Tíminn - 11.02.1973, Qupperneq 34

Tíminn - 11.02.1973, Qupperneq 34
TÍMINN Sunnudagur 11. febrúar. 1973 21. mnfflii, i,,, m M m in m Grænvembill 1. Rekaviður. SIGGA þótti vænt um mömmu sína. Hann var alltaf að brjóta heilann um það, hvað hann gæti gert fyrir hana. Þegar hann vaknaði á morgnana, flýtti hann sér í fötin, hljóp ofan i f jöru. Þar tíndi hann sam- an spýtnarusl og bar heim. AAamma hans notaði það í eldinn. Hún hafði ekki pen- inga, til að kaupa kol fyrir, en hún þurfti að elda mat- inn og hlýja upp kofann, og þá kom sér vel að eiga svona vænan dreng, sem alltaf flutti heim nóg í eld- inn. Sjórinn var líka svo vænn, að bera alltaf heim nýjar og nýjar spýtur. Þær voru alla vega, og hver hafði sína sögu að segja. Sumar voru gamlar og maðksmognar, þæráttu sér langa sögu. Aðrar voru út hörðum, þungum viði, heflaðar og málaðar. Þær mundu fífil sinn fegri, þeg ar þær voru í fallegu skipi, þar sem f ína fólkið dansaði og hélt veizlur. En svo reiddist gamli Ægir, sjávarguðinn, og löðrung- aði skipið, þangað til það liðaðist sundur og allir drukknuðu. Þá sá Ægir gamli eftir öllu saman og flutti brotin úrskipinu upp í fjöruna, svo að litli drengurinn gæti gefið mömmu sinni þau í eldinn. Það voru nú ekki margar af spýtunum, sem höfðu svona merkilega sögu að segja. Flestar voru þær sívalar með kvistum út úr á allarhliðar. Þærhöfðu sög- ur að segja úr skógunum í Síberíu. Þeir voru þéttir og háir og fullir af villidýrum. Við erum tilbúnir til þessi að fara á braut um Merkúr. Þið verö^ý ^ið fyrstu gestirnir i stöðinni þ Erubeirað byrja að undirbúa okkur fyrir eitthvað mikið, Stundum hélt Siggi, að hann heði séð tannaför á greinunum. Þærsögðu hon- um frá langa vetrinum, þegar trén teygðu stirðnað limið út í ískalt vetrarloft- ið. Loksins fór að hlýna og b'rrta. Snjórinn varð að vatni, árnar flóðu yfir bakka. Allt fékk nýjan svip. Jörðin stóð ekki lengur þögul í hvítum hjúpi í kulda og dimmu. A/\eð birtunni og hlýjunni hvarf snjórinn, og fuglar og dýr færðust norður eftir. Gömlu trén skulfu. Þau höfðu alltaf staðið þarna í sömu sporum og voru orðin helstirð. Nú hlýnaði og hlýnaði. Árnar ultu fram kolmórauðar. Gömlu trén riðuðu og féllu loks í faðm árinnar. Hún tók þau og bar þau norður eftir, alla leið út í (shafið. Þartók hafstraumurinn við þeim og flutti þau fyrst vestur og svo suður. Sum þeirra komust alla leið til (slands og settust þar að í f jörunum. Siggi gat ekki ráðið við stóru trén. Bændurnir sendu sterka .vinnumenn með sagir, til þess að f letta þeim. Svo voru þau notuð í stoðir, mænilása og rafta í hlöður og fjós og fjárhús. AAórauða peysan með grænu bótinni. Það voru bara litlu greinarnar af stóru trján- um, sem Siggi réði við. Hann barþæroftast í fang- inu, því að það var stutt heim að kofanum. AAamma hans hafði oft engan poka til að Ijá honum, enda rúmuðust sumar spýturnar illa í poka. Það var líka orðið að vana fyrir honum, að safna saman, þangað til komið var fullt fang, og hlaupa þá með það heim. Siggi átti að fara í skóla um haustið. Þess vegna herti hann sig eins og hann gat við að safna eldiviði, svo mamma hefði nóg að brenna, þegar vetrarkuld- inn kæmi. Hann var svo ákafur við vinnuna, að hann gætti ekki að því, að fallega, mórauða peysan hans var smám saman að slitna að framan. Spýturn- ar voru hrufóttar og ýfðu upp ullarhárin framan á peysunni. Þegarkomið var fram undir haust, þá var það einu sinni, að mömmu drengsins sýndist hann hafa eitthvað hvítt framan á sér, og þegar hún gætti betur að, sá hún, að gat var komið á peysuna. Það var að sönnu lítið, en á stórum bletti kringum það var hún orðin næfurþunn. Nú voru góð ráð dýr. Það var lítið vit í að leggja í skólagöngu í misjöfnu veðri með slitin hlífðarföt. AAamma færði hval- hryggjarliðinn að hlóðun- um og settist á hann. Spýturnar, sem Siggi hafði flutt heim brunnu glatt undir pottinum. Framhald næsta laugardag

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.