Fréttablaðið - 17.06.2004, Side 30
22 17. júní 2004 FIMMTUDAGUR
Hakan Yakin bjartsýnn:
Englendingar fá
kennslustund
FÓTBOLTI Hakan Yakin, leikstjórn-
andi Svisslendinga, segir Eng-
lendinga liggja vel við höggi eftir
áfallið gegn Frökkum á sunnudag-
inn og segist hann stefna á að
auka enn frekar á vonleysi þeirra
á morgun þegar þjóðirnar mætast
innbyrðis. „Ég sá leik þeirra gegn
Frökkum og þetta var ótrúlegur
leikur,“ sagði Yakin og hófst síðan
handa við að gera lítið úr enska
liðinu. „Mér finnst vörn Englands
ekki sannfærandi og ég er viss um
að við eigum eftir að velgja henni
undir uggum,“ segir Yakin og
bætir við að ensku leikmennirnir
hafi ekki nægan karakter til að ná
langt í keppninni. „Gæðalið
myndu vinna leiki ef þau væru
með 1-0 forystu á 90. mínútu. Ég
held að leikmenn liðsins hafi ekki
þann sálfræðilega styrk sem til
þarf í keppni eins og EM. Ég var
alltaf sannfærður um að Frakkar
myndu sigra og skilja Englend-
inga eftir í sárum. Nú eigum við
að nota tækifærið og meiða þá
meira. Þeir þurfa á kennslu í hug-
arfari að halda og við Svisslend-
ingar ætlum að veita þeim hana,
algjörlega að kostnaðarlausu,“
segir Yakin, sjálfstraustið upp-
málað. ■
Detroit slátraði
LA Lakers
Vann fimmta leikinn með þrettán stiga mun og tryggði sér
NBA-titilinn í fyrsta sinn síðan 1990.
KÖRFUBOLTI Loksins tókst liði úr
Austurdeildinni að vinna titilinn í
NBA-körfuboltanum í Bandaríkj-
unum. Lið Detroit Pistons, sem að
fáir áttu von á að myndi eiga séns í
hið geysisterka lið Los Angeles
Lakers, gerði sér lítið fyrir og
vann úrslitaseríuna í fimm leikj-
um. Pistons var með sigurinn í
hendi sér alla rimmuna og sáu leik-
menn Lakers aldrei til sólar í ein-
víginu. Detroit er fyrsta liðið á
Austurströndinni til að vinna titil-
inn síðan 1998 þegar hið víðfræga
Chicago Bulls vann dolluna. Allar
götur síðan hafa lið Vesturdeildar-
innar einokað titilinn.
Með bakið upp við vegg mætti
Lakers til leiks í fimmta leik liðanna
í fyrrinótt. Plan kvöldsins var mjög
einfalt ñ ná fram sigri til að komast
aftur í Staples Center í Los Angeles.
Leikmenn Lakers náðu að bíta frá
sér í byrjun leiks og náðu mest sjö
stiga forskoti. Pistons lét það þó
ekki slá sig út af laginu og náði yfir-
höndinni fyrir lok fyrsta fjórðungs.
Kobe Bryant og félagar áttu ekki
erindi sem erfiði það sem eftir lifði
leiks og voru hreinlega yfirspilaðir
af vel stemmdu liði Pistons. Rip
Hamilton fór á kostum, skoraði 21
stig og var dyggilega studdur af
Chauncey Billups, sem valinn var
besti leikmaður úrslitakeppninnar.
Fyrir seríuna sagði Billups að þeir
ætluðu að hrista upp í heimsbyggð-
inni. ìVið vissum sem lið að við
værum betriî sagði Billups eftir
leikinn. Pistons náði mest 29 stiga
forskoti í fjórða leikhluta og Phil
Jackson, þjálfari Lakers, varð í
fyrsta sinn á ferlinum að játa sig
sigraðan í úrslitaviðureign. ìÞeir
spiluðu mjög vel og skotnýtingin
þeirra var frábærî sagði Jackson,
sem gaf í skyn að þetta væri hans
síðasta tímabil. ìÉg vil ekki fullyrða
neitt en það eru góðar líkur á þvíî.
Vonbrigðin fyrir Lakers voru
gríðarleg og þá sérstaklega fyrir
Karl Malone og Gary Payton sem
báðir gerðu sér góða von um að ná
sér í sinn fyrsta meistarahring.
Óvíst er hvort þeir fái annað tæki-
færi til þess enda framtíð liðsins í
mikilli óvissu. Kobe Bryant og
Shaquille OíNeal eru báðir með
lausa samninga og er ekki vitað
hvernig þau mál fara. Andleysi liðs-
ins gegn Detroit var mjög áberandi
og sorglegt fyrir Lakers-aðdáendur
að sjá liðið falla um sjálft sig.
Lið Detroit Pistons vann síðast
titil árið 1990 en þá lék Joe Dumars
með liðinu sem er núna fram-
kvæmdastjóri Pistons. Dumars var
að vonum sáttur við úrslitin. „Mér
fannst frá upphafi að við værum
með betra lið,“ sagði Dumars. „Þeir
eru með tvo bestu leikmenn heims.
En þetta er ekki tennis! Það er liðs-
heildin sem ræður úrslitum.“
Orð að sönnu hjá Joe Dumars.
Fróðlegt verður að fylgjast með
Detroit Pistons á komandi tímabili
og hvort það nái að fylgja þessum
frábæra árangri eftir. Það hefur all-
ar burði til þess enda með firna-
sterka leikmenn í hverri stöðu og
vel að titlinum komið. ■
Brynjar Björn Gunnarsson:
Hefur vetur-
setu í Watford
FÓTBOLTI Landsliðs- og tveggjafóta-
tæklingamaðurinn Brynjar Björn
Gunnarsson hefur gert munnleg-
an samning við enska 1. deildar-
liðið Watford þess efnis að hann
spili með liðinu næstu tvö árin.
Þar mun hann hitta fyrir félaga
sinn hjá landsliðinu, Heiðar
Helguson, og saman verða þeir
væntanlega ábyrgir fyrir
nokkrum tæklingum af dýrari
gerðinni.
Brynjar Björn lék með Nott-
ingham Forest og Stoke á síðasta
tímabili. Hann var hins vegar laus
allra mála og því þarf Watford
ekki að reiða neitt fé af hendi. ■
LEITAR HEFNDA GEGN
SVISSLENDINGUM
David Beckham segir nauðsynlegt að sigra
Svisslendinga svo að enska þjóðin
fái trú á sínu liði á ný.
Beckham er sár og reiður:
Sviss má
vara sig
EM Í FÓTBOLTA David Beckham, fyrir-
liði enska landsliðsins, hefur aðvar-
að leikmenn Sviss fyrir leik þjóðana
á morgun. Beckham segir sig og
samherja sína vera sára og reiða
eftir leikinn gegn Frökkum, og að
þeir ætli að láta það bitna á Sviss-
lendingum. „Það er ekkert sem
bugar mig. Allir vita að það er
margt sem hefur unnið gegn mér í
mínu lífi, en ég hef alltaf komist
yfir það. Og leikurinn gegn Frökk-
um er engin undantekning þar. Allt
svekkelsið í kringum leikinn gegn
Frökkum verður tekið út gegn
Sviss,“ segir Beckham og bætir við
að þessi reiði sé af hinu góða. „Þetta
er ekki þannig reiði að við viljum
fara út á völlinn og sparka menn
niður. Þessi reiði hefur þau áhrif að
við viljum vinna leiki og fá ensku
þjóðina til að trúa á okkur á ný“. ■
DADO PRSO
Einn fimm leikmanna Króata sem eru með
gult spjald á bakinu.
Króatíska landsliðið:
Lykilmenn
hvíldir
EM Í FÓTBOLTA Króatar líta nú á síð-
asta leik sinn í B-riðli á Evrópumót-
inu í Portúgal, gegn Englandi á
mánudaginn, sem úrslitaleik um
annað sætið og hafa gefið í skyn að
þeir ætli sér að hvíla nokkra lykil-
menn sína gegn Frökkum í dag.
„Stigið gegn Sviss lítur ágætlega
út núna. Það er ekki svo mikilvægt
fyrir okkur að vinna leikinn gegn
Frökkum, það er mikilvægara að
tapa ekki. Við höfðum alltaf á til-
finningunni að leikurinn gegn Eng-
lendingum myndi skipta sköpum og
það reyndist rétt. Þjálfarinn er svo
sannarlega að hugsa um að hvíla
leikmenn til að þeir verði tilbúnir
gegn Englendingum,“ sagði Drazen
Ladic, aðstoðarþjálfari Króata.
Fimm leikmanna liðsins; Dado
Prso, Ivica Mornar, Milan Rapaic,
Boris Zivkovic og Nenad Bjelica,
fengu gult spjald gegn Sviss og fara
í bann ef þeir fá spjald gegn Frökk-
um. ■
RAFAEL BENITEZ
Á að leiða Liverpool inn í stórveldistíma.
Liverpool ræður
knattspyrnustjóra:
Benitez
tekur við
FÓTBOLTI Spánverjinn Rafael Beni-
tez var í gær kynntur til sögunnar
sem næsti knattspyrnustjóri Liver-
pool. Benitez stýrði Valencia til sig-
urs í spænsku deildinni sem og í
Evrópukeppni félagsliða á ný-
afstöðnu tímabili og tekur hann við
af Frakkanum Gerard Houllier, sem
var látinn taka pokann sinn í vor.
Benitez sagði upp störfum hjá Val-
encia 1. júní og hafði þráfaldlega
verið orðaður við starfið hjá Liver-
pool. Benitez tekur við þokkaleg-
asta búi hjá Liverpool en hans fyrs-
ta verk verður væntanlega að sann-
færa Michael Owen og Steven Gerr-
ard um að framtíð þeirra liggi hjá
félaginu en þeir hafa viljað komast
burt frá félaginu þar sem þeir telja
það ekki líklegt til afreka á næstu
árum. ■
Haukar ganga frá
þjálfaramálum sínum:
Halldór að-
stoðarþjálfari
HANDBOLTI Hinn leikreyndi Halldór
Ingólfsson hefur verið ráðinn að-
stoðarþjálfari Íslandsmeistara
Hauka í hand-
knattleik. Halldór
mun því aðstoða
Pál Ólafsson, sem
nýverið gekk frá
samningi þess
efnis að hann
muni halda áfram
þjálfun liðsins
eftir að hafa tekið
við Haukaliðinu á
miðju tímabili
eftir að Viggó
Sigurðsson var rekinn. Halldór
stefnir á að spila áfram með liðinu
leyfi skrokkurinn það.
Haukar hafa orðið fyrir nokkrum
skakkaföllum að undanförnu og
misst tvo lykilleikmenn til Þýska-
lands á síðustu dögum. Þá Robertas
Pauzuolis, sem gekk til liðs við þýska
1. deildarliðið Wilhelmshavener, og
Aliaksandr Shamkuts, sem fór til 2.
deildarliðsins Stralsunder.
Líklegt má telja að Haukarnir,
sem ætla sér stóra hluti eins og
venjulega, komi til með að styrkja
hóp sinn allverulega fyrir næsta
tímabil. ■
KNATTSPYRNUMAÐUR OG KENNARI
Hakan Yakin ætlar að kenna leikmönnum
Englands um hugarfar við hæfi á EM
HALLDÓR
INGÓLFSSON.
CHAUNCEY BILLUPS BESTUR
Chauncey Billups, bakvörður Detroit Pistons, heldur hér á bikarnum sem hann fékk fyrir að vera valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar.
EM Í FÓTBOLTA