Tíminn - 11.02.1973, Qupperneq 10

Tíminn - 11.02.1973, Qupperneq 10
TÍMINN Sunnudagur 11. febrúar. 1973 10. Húsagerð arlist á íslandi EINS OG GETIÐ var í siðasta þætti, mótast íbúðarhúsin mjög af til- komu breytilegs byggingarefnis. — Um ákveðna stefnu í húsagerðarlist, er vafa- laust skiptar skoðanir. Húsameistarar okkar hafa numið víða um heim og hafa því mótazt nokkuð af þeim löndum, sem þeir hafa dvalið í. Þó virðist þeim sameiginlegt, að leggja ríka áherzlu á ein- faldleika í formi og hag- kvæmni í niðurröðum vistarvera. Ég þekki enga húsameistar, sem fást við húsagerð sem ekki vilja færa húsakostinn til i sam- ræmi við þarfir eigenda. 1. Hafnarf jarðarvegur gegnum Kópavog. 2. Félagsheimili Kópavogs. 3. Eldri smáhúsabyggð. 4. Edlri verzlunar- og skrif- stofuhúsnæði. 5. Kirkja. — Til allra þessara þátta og fleiri, varð að taka tillit til í samkeppninni um miðbæ Kópavogs. Við krefjum húsgeröa manninn um siaukna tilbreytni. Hann á að skapa fyrir okkur fallegar vistar- verur og fagurt umhverfi, þar sem ekkert má vera öðru likt. En málið er nú ekki svona ein- falt. Að skipuleggja byggð og skapa hús, er ekki svo auðvelt, eins og menn halda. Húsa- meistari, sé hann sannur og trúr, hlýtur að gefa skipulaginu og þeim mannvirkjum, sem hann mótar,nokkuð af sinum persónu- leika. fslenzkir húsameistarar og aðrir skaparar mannvirkja hafa margt gert vel, jafnvel mjög vel. Þeir myndu vafalitið hafa gert betur, hefðu ekki ýmiss öfl gripið inn i og fært til verri vegar. Þar á ég við ýmsa ráðamenn á hinu almenna pólitiska sviði. Ein- hverjum finnst vafalaust, að hér sé fariö út á nokkuð hálan is, og þess vegna mun ég reyna að út- skýra þessa þanka mina með nokkrum dæmum. Þegar gömul bæjar- og borgar- svæði eru tekin til endur- byggingar, þá ráða oftast nær peningaleg verðmætasjónarmið, annaö hvort bæjar- borgar- eða einstaklinga. Fjármagniö er svo snar þáttur i ákvörðunum hins pólitiska valds að það er i flestum tilfellum i fyrsta sæti. Mér sýnist þetta vera svipað i flestum þeim löndum, sem ég þekki til. Þar vil ég nefna borgir Norðurlanda, svo sem Stokkhólm, Kaupmannahöfn og ósló. I Reykjavik hefur nokkuð borið á þvi, að eigendur mannvirkja og lóða, hafa raunveruleg áhrif á enduruppbyggingu og hafa þá litið tekið tillit til umhverfis. Þegar samkeppni um miðbæ Kópavogs fór fram, varð að taka verulegt tillit til þeirra mann- virkja, sem fyrir voru, þó vafa- laust hefði verið mun betra fyrir samkeppnishafa, að þurfa ekki að taka tillit til eldri byggðar og mannvirkja. Sjá meðfylgjandi mynd af likani af miðbæ Kópavogs. Framhald i næstu viku Skemmtileg hugmynd Vöruumbúðir sem aðeins eru ætlaðar til notkunar einu sinni, gerast rúmferkari i sorpilátum okkar með hverjum degi, sem liður. Griðastórar öskjur, fötur og dósir úr plasti undan is, búðingum o.fl., geta verið ágætis ilát til annarra nota en hinna upp- haflegu. Margir reyna að stöðva straum þessara eins skiptis umbúða, úr ólifrænum efnum, með þvi að gera úr þeim skemmtilega hluti til nota á heimil- um sinum. Hér eru isumbúðir notaðar sem blóma- pottahlifar. Litlir pottar með ólikum blómum sett hlið við hlið og þakið með mosa eða mómold. Það má einnig planta beint i þessar plastumbúðir, þvi þær halda vatni. Nú, svo má einnig mála þessar umbúðir i þeim litum sem hæfa umhverfinu. ATTU FÓT? Það er eiginlega sama hvers konar fót er um að ræða, aðeins að það sé fótur af húsgagni, sem er ekki lengur i notkun og helzt þarf þetta að vera fall- egur og lögulegur fótur. Þá er um að gera að saga á réttum stöðum, koma fyrir litilli plötu ofan á og mála siðan eða bæsa. Þá eigum við fallega hillu undir t.d. blómstrandi pottaplöntu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.