Tíminn - 26.08.1973, Side 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 26. ágúst 1973.
'
Allar málningarvörur
emnig Tóna- og Oska-litir
6002 litir
UTAVER
Ilin glæsilcga hertogahöll séö utan af ióninu.
Hertogahöllin
í Feneyjum
Sólin skein á Markúsatorgiö og
stórir dúfnahópar spfgsporuöu
þar letilega innan um feröa-
mennina, sem voru nánast eins og
.1 inn i
jtaver
Giensásveni
jólatré, skreytt meö myndavél-
um. Yfir á horninu viö klukkuturn
Markúsarkirkjunnar, lyfti enskur
kennari upp regnhlff sinni og
áminnti nemendur sina um aö
hafa hljótt meöan hann gæfi
skýringar sinar.
— Þið eruð heppnir strákar, að
ég skuli ekki biðja ykkur að at-
huga köfunartækin, áður en viö
förum um borð. Nú skuluð þið fá
að sjá dálitið, sem börnum ykkar
auðnast aldrei að sjá, nema þau
verði froskmenn.
AUt sem þið sjáiö hér um-
hverfis ykkur var byggt fyrir
næstum 900 árum. Þá voru reistar
tignarlegar byggingar og
skreyttar með miklum listaverk-
um. Þetta átti ekki einungis að
vera þálifandi kynslóð til ánægju,
heldur einnig þeim, sem á eftir
kæmu. Nú á timum eyðileggjast
þessar byggingar með ógnar-
hraða. Torgið, sem við stöndum
á, sigur hægt i hafið, sentimetra
eftir sentimetra, vegna þess að
vatnið undir landinu er tekið og
notað til iðnarins. Húsin,
stytturnar, málverkin,
freskurnar og öll listaverkin
molna niður — étast upp i þessu
brennisteinsrika lofti.
I bát fyrir torgið
— Farið inn i Markúsar-
kirkjuna, hélt kennarinn áfram.
— Sjáið hvernig hin fögru
marmaragólf ganga i bylgjum
eins og haf. Litið á hinar fögru
styttur i hertogahöllinni og sjáið
hvernig þær eyöast upp.
Ef einhver hefur ekki vilja og
getu til að stöðva þessa eyði-
leggingu i tima, þá munu börn
ykkar i framtiðinni sigla bátum
hátt uppi yfir Markúsartorginu.
Kannsi bregða þau sér i frosk-
mannsbúning og kafa niður i oliu-
mengað og slimugt vatnið til að
leita að inngangi i hina fögru
kirkju og hin dásamlegu fögru
hús, sem finnast niðri i djúpinu.
Þau munu þurrka oliuna af sjón-
glerinu, kveikja á ljóskösturum
og eygja glampa af fögru mósaik-
gólfi, marmarasúlum og leifum
fagurra stytta. Við skulum þakka
fyrir að fá að sjá alla þessa
fegurð, meðan hún er enn til....
Kennarinn gekk löngum skref-
um á undan nemendahópi sinum
yfir torgið og meðfram hertoga-
höllinni.
Það voru mikil þrengsli þarna i
kjarna Feneyjaborgar og helzt
Alls staðar i sölum hallarinnar eru gyllt listaverk og útskuröur eftir
mestu listamenn fortiöarinnar.