Tíminn - 26.08.1973, Blaðsíða 26

Tíminn - 26.08.1973, Blaðsíða 26
26 TÍIVÍII^N^ ' Surihödágur'2S:"ág'úsf Td7lá'.'v AAátaði heimsmeistara í skák og markverðirnir verða ósjaldan mát SJÁLF’SAGT vita fáir, að meðal islenzkra 1. deildar leikmanna i knattspyrnu leynist maður sem unnið hefur sér það til ágætis að leggja heimsmeistara i skák að velli. Sá maður er Guðmundur Þórðar- son, miðherji Breiða- bliks, þúsund þjala smiður á iþróttasviðinu. Guðmundur var átján ára gamall, þegar hann tefldi við Tai frá Sovét- rikjunum, sem þá hafði orðið heimsmeistari i skák. Var Guðmundur einn fjögurra mennta- skólapilta, sem unnu það afrek að bera sigur- orð af þessum fræga sovézka skáksnillingi, þegar hann tefldi fjöl- tefli i Reykjavik. Siðar varð Guðmundur Kópa- vogsmeistari i skák, en hefur heldur litið teflt opinberlega á siöustu árum, nema gegn mark- vörðum 2. og 1 deildar liðanna á knattspyrnu- vellinum, og máta þá ósjaldan. t landslcik á Laugardalsvelli gegn Englendingum Enda þótt Guðmundur, sem nú er 28 ára gamall, sé þekktasti iþróttamaður Kópavogs, er hann borinn og barnfæddur Reyk- vikingur. Og það, sem meira er, að um nokkurt skeið lék hann knattspyrnu með elzta og virðu- legasta knattspyrnufélagi Reykjavikur, KR, og varð íslandsmeistari með þvi félagi i 2. aldursflokki, auk þess, sem hann varð margsinnis Reykjavikur- meistari. Fjöíhæfur iþróttamaður Meðal iþróttaáhugamanna er Guðmundur þekktastur sem knattspyrnumaður, miðherji Blikanna úr Kópavogi, sem nú eiga i vök að verjast i 1. deildar keppninni. En honum er einnig margt annað til lista lagt á iþróttasviðinu. Til að mynda var hann um skeið i hópi hins myndarlega frjálsirþóttafólks úr Kópavogi og hljóp þá hraðar og stökk lengra en flestir aðrir. Hefði hann eflaust átt framtið fyrir sér i frjálsiþróttum hefði hann lagt þær fyrir sig. Ekki má heldur gleyma þátttöku hans i handknattleik. Hann lék um margra ára skeið i miestara- flokki Breiðabliks i 2. deild, og eitt sinn var hann valinn til æf- inga með unglingalandsliðinu. Siðast en ekki sizt er ástæða til að nefna þátttöku hans i skákiþrótt- inni, sem heillaði hann ungan að árum. Náði hann þeim árangri i skák að hljóta sæti i unglinga- flokKÍ i Norðurlandamótinu, sem haldið var hér. h En i huga hans var knattspyrn- an efst á blaði, og það er sú iþróttagrein, sem hann hefur lagt mesta rækt við. Var of ungur Þegar Kópavogskaupstaður var að byggjast upp með gifur- legum hraða á árunum milli 1950- 60 og eftir 1960 gieymdist, eöa öll heldur var ekki timi til, að sinna ýmsum félagslegum verkefnum, svo sem að byggja iþróttasvæði handa unglingum og skapa þeim þá aðstöðu, er þeir þurfa til að geta fengið útrás i leik og önn. En áhugasamir strákar setja það ekki fyrir sig, þótt aðstaðan sé ekki fullkomin. Þeir finna sér á- vallt vettvang fyrir leiki sina. Upp úr 1960, og raunar dálitið fyrr, var Guðmundur farinn að leika sér með piltum, sem voru nokkru eldri en hann. Þeirra á meðal voru Reynir Jónsson og bræðurnir Daði og Guðmundur Jónssynir. Knattspyrnan hreif þá, sem aðra og þeir skipuðu sér undir merki Breiöabliks, hins unga félags, sem þá var að leggja á brattann. Þeir saman i 3. aldursflokki, endar þótt Guð- mundur Þórðarson ætti i raun réttri að leika með næsta aldurs- flokki fyrirneðan. En þá var Breiðablik svo fátækt, að það átti engan 4. flokkinn. Aldursmunurinn varð til þess, að Guðmundi fannst hann ekki eiga samleið með eldri piltunum i Kópavogi. Og þegar hann hafði leikið tvö ár með 3. flokki, ákvað hann að skiþta um félag og ganga I raðir KR-inga, enda átti hann tvö ár enn þá fyrir höndum i þessum aldursflokki, þegar félagar hans i Breiðablik gengu upp i næsta flokk fyrir ofan. Hart er barizt i vitateigi Vikings. Guðmundur gerir sig liklegan til að spyrna knettinum i mark. Undi vel i KR Þannig gerðist það, að Guð- mundur tengdist Reykjavik aftur, en 6 ára gamall hafði hann flutzt til Kópavogs. Guðmundi likaði vistin i KR vel. KR-strakarnir voru mjög góðir um þessar mundir, en i þessum hópi voru meðal annarra Þórður Jónsson, Arsæll Kjartans- son, Hörður Markan og Guð- mundur Pétursson, sem siðar urðu landsfrægir knattspyrnu- menn. Var hópurinn mjög sam- Guðmundur Þórðarson er sannkallaður þúsund þjala smiður c íþróttasviðinu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.