Tíminn - 11.02.1973, Síða 15
Kópasker i Norður-Þingeyjarsýslu.
mjög góð, það sem hún nær. Aftur
á móti er það svo með alla að-
drætti og meiri háttar flutninga,
að það eru ekki nema smæstu
skip, sem hér koma að bryggju,
og það er auðvitað ekki neitt sér-
lega þægilegt. Siðan Herðubreið
leið, hefur ekki verið nein áætlun
hingað á vegum Skipaútgerðar
rikisins. Og þótt hin nýju skip okk
ar hafi upphaflega verið smiðuð
fyrir erfiðar hafnir, þá hafa þau
nú enn ekki fengizt til þess að lita
hér við. Geta þó bæði Hekla og
Esja lagzt að bryggju hérna.
— Er ekki opið hér til hafsins,
þannig að ókyrrt sé á höfninni,
þegar misjöfn eru veður?
— Jú, það er alveg rétt. En
sjálf höfnin er ágætis lægi. Aftur á
móti er innsiglingin slæm i vondu
veðri.
— Við höfum nú minnzt á land-
búnað og sjávarútveg. En er
nokkur iðnaður hér?
— Varla er nú hægt að segja
það, að minnsta kósti ekki i stór-
um stil. Þó hefur um margra ára
skeið verið hér úti i Leirhöfn rek-
in Húfugerðin, sem margir munu
— Hér i þorpinu eru þeir rúm-
lega hundrað talsins.
— Þið eruð þá væntanlega laus
við stórborgaómenninguna?
— Við erum laus við kvöíd-
ófrið og næturlæti, og erum vissu-
lega mjög ánægð með það. En við
erum lika laus við ýmislegt, sem
við myndum gjarna vilja hafa,
eins og til dæmis læknisþjónustu.
Það er satt að segja til háborinn-
ar skammar, að ekki skuli finnast
nokkur einasta leið til þess að
bæta úr þvi ástandi,"sem hér rikir
i þeim efnum.
— Hafið þið lengi verið læknis-
lausir?
— Já, við höfum verið læknis-
lausir um árabil. Hér er ágætur
læknisbústaður og apótek fyrir
hendi, en húsið stendur autt. Það
á svo að heita, að okkur sé þjónað
af læknum á Húsavík, og ég held
ég megi segja, að þar sé læknir,
sem skráður er héraðslæknir
hérna, og kemur hér einu sinni i
hálfum mánuði.
— Eruð þið ekki svo heppnir,
að hér sé gift og búsett einhver
hjúkrunar- eða yfirsetukona?
Rætt við
kaupfélagsstjórann
á Kópaskeri
kannast við. Þar eru framLeiddar
skinnhúfur og vettlingar. A veg-
um kaupfélagsins hefur verið
starfrækt sláturgerð yfir vetur-
inn. Við búum til mikið af slátri,
sem við seljum aðallega Reyk-
vikingum. Þetta hefur gengið vel,
og það er alltaf nægur markaður
fyrir slátrið. Svo tókum við upp
það nýmæli i haust að auka for-
vinnslu, það er að segja, við út-
beinum kjöt, sem fer i Kjötiðn-
aðarstöð KEA á Akureyri, og af
þessu hefur skapazt töluverð at-
vinna. Ég tel þetta alveg rétta
stefnu, þvi að vitanlega er eðli-
legast, að slík vinnsla sé sem
mest framkvæmd úti um landið.
— Súrsið þið slátrið, eða seljið
þið það nýtt?
— Það hefur nær eingöngu
verið selt ósoðið og fyrsti.
— Og markaðurinn er nægur,
segirðu?
— Hin siðari ár hefur hann
virzt óþrjótandi.
Læknisleysi og
slæmar samgöngur
— Hvað eru margir ibúar hér á
Kópaskeri?
— Nei, hér á Kópaskeri er eng-
inn, sem má gefa sprautu, hvað
þá heldur meira. Það þarf auðvit-
að ekki mikið hugmyndaflug til
þess að gizka á, hvernig þetta er,
þegar allt er ófært, vegirnir á kafi
i snjó og ekki heldur flugveður,
eins og oft vill verða hér. 1 þess-
um efnum höfum við færzt langt
aftur á bak frá þvhsem var fyrir
nokkrum áratugum, og er sann-
arlega ekki gott til þess að vita,
einmitt á þessum timum, þegar
allir tala um framfarir og jafn-
vægi i byggð landsins.
Og það er fleira en heilbrigðis-
þjónustan, sem hefur gengið aftur
á bak i staðinn fyrir áfram. Fyrir
nokkrum árum hélt Flugfélag Is-
lands uppi föstum áætlunarferð-
um hingað og strandferðaskipin
lika, en nú er þetta hvort tveggja
niður lagt, og hefur ekki borið á
neinum áhuga i þá átt að auka
nokkuð þessa þjónustu, þrátt
fyrir óskir okkar.
Fræðslumál
— Hvernig eru fræðslumálin á
vegi stödd?
— Eiginlega er þar sömu sögu
að segja. Við erum þar á likum
vegi stödd og var um siðustu
aldamót. Hér á Kópaskeri er einn
litill og gamall barnaskóli og það
hefur verið þannig, að börnin
hafa þurft að ljúka skyldunámi
sinu i þrem skólum, það er að
segja hér, Lundi i Axarfirði og
Skúlagarði i Kelduhverfi.
— Það er alls staðar vel og
myndarlega byggt hér, sýnist
mér.
— Já. Hér á Kópaskeri er nú
verið að ljúka byggingu sjö nýrra
ibúðarhúsa, en i þeim efnum
hafði ekkert verið gert siðasta
áratuginn, eða siðan rétt upp úr
1960, svo að það var orðin full þörf
á að hefjast handa. 1 byggingu
þessara húsa var ráðizt fyrir for-
göngu kaupfélagsins, þar sem
okkur var ljóst, að húsnæðisvand-
ræði voru hér orðin mikil og ef við
ætluðum eitthvað að auka starf-
semi okkar, varð fyrst og fremst
að sjá um, að fólkið gæfi einhvers
staðar verið. Enda er það svo, að
hér vill fólk vera, svo framarlega
sem það getur notið hér þeirrar
lágmarksþjónustu og öryggis,
sem óhjákvæmilegt er að krefjast
— hvar sem maður á heima.
Hér vill fólk vera
— Heldur þú, að menn myndu
una sér vel hér og á öðrum af-
skekktum stöðum, til dæmis sem
þjónustumenn rikisstofnana?
— Persónulega er ég alveg
sannfærður um það, en auðvitað
er ekki enn farið að flytja fyrir-
tæki frá R.vík út á Landsbyggð-
ina, þótt mikið hafi veriö talað um
það hin siðari ár. Sjálfur hef ég
talað við ungt fólk, sem er i þann
veginn að stofna heimili, og það
lætur iðulega i ljós óskir um að
setjast að úti á landi. Ég er þann-
ig alveg viss um það, að
straumurinn er að snúast við og
að andinn i þessum málum er
allur annar en hann var fyrir
nokkrum árum.
— Og nú hafið þið lifað hér eitt-
hvert bezta sumar, sem komið
hefur i manna minnum?
— Já, sumarið var alveg ein-
stakt. Viða var það hagstætt, en
mér er til efs, að það hafi annars
staðar verið betra en hér á Norð-
Austurlandi.
— Hey eru þá bæði mikil og
góð?
— Já, þau eru viða svona um
það bil tvöfalt meiri en i meðal-
ári. Fyrir nokkrum árum kom
kalið mjög illa við bændur hér, en
nú eru menn alveg búnir að ná sér
eftir þau áföll.
— Menn una sér þá vel hér,
eins og þú sagðir áðan, og ekki
verr en i ysi þéttbýlisins?
__ — Ég held, að menn uni sér tvi-
mælalaust miklu betur hér. Það
er lfka fullkomlega eðlilegt, þvi
að það er miklu eðlilegra og heil-
brigðara lif, sem hér er iifað.
—VS.
Tvö
hollráð
tilallra bíleigenda
1. Að skipta um olíusíu
jafnoft og mælt er með
miðað við aðstæður.
2. Að nota góða tegund af síu.
AC sían hreinsar úr olíunni agnir og skaðleg
efni, sem auka slit vélarinnar. AC sían þolir
mikinn hita og þrýsting. Hún grípur agnir
helmingi smærri en hársbreidd manns.
Því meiri, sem þörfin er fyrir síu, því oftar
þarf að skipta um.
Hlustið á holl ráð — notið AC síur.
, A SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
$ Véladeild
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900