Fréttablaðið - 17.06.2004, Síða 6
6 17. júní 2004 FIMMTUDAGUR
ALBUFEIRA „Ég get ekki sagt að ég
hafi orðið vitni að einhverju
enda tiltölulega nýkominn
hingað,“ segir Einar Guðmunds-
son, einn þeirra hundruða Ís-
lendinga sem dvelja í sumarfríi
sínu í bænum Albufeira í Algar-
ve í Portúgal. Talsverð læti hafa
verið þar undanfarin kvöld og
nætur vegna óláta enskra ferða-
manna. Hefur óeirðalögregla
verið kölluð út tvisvar til að
skakka leikinn og hefur lögregla
handtekið tugi manna fyrir
slagsmál og ólæti.
Einar segist ekki vita af
neinum Íslendingi sem hafi orð-
ið vitni að átökum síðustu kvölda
enda er landinn talsvert frá mið-
bænum þar sem mestu lætin
áttu sér stað. „Við heyrðum af
þessu frá fararstjórum okkar en
mér vitandi eru allir heilir heilsu
og í góðu yfirlæti og það sem
kannski setur mest strik í sum-
arfríið hér er þessi fótbolta-
stemning sem er hvarvetna og
enginn fær flúið.“ ■
HEILBRIGÐISMÁL „Ég er að athuga
hvort við getum ekki stýrt málum
án þess að lækka þjónustustig
spítalans frekar en orðið er,“
sagði Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra um stöðu Landspítala -
háskólasjúkrahúss í fjárlagagerð
fyrir næsta ár.
Spurður kvaðst hann ekki vilja
tjá sig um hvort til þyrfti til-
slakanir á þeim ramma sem
stjórnvöld hefðu sett um rekstur
LSH, en verið væri að fara í gegn-
um með hvaða hætti væri hægt að
meðhöndla fjármál spítalans.
„Það verður alltaf að hafa ým-
iss konar aðhald í svo umfangs-
miklum rekstri sem þetta er,“
sagði ráðherra. „Því hefur verið
haldið fram að lækka þurfi þjón-
ustustig spítalans frekar en orðið
er. Ég hef viljað leita allra ráða til
að þurfa ekki að fara þá leið.“
Spurður hvort hann væri bein-
líns mótfallinn því að lækka
þjónustustigið á LSH svaraði ráð-
herra: „Þess vegna hef ég verið að
skoða það, að sjálfsögðu. En við
erum með okkar markmið í ríkis-
fjármálum og ég er hluti af því
dæmi.“
Stjórnvöld hafa gert Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi að
spara 700 milljónir á ári í tvö ár.
„Menn hafa verið í aðgerðum
þar í upphafi ársins, sem eru nú
að skila sér og munu væntanlega
skila sér á næsta ári.“
Spurður um niðurstöður
Jónínunefndarinnar svokölluðu,
sem er ráðherraskipuð, kvaðst
ráðherra hafa átt von á áfanga-
skýrslu frá henni á vordögum.
„En vorið líður hratt,“ sagði hann.
Umrædd nefnd vinnur að því að
marka spítalanum skýrari stöðu í
heilbrigðisþjónustunni en verið
hefur. Ráðherra sagði að ekki
væri þar með sagt að það hengi
allt á því nefndarstarfi, en hann
hefði lagt áherslu á að því yrði
flýtt.
„Við vinnum að málefnum
spítalans þótt nefndin sé í gangi,“
sagði hann. „En það er búið að leg-
gja í þetta heilmikla vinnu og
margir aðilar hafa lagt þarna
saman krafta sína, þannig að það
væri gott og gagnlegt fyrir mig að
fá skýrslu frá nefndinni, þótt það
skipti ekki sköpum um málefni
dagsins.“
jss@frettabladid.is
ESB og Króatía:
Aðild komin
á dagskrá
BRÜSSEL, AP Leiðtogar Evrópu-
sambandsins ætla að mæla með
því að viðræður um aðild Króatíu
að sambandinu hefjist þegar í
byrjun næsta árs. Engin dag-
setning hefur þó verið ákveðin en
það mun vera gert til að styggja
ekki Tyrki, sem einnig bíða eftir
að fá aðild að ESB.
Tyrkir hafa um nokkurt skeið
sóst eftir aðildarviðræðum en
búist er við að stjórnvöld þar í
landi reiðist ef Króötum verður
hleypt inn á undan. Hafði Tyrkj-
um verið lofað að aðildarviðræður
þeirra gætu hafist í desember
næstkomandi. ■
■ LEIÐRÉTTING
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72.36 -0.14%
Sterlingspund 132.15 0.49%
Dönsk króna 11.75 0.08%
Evra 87.32 0.10%
Gengisvísitala krónu 122,6 0,13%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 363
Velta 7.968 milljónir
ICEX-15 2.857 0,92%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 441.989
Bakkavör Group hf. 438.595
Íslandsbanki hf. 280.513
Mesta hækkun
Bakkavör Group hf. 4,26%
Grandi hf. 3,94%
Actavis Group hf. 1,99%
Mesta lækkun
SÍF hf. -3,33%
Og fjarskipti hf. -1,18%
Flugleiðir hf. -0,63%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 10.365,3 -0,1%
Nasdaq * 1.992,0 -0,2%
FTSE 4.491,1 0,7%
DAX 4.003,2 0,4%
NK50 1.410,2 0,2%
S&P * 1.133,2 0,1%
* Bandarískar vísitölur kl. 17
VEISTU SVARIÐ?
1Gordon Brown, núverandi fjármála-ráðherra Bretlands, hefur gegnt því
starfi lengst allra. Hvað hefur Brown
verið fjármálaráðherra lengi?
2Nýjar tegundir flækingsfugla hafa sésthér á landi í sumar. Nefndu tvær.
3Hvaða banki var í fyrradag sýknaðuraf bótakröfu fyrrverandi vaktmanns
bankans?
Svörin eru á bls. 22
www.plusferdir.is
Benidorm
29.955 kr.
N E T
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára í íbúð með 1 svefnherbergi
í 7 nætur á Halley 23. júní.
Innifalið er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Verð miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman 39.990 kr.
NETplús er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
23. júní
Verð frá
Ákærður fyrir tvær
líkamsárásir:
Sló mann
með glasi
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
hefur verið ákærður af ríkissak-
sóknara fyrir tvær líkamsárásir.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Vestfjarða í byrjun júní.
Maðurinn er sakaður um að
hafa slegið mann í höfuðið á veit-
ingastað í Bolungarvík með stóru
glasi þannig að af hlaust fimm
sentímetra langur skurður á
hvirfli. Þá er hann ákærður fyrir
að hafa ráðist á rúmlega fertugan
mann, tekið um háls hans og
slegið hann tvisvar með krepptum
hnefa í andlitið. Sá sem ráðist var
á hlaut mar og bólgu í andlit. ■
GEGN ÞJÓNUSTUSKERÐINGU
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra lýsir sig andvígan frekari lækkun á þjónustustigi á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi.
Ráðherra andvígur
þjónustuskerðingu
Heilbrigðisráðherra beitir sér gegn því að þjónustustig Landspítala -
háskólasjúkrahúss verði lækkað meira en orðið er. Niðurstaðan ræðst
við gerð fjárlaga fyrir næsta ár og stendur sú vinna nú yfir.
M
YN
D
A
P
BLÁIR FYRIR JÁRNUM
Óeirðalögregla í strandbænum Albufeira
í Portúgal hefur allan vara á en enskar
fótboltabullur hafa látið ófriðlega
síðustu nætur.
Ísraelsstjórn:
Meiri líkur á
samstjórn
JERÚSALEM, AP Líkurnar á því að
stærsti stjórnarandstöðuflokkur
Ísraels, Verkamannaflokkurinn,
gangi til liðs við ríkisstjórn Ariels
Sharon forsætisráðherra þykja
aukast með hverjum degi.
Í gær sátu þingmenn flokksins
hjá þegar greidd voru atkvæði um
tillögu annars stjórnarandstöðu-
flokks um að þingi yrði slitið og
boðað til kosninga. Hefð er fyrir
því að allir stjórnarandstöðu-
flokkar greiði atkvæði með slíkri
tillögu en undanfarið hefur
Verkamannaflokkurinn setið hjá í
öllum atkvæðagreiðslum sem
beinast gegn stjórninni. ■
FORSÆTIS-
RÁÐHERR-
ANN
Andstaða er
við sam-
stjórn Likud
og Verka-
manna-
flokksins í
báðum
flokkum.
Uppþot fótboltabulla í ferðamannaparadísinni Albufeira:
Íslendingarnir óhultir
Í myndatexta á forsíðu Frétta-
blaðsins í gær var Hamid Karzai
ranglega titlaður forseti Íraks.
Hið rétta er vitaskuld að Karzai
er forseti Afganistans. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.