Tíminn - 26.08.1973, Blaðsíða 7

Tíminn - 26.08.1973, Blaðsíða 7
Sunnudagur 26. ágúst 1973. TÍMINN 7 bréfarusl, sorp og jarðvegsefni þyrluðust fyrir köldum vindinum þegar bilarnir óku i loftinu fram- hjá fiskhúsunum og slorug húsin voru kofótt allt árið upp að strompi. Ef til vill er munurinn þó mestur á gúanó verksmiðjunni. Þeir, sem komið hafa i sildar- verksmiðjur, eins og þær voru, þegar sildin var og hét, myndu ekki trúa þvi að þetta væri sildar- verksmiðja, nema af þvi að þeim var sagt það, — þetta minnir orðið meir á visindastöð og karl- arnir nota öskubakka, þegar þeir reykja, þvi hvitskúruð gólfin eru ekki lengur til að trampa á stubbum. Svo stór eru umskiptin, þar sem menn óðu grútinn i klof. Vinnsluefnið — þ.e. sild eða loðna er geymd i lokuðum tönkum, nema kennske i mestu álags- toppunum. Þegar skoðunar- ferðinni var lokið, báðum við Aðalstein að segja okkur ögn frá fyrirtækjum sinum og varð hann góðfúslega við þvi: Hraðfrystihúsið — almenningshlutafélaga? Ég tók við stjórn Hraðfrysti- húss Eskifjarðar hf. árið 1960 er hlutafé hússins, sem átti i miklum rekstrarörðugleikum var aukið. Lögðum við bræðurnir fram hálfa milljón króna, en félagið hafði verið opnað fyrir nýjum hluthöf- um. Keyptum við 2/3 hluta hússins. Aðrir eigendur eru, auk ýmissa bæjarbúa, kaupfélagið hreppurinn og pöntunarfélagið. Núverandi stjórn þess skipa þessir menn: Kristinn Jónsson, sem er formaður en aörir i stjórn eru Vöggur Jónsson, Guðmundur Auðbjörnsson Karl Sigmundsson og Jóhann Clausen. Segja má þvi að þetta sé eins konar al- menningshlutafélag. A þessum árum voru miklir erfiðleikar i rekstri hraðfrysti- húsa. Það, sem aðallega hamlaði starfseminni var fiskleysi og hrá- efnisskortur, og það sem gerði okkur kleift að eignast þetta hús, var að við áttum nýjan bát, Jón Kjartansson SU 111 sem hægt var að láta leggja upp, svo umtals- verð aukning yrði á hráefni fyrir húsið. Þá var einnig verið að smiða Hólmanes SU, en ekki hafði verið hægt að leysa bátinn út, eða borga hann. Siðar kom vélskipið Vattarnes og þá var sæmilega séð fyrir hráefni handa hraðfrystihúsinu. Sildarverksmiðja i hjarta bæjarins sildin fór yfir aðalgötuna Resktur hraðfrystihússins hefur sfðan gengið þokkalega vel. Arið 1960 kom sildin og i raun og veru breytti það öllu hér á Austurlandi. Að visu tók hrað- frystihúsið ekki þátt i sildar- söltun, en hins vegar frystum við sild af kappi, eftir þvi sem tæki- færi voru til, en frystihúsið átti litla sildarverksmiöju, eða fiski- mjölsverksmiðju. Þessi verk- smiðja var fljótlega stækkuð, þannig að hún gat unnið um 200 lestir af sild á sólarhring. Verk- smiðjan var hins vegar mjögilla staðsett var ofan vi'ð aðalgötuna, sem liggur framan við þorpið meðfram sjónum og svo var hún i hjarta bæjarins i þokkabót. Fara varð með alla sild yfir aðal- götuna. Þetta gat auðvitað ekki gengið og fórum við fljótlega að hugleiða að reisa nýja sildarverk- smiðju, en það var auövitað gert i framhaldi af auknum sildarafla og batnandi hag fyrirtækisins. Verksmiðjunni var valinn staður i fjarðarbotninum, þar sem flat- lendi er og nægjanlegt svigrúm fyrir iðnað. Þar voru gerð nauð- synleg hafnarmannvirki og leggjast skipin að verksmiðju- dyrum og sildinni er dælt úr skipunum gegnum sjálfvirka vog og i stálgeyma, þar sem sildin bfður vinnslu. Þó hefur þvi miður reynzt nauðsynlegt að geyma loðnuna i opinni steinþró, þar eð svo mikið berst á land á skömmum tima, eins og öllum er kunnugt Fullkomnasta verk- smiðja landsins Ég tel þetta vera einhverja full- komnustu sildarverksmiðju á landinu, bæði hvað varðar nýtingu og framleiðslugæði og hreinlæti er meira hér, en hægt er að viðhafa annars staðar. Vélsmiðjan Héðinn smiðaði verksmiðjuna að öllu leyti og henni ber mikill heiður fyrir vinnubrögðin. Nýja sildarverksmiðjan tók til starfa árið 1967, eða siðasta árið, sem sildarafli barst hér á land að nokkru ráði. Það sumar var einnig brætt i gömlu verk- smiðjunni, en siðan var hún tekin ofan og seld til Hornafjarðar, þar sem hún er nú, enda flestar vélar nýjar. Verkefni nýju sildarverk- smiðjunnar hefur þvi ekki orðið sildin, heldur loðna og á siðustu liðnuvertið tókum við á móti 30.000 tonnum af loðnu og voru út- flutningsverðmæti þess afla um 250 milljónir króna. Ennfremur vinnur verksmiðjan fiskúrganga frá hraðfrystihúsinu allt árið og annað tilfallandi hráefni. Hraðfrystihúsið endur- bætt ekkert sparað Nú standa yfir gagngerðar endurbætur á hraðfrystihúsinu á Eskifirði. Húsið, sem fyrir var er endurbætt og stækkað. Segja má, að við séum að verða tilbúnir með nýja álmu, þar sem verða flökunarsalir, aðstaða fyrir starfsfólk, svo sem kaffistofa, snyrtiherbergi og fl. Þegar þessari álmu er lokið, munum við brjóta veggina inn i núverandi vinnusal og loka i þrjár vikur, meðan verið er að fullgera sameiningu húshlutanna. Ekkert er til sparað, að allt megi vera sem bezt úr garði gert. Hér er alls staðar flisalagt meö postulins- flisum og gólf i vinnslusölum eru flisalögð og terrasso-gólf eru i öðrum húshlutum. Allir, sem inn ganga verða að stiga ofan i gryfju með „sótthreinsandi” vökva, þvi það dugar ekki að fólk beri með sér óhreindindi inn i húsin. Hurðir eru úr ryðfriu stáli, sem er nýmæli, svo það er hægt aö beita hreinsitækjum á alla hluti hér. Eskifjörður með oliumöl á götur Þessar endurbætur munu ekki auka afköst hraðfrystihússins verulega, heldur tryggja þvi átölulaus skilyrði til matvæla- framleiöslu i framtiðinni. Þessar endurbætur munu kosta um 26 milljónir króna, sem er vel slopp- ið, þvi nýtt hraðfrystihús af þess- ari stærð myndi kosta 80—100 milljónir króna. Nú hefur verið lögð oliumöl á helztu götur bæjar- ins og hefur það gjörbreytt að- stöðu okkar hérna til hreinlætis- mála. Á bæjarfélagið mikinn heiður skilið fyrir athafnasemina, þvi Eskifjörður er óþekkjanlegur bær. Saltfiskur og vélar Auk endursmiðar hraðfrysti- hússins, höfum við tekið i notkun vinnslueiningu fyrir saltfisk. Þar höfum við fengið settar niður full komnar flatningsvélar, sem af- kasta um 50 tonnum af fiski á 10 klukkustundum. Þar höfum við komið upp þurrkklefa fyrir salt- fisk. Oll saltvinnslan er endur skipulögð og vélvædd. Við hugs- um okkur saltfiskverkunina fyrst og fremst sem vinnslueiningu til að taka við álagstoppum.þegar of mikið hráefni berst að landi. Fiskurinn er saltaður i pækli i málmkerum, sem lyftarar geta ekið með og við treystum á vélar, fremur en handaflið, en miklar framfarir hafa orðið i saltfisk- verkuninni.- Notum við aðstoðar SIF og Lofts Jónssonar verkfræð ings þar, til að endurskipuleggja og byggja um saltfiskverkunina. Hluti af saltriskverkuiiinni hjá Hraðfrystihúsi Kskifjarðar. Vélasanistæðan fremst á myndinni afkastar 511 tonnum af þorski á 10 klukkutimum : þ.e. hausar og fletur það magn. Síðan cr fiskurinn pækilsaltaður i kör, sem gaffallyftari gctur flutt. Þá er fiskinum umstaflað, unz hann að siðustu cr þurrkaður i þurrk- húsi. Þessi vinnslueining er skipulögðaf vcrkfræðingi SIF og þarf sárafátt starfsfólk lil vinnslunnar, en saltfiskurinn var áður mannfrekasti fiskiðnaðurinn. Heildarverðmæti 350 milljónir króna — Skuttogarar Heildarverðmæti fiskiðnaðar- ins hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarð- ar (útflutningsverðmæti) var um 350 milljónir á ári, og hjá okkur starfá um 150 manns i landi og launagreiðslur i ár verða um 70 milljónir króna. Hráefnisöflunin hvilir nú mest á skuttogaranum Hólmatindi, sem keyptur var til landsins frá Frakklandi fyrir tveimur árum. Þetta er meðalstór togari og hef- ur aflar mjög vel, veiðir togarinn um 3.400 tonn á ári, eða 100—160 tonn á viku. Skipstjóri hefur verið Auðunn Hermannsson, kunnur aflamaður, en hann er nú nýhætt- ur, en við hefur tekið Sigurður Magnússon. Útgerð og rekstur togarans hefur gengið mjög vel. Nú er i smiðum annar skuttogari á Spáni fyrir okkur og kaupfélag Héraðs- búa. Eigum við þennan togara saman, en öllum fiskinum verður skipað upp hér og verður aflanum aö hluta ekið inn til Reyðarfjarð- ar, en þar er kaupfélagið með ágætt hraðfrystihús, sem nýlega hefur verið endurnýjaö. Við erum mjögánægöir meö þetta samstarf við nábúa okkar á Reyðarfirði. Þetta mun efla fiskiðnaðinn hér um slóðir til mikilla muna. Ég tel mjög hagkvæmt ef fleiri aðilar geta sameinazt um fjárfrekar framkvæmdir og atvinnutæki. Kristján Sigurftsson, skrifstofustjóri llrafifrystihúss Kskifjarftar hf. Ilann, ásaml Magnúsi Rjarnasyni fulllrúa sjá um reikningshlift rekstursins. Stjórnvöld og Landsbankinn sýndu áhuga á framförum Að lokum spurðum viö Aðal- stein hverju hann þakkaöi mest hina miklu uppbyggingu fiskiðn- aðarins á Eskifirði? — Það er nú dálilið erfitt að svara þessu. Sjórinn hcfur veriö gjöfull. Að öðru leyti hafa stjórn- völd og Landsbanki lslands sýnt þessu mikinn skilning. Ef banka- stjórnin hefði ekki sýnt okkur traust og áhuga fyrir þvi að koma hér upp fullkomnum liskiönaði, hefði þetta allt gengið öðruvisi fyrir sig, segir Aðalsteinn Jóns- son að lokum. JG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.