Tíminn - 11.02.1973, Page 32

Tíminn - 11.02.1973, Page 32
32 TiMINN Sunnudagur II. febrúar. 1973 alls frá 1938 rúmlega 5.000 sýnis- horn. Flest sýnishornanna hafa alla tlö veriö frá heilbrigöisyfir- völdunum, hin hafa veriö tekin i sambandi viö skipulagöar yfir- litsrannsóknir annarra opinberra aöila eöa send frá einstaklingum. Á fyrstu hernámsárunum (1940- 1942) var rannsakað mikiö af vatni, bæöi fyrir brezka og bandariska herinn. Voru sýnis- horn þessi vlðsvegar aö af landinu, þar sem settar voru upp herbúðir. Neyzluvatn allra kaup- staða rannsakað A árinu 1954 til 1955 tók Atvinnudeildin og rannskaöi neyzluvatn I öllum kaupstööum og kauptúnum landsins. Voru sýnishornin 85 að tölu tekin úr bæjarveitum og brunnum, i hraö- frystihúsum, sláturhúsum og mjólkurbúum. Flest voru sýnis- hornin tekin meö tilliti til freð- fiskframleiðslunnar, og var höfð um þaö samvinna við Fiskmat rikisins. Einnig voru i sama til- gangi tekin 14 sýnishorn af sjó, sem hraöfrystihús notuöu. Af þeim 85 sýnishornum af vatni, sem rannsökuð voru, reyndust 43 góö, 5gölluð og 37 (44%) ónothæf. Af sjósýnishornunum 14 reyndist 1 gott, 1 gallað og 12 ónothæf. Skýrlsa um þessar rannsóknir var aö sjálfsögðu send heil- brigöisyfirvöldunum, en hún fékkst ekki birt. Astandið þótti vist ekki gott til afspurnar. Arin 1960-1962 lét Fiskmatsráö rannsaka vatnið i öllum ver- stöðvum landsins, alls 96 sýnis- horn, og auk þess 58 sýnishorn af sjó, sem notaður var i fisk- verkunarstöðvum. Vatnssýnis- hornin voru tekin af 69 vatns- bólum, þar af 50 úr bæjarveitum. 1 32 af þessum vatnsbólum reyndist vatnið gott, ilOgallaöog i 27 (40%) ónothæft. A 16 stöðum reyndist sjórinn góður, á 5 gallaður og á 37 stöðum ónot- hæfur. Skýrsla um þessar rann- sóknir var strax send heilbrigðis- yfirvöldunum. Aðalniður- stöðurnar voru siöan birtar 5 árum siðar á ráðstefnu um vinnslu sjávarafurða, sem haldin var á vegum V.F.Í. árið 1967. Varð út af þvi talsverður úlfa- þytur. Hefur ástandið þvi ekki þótt gott til afspurnar, enda svipað og á árunum 1954-55. Arið 1961 Iét landlæknir eftir tilmælum Alþjóðaheilbrigöis- málastofnunarinnar, WHO, rann- saka vatn, sem notað er til skipa i helztu höfnum landsins. Þann 8. október 1962 gaf Fisk- matsráð út fyrirmæli til allra fiskvinnslustöðva þess efnis, að frá 1. janúar 1963 skyldi setja klór i allan sjó, er stöðvarnar notuðu til þvotta á fiski eða þrifa á húsum. bann 23. desember 1963 gaf svo Fiskmat rikisins út fyrir- mæli til hraðfrystihúsanna um að blanda klóri i „allt vatn eða sjó, sem notað er til þvotta á fiski, áhöldum, húsnæði eða til hand- þvotta fyrir verkafólk”. Var frystihúsunum gefinn frestur til 1. mai 1964 til þess að koma þessum framkvæmdum i kring. Alvarlegt vandamál Þann 13. marz 1967 skrifaði Fiskmatsráð bréf til heilbrigðis yfirvaldanna, þar sem farið var fram á liösinni þeirra viö að koma i lag vatnsmálunum i verstöövum landsins. í þessu bréfi stóð m.a.: „Skortur á vatni, hæfu til með- ferðar á matvælum, er orðið al- varlegt vandamál á Islandi. Er þetta sérstaklega tilfinnanlegt á þeim stööum, þar sem er mikil fiskverkun, einkum hraðfrysting, niðurlagning og niðursuða, eöa vélpillun á rækju. Fiskverkunar- stöðvum af þessu tagi hefur fjölgað mjög siöustu árin, og eru nú komnar ein eða fleiri i hvern kaupstað og kauptún umhverfis allt land”. Og ennfremur stóö i nefndu bréfi: „Enda þótt hrað- frystur fiskur sé stór liður i okkar fiskvinnslu og ein viökvæmasta vörutegundin, hvað hreinlæti snertir, þá eru hér ennþá fleiri aöilar, sem mikið eiga undir þvi komið að geta fengiö hreint vatn. Má þar til nefna allar aðrar tegundir fiskverkunar, sláturhús, kjötvinnslustöðvar, mjólkurbú og margskonar matvælaiðnað annan og siöast en ekki sizt sjálfa ibúa kaupstaða og kauptúna um allt land. Það er þvi augljóst, að skynsamlegasta leiöin i þessu máli er sú, að gera bæjar- veiturnar þannig úr garði, aö allir vatnsnotendur, bæöi ibúarnir og matvælaframleiöendurnir á staðnum, geti fengiö nóg af neyzluhæfu vatni. Það eru þvi sveitarstjórnirnar á hverjum stað, sem verða að leysa þetta mál með aðstoð heilbrigðis- stjórnarinnar” Þetta, sem tilfært var úr nefndu bréfi, á viö enn þann dag i dag. Aðrar skipulagðar rann- sóknir Af öðrum skipulögðum gerla- rannsóknum á vatni eða sjó, sem opinberir aöilar hafa látiö gera og gerladeild Rannsóknastofu fisk- iðnaöarins hefur framkvæmt, má nefna eftirfarandi: A árunum 1961-1966 lét Vatns- veita Reykjavikur hafa stöðugt gerlafræðilegt eftirlit með vatns- bóli borgarinnar, Gvendarbrunn- um. Var það gert til þess að komast að þvi, hver áhrif árstiðir, veðurfar o.fl. hefði á hreinleika vatnsins. Voru þarna alls rann- sökuð 687 sýnishorn af vatni frá 159 dögum. Árið 1969 var hafin á vegum Rafmagnsveitu Reykjavikur gerlafræðileg rannsókn á vatni Elliöaánna og aðrennsli þeirra með tilliti til laxaklaks og laxa- göngu. Standa þessar rannsóknir ennþá yfir. Siðastliðið sumar var á vegum Reykjavikurborgar ennfremur gerð itarleg rannsókn á gerla- gróðri sjávarins i nágrenni borgarinnar með tiliiti til mengunar af völdum skolps. Framkvæmd eftirlits Ég vil nota þetta tækifæri og gefa nokkrar bendingar þeim, sem eftirlit eiga að hafa með vatnsbólum og vatnsveitum úti um byggðir landsins, hvort sem þær eru fjær eða nær. Það er nauðsynlegt að taka sýnishorn af vatninu öðru hverju og senda til gerlarannsókna. Taka þarf sýnis- hornin undir mismunandi skil- yrðum, þ.e. á ýmsum timum ársins og i mismunandi veðri. Miklar úrkomur eða langvarandi þurrkar geta breytt vatns- bólunum mjög mikið, einnig þeim, sem aðeins flytja grunn- vatn. I frosti og snjó á veturna eru flest vatnsból i lagi, svo að góð útkoma gerlarannsóknar á vatninu á þeim tima árs undir sikum kringumstæðum er engin trygging fyrir þvi, að vatnsbólið sé gott. Og ennfremur: sýnishorn af vatni verður að taka með mikilli vandvirkni, eftir settum reglum, og það verður að berast á sem allra stytztum tima til rann- sóknastofunnar. Sé sýnishornið lengur á leiðinni en nokkrar klukkustundir, talið frá þvi, að það var tekið, verður að senda það i is. Hvað þarf að gera? Að lokum: Hvað þarf að gera hér á landi i vatnsmálunum til þess að allir vatnsnotendur, bæði ibúarnir og matvælaiðnaðurínn, fái sem fyrst nóg af neyzluhæfu vatni? Það, sem næst liggur fyrir að gera, er þetta: ÍBLÖNDUN KLÓRS 1 öllum þeim kaupstöðum og kauptúnum, á þeim veitinga- og gististöðum og i þeim skólum úti á landsbyggðinni, þar sem nú er notað yfirborðsvatn eða annað gallað vatn til neyzlu eða við mat- vælaframleiðslu, þar skal þegar i stað taka upp blöndun klórs i vatnið. JARÐBORUN A sömu stöðum skal reynt til hlitar að afla neyzluhæfs vatns með jarðborunum. Ganga þá fyrir þeir staðir, þar sem þörfin er mest. SANDSÍUR A þeim stöðum, þar sem jarð- boranir bera ekki árangur, skulu settar upp sandsiur fyrir vatnið með tilheyrandi tækjum til iblöndunar klórs. STÖDUGT EFTIRLIT Heilbrigðisnefndir á hverjum stað á landinu hafi stöðugt eftirlit meö hreinleika neyzluvatnsins i sinu umdæmi, hvort sem það er grunnvatn, úr lindum eða bor holum, eða yfirborðsvatn, hreinsað eða óhreinsað. Heilbrigðisyfirvöld landsins, sveitarstjórnir og samtök mat- vælaframleiðenda þurfa aö vinna að þvl I sameiningu að koma þessum hlutum i framkvæmd. Sandsfur fyrir vatn. SNIÐ B-B K.artl I 40 Im .1. i. ilniill„il-1---1----1---1 1 0 I 2 Jm lSAFJARDARKAUPSTAOUR Vatnsveita Isafjarbar Hús yfir vatnssiur Fyrirkomulag 68.20. 202 VIIKFl.CIISTirA SICIIIAI Tlllllim sr. mntiHi m«iii uju—ua-u. —1— — > * . !!.,!!!.*‘.,‘" !!*! .'.'.! Auglýs l endur Auglýsingar, sem eiga að koma í blaöinu á sunnudögum þurfa aö berast fyrir kl. 4 á föstudögum. Augl.stofa Timans er í Bankastræti 7. Simar: 19523 - 18300.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.