetta góð brauð-
terta? Ofboðslega er nú gott að fólk
skuli hugsa um kólesterolið og vera
ekki að nota þetta mæjones heldur ein-
beita sér að sýrða rjómanum. Gunnar
Thor átti aldrei sjens, það var alveg
vonlaust, þó svo að hann hefði auðvitað
orðið frábær forseti. Muniði ekki, hann
hét Ásgeir Ásgeirsson alltaf með hvítt
hár í gömlu laugunum. Ótrúlega gam-
all. Konan hans dó já já. Nei nei nei
Guðrún Pétursdóttir er ekki danskenn-
ari, hvaðan færðu þessa vitleysu, hún
er tengdadóttir Hannibals. Í alvöru. Og
hver er Hannibal?
ER VIRKILEGA hægt að mylja
smarties inn í marenstertu? Fór
hann ekki fram þrisvar hann Pétur
Hoffman? Eldri kynslóðin reynir að
teygja sig skjálfhent eftir molum
sem hafðir eru hátt uppi til þess að
að yngsta kynslóðin geti ekki náð
þeim. Hún var ofsalega falleg þessi
lopakápa sem Vigdís var í eftir að
hún sigraði. Var hún virkilega í lopa-
kápu? Fólk náttúrlega ber íslensku
ullina mismunandi.
AÐ VERA að ausa peningum í
þessa kosningasjóði er alveg til há-
borinnar skammar, það er svo sann-
arlega hægt að nota peningana í ann-
að. Ég meina Guðrún Pétursdóttir
hætti bara við þegar hún var búin
með yfirdráttarheimildina. Nei, það
var sko ekki þannig. Maðurinn henn-
ar var bara alveg uppgefinn á því að
hlaupa í hús. Fjórtán ára afmælis-
barn, teygir úr sér og spyr:
Af hverju er ekkert venjulegt fólk
sem vill verða forseti? ■
ELÍSABETAR BREKKAN
BAKÞANKAR