Tíminn - 26.08.1973, Page 18

Tíminn - 26.08.1973, Page 18
18 TÍMINISr Sunnudagur 26. águst 1973. Menn og málofni Kaupmátturinn og þjóðartekjurnar Frá loAnuvertl&inni. lilutur lo&nunnar I þjó&artekjunum er stör. Samt er spíft, a& vöxtur þjó&artekna muni hægjast veruiega i þessu ári. Út er komið á vegum Hag- rannsóknadeildar Framkvæmda- stofnunarinnar „Þjóðarbúskap- urinn”, 3. hefti, yfirlit um afkomu ársins 1972 og horfurnar á árinu 1973. 1 inngangi aö þessari skýrslu Hagrannsóknadeildar segir: „Þjóðarframleiðslan jókst um 6% á árinu 1972, en þjóðartekjur nokkru minna, vegna óhagstæðr- ar breytingar viöskiptakjara, eða um rúmlega 5%. Þótt aukning þjóöarframleiðslu og tekna hafi þannig verið vel I meðallagi mið- aö við reynslu siöustu tveggja áratuga hér á landi og reyndar meiri en i flestum nálægum lönd- um, dró verulega úr hagvexti á árinu 1972miðað við árin tvö næst á undan. Hægari vöxtur þjóöarfram- leiöslu og þjóöartekna á árinu 1972 en árin 1970 og 1971 á sér einkum tvær skýringar. Hin fyrri er, að á árunum 1969-1971 var ver- ið að vinna upp slaka i nýtingu framleiðslugetu þjóðarbúsins, en þegar leiö á áriö 1971, var fram- leiðslukerfið að mestu fullnýtt og þvi minna svigrúm til fram- leiösluaukningar en áður, ekki sizt eftir aö almenn stytting dag- vinnutlmans var ákveðin I desember 1971. Jafnframt tók a& gæta á árinu 1971 og áfram 1972 áhrifa minnkandi þorskafla þrátt fyrir aukna sókn. Hin meginskýr- ing hxgari hagvaxtar er sú, að viðskiptakjör þjóðarinnar rýrn- uðu á árinu 19721 fyrsta skipti sfð- an 1968, en höfðu á hinn bóginn farið ört batnandi bsði 1970 og 1971. Viðskiptakjararýrnunin 1972 stafaði að miklu leyti af erlendum gengisbreytingum tslendingum i óhag á árunum 1971 og 1972. Gengi flestra evrópskra gjald- miöla, sem eru rikjandi I inn- flutningsverðlagi, hækkaöi gagn- vart islenzku krónunni og Banda- rlkjadollar, en hann vegur þungt I gjaldeyristekjum þjóöarinnar. A árinu 1972 komu fram skýr merki umframeftirspurnar, sem ásamt kostnaöaráhrifum kjarasamninganna i árslok 1971 og óvenjumiklum erlendum veröhækkunum ' leiddu til mun meiri almennrar ver hækkunar en árið áður, eöa 16% samanboriö viö 12% á mæli- kvarða verðvisitölu þjóöarfram- leiöslu. Þessi þróun fylgdi gamal- kunnu mynztri, þar sem tekju- auking sjávarútvegs veröur — með nokkurri töf — aflvaki al- mennrar efnahagsþenslu innan- lands, sem leiðir til hækkandi verðlags og framleiöslukostnaö- ar, er ekki veröur aftur snúið, þótt slái i baksegl hjá sjávarút- veginum. A árinu 1972 fór saman, aö allmikið dró úr hækkun út- flutningsverölags og þorskafli dróst saman, og á hinn bóginn jókst almenn innlend eftirspurn, og veröbólga rýröi samkeppnis- stöðu útflutningsatvinnuveganna. Þegar skyggnzt var fram á viö um haustiö stefndi þetta misgengi að versnandi viöskiptastöðu þjóðarbúsins út á við og ótryggu atvinnuástandi. Þessar horfur voru ástæöa þess, að gengi krón- unnar var lækkaö um 10,7% hinn 17. desember 1972.f Hagvöxtur hægist Horfur eru á, að hagvöxtur hægist enn á árinu 1973. Búizt er vib, aö aukning þjóöarframleiöslu geti oröiö 3-4%. A hinn bóginn er nú fyrirsjánlegt, að viöskiptakjör batna verulega á árinu 1973, þar sem útflutningsverðlag hækkar enn meira en ört hækkandi inn- flutningsverðlag. Aukning þjóðartekna gæti þvi oröiö 5-6%, eð svipuð og 1972. Hér vegur þungt góöur loðnuafli og afar hátt verðlag á fiskmjöli og lýsi, en einnig hagstæð þróun I verðlagi þorskafurða. 1 ár gætir enn eöli- legra takmarkana á framleiöslu- getu. Framleiðsluöflin eru fullnýtt, og horfur eru á, að þorskafli minnki enn. Jarðeldur- inn I Heimaey, sem gert hefur mikilvægustu verstöð landsins óstarfhæfa um sinn, sker&ir einn- ig vaxtarmegin þjóðarbúsins. Þótt vöxtur almennrar inn- lendrar eftirspurnar ver&i mun hægari 1973 en á næstliðnum ár- um ber hagþróun fyrstu mánaða þessa árs svip mikiis eftirspurna- þrýstings. A sáma tima hafá ver- ib skýr merki þess, aö veröbólga innanlands væri aö magnast, bæði vegna vixlhækkana verölags og kaupgjalds af innlendum upp- runa og af völdum sterkra verö- bólguáhrifa erlendis frá vegna ört hækkandi verðlags bæbi á útflutn- ingi og innflutningi á heimsmark- aði, en einnig I kjölfar gengis- lækkunar krónunnar á siðata ári og gengishækkana margra mikil- vægra erlendra mynta gagnvart Bandarlkjadollar. Gengishækkunin Gengishækkun krónunnar i aprlllok um 6%), og slöar skráning Islenzku kronunnar ofan viö hiö leyföa 2,25% frávik frá stofngengi með bráöabirgðalagaheimild sfö- an i júnl, hafa hamlaö nokkuö gegn þessari verölagsþróun, ásamt þeim hliðarráðstöfunum, sem fylgdu gengishækkuninni i formi veröniöurfærslu, vaxta- hækkunar og aukinnar innláns- bindingar. A hinn bóginn er þegar ljóst, aö veröbólga veröur I enn rikari mæli en fyrr helzta efna- hagsvandamál ársins 1973. Ver&hækkunin milli 1972 og 1973 er áætlub 23% á mælikvar&a verövisitölu þjóbarframleibslu. 1 þessari þróun veldur miklu óvenjulega mikil verðhækkun innflutnings i erlendri myht, sem nú er áætluö nálega 10%, auk þess sem sifelldar gengisbreytingar erlendis hafa valdiö verulegum veröhækkunum hér á landi. Hins vegar er vafalaust, ab verb- og tekjumyndunarkerfiö og þróun eftirspurnar innanlands á hér stærstan hiut ab máli. Verulegar veröhækkanir á fisk- afuröum undanfarna mánuði valda þvi. að horfur um afkomu sjávarútvegs og greiöslujöfnuð við útlönd fyrir áriö I ár eru betri en búizt haf&i veriö viö i upphafi ársins og fela i sér nokkurn bata frá fyrra ári. A hinn bóginn getur hin öra veröbólguþróun innan- lands á siöustu mánuöum stefnt hvoru tveggja i hættu þegar fram i sækir, greiöslujöfnuði og sam- keppnisstööu útflutnings og ann- arra greina, sem mæta erlendri samkeppni — ekki sizt út- flutningsiönaöar — og þjónustu- greina sem ekki hafa notiö er- lendra verðhækkana til jafns viö sjávarútveg. Þrálát verðbólguþróun hér á landi siðustu 35 árin sýnir glöggt, hve erfiðlega hefur gengið að hafa i senn hemil á verðbólgunni og tryggja stöðuga framleiöslu og atvinnu. t reynd hefur viöfangs- efni efnahagsstefnu oftast veriö val milli mismunandi leiöa til þess að ey&a óæskilegum áhrifum ver&bólgúnnar fremur en val milli veröbólgu og veröfestu. Arangursrikt andóf gegn Verðbólgu hlýtur ab byggjast á samstilltum aðgerðum á svi&i launa-og verölagsmála, fjármála rikisins og annarra opinberra aö- ila og gengis-, peninga- og lána- mála. Hinir almennu kjarasamning- ar, sem standa fyrir dyrum i haust — bæöi milli ASt og vinnu- veitenda og BSRB, BHM og ríkis- ins — ráöa miklu um þab, hvernig til tekst i þessum efnum á árinu 1974”. 18.2% kaup- máttaraukninq 1972 Um þróun tekna og verölags á árinu 1972 segir I töflu á bls. 30 i skýrslunni, aö kauptaxtar laun- þega hafi hækkað um 27,5% á ár- inu 1972, en heildaratvinnutekjur einstaklinga um 30,5%. Kaupmáttur atvinnutekna hafi aukizt um 18,2% á árinu 1972 mið- aö við framfærslukostnaö, og kaupmáttur „ráöstöfunartekna heimilanna" um 12.5% miðaö viö verölag vöru og þjónustu. I skýrslunni er bent á, aö á ár- unum 1970 til 1972 hafi kaupmátt- ur rá&stöfunartekna heimilanna aukizt um tæp 50% miöaö viö visitölu vöru og þjónustu, en á sama timabili hafi vergar þjóöar- tekjur aöeins aukizt um 30%, þannig a& kaupmáttur tekna ein- staklinga og einkaneyzla hafi þannig aukizt mun meira en þjóöartekjur og sé munurinn einkum verulegur á árinu 1972. Kaupmátturinn vex hraðar en þjóðartekjurnar Þetta sýnir, aö kaupmætti tekna einstaklinga hefur veriö haldib hærri en aukningu þjóöar- tekna hefur numiö, en sliku ástandi er ógerlegt að viðhalda um lengri tima án þess aö verð- bólguþróun veröi Veruleg. Eins og fram kom hér i upphafi hefur á móti blásiö á þessu ári og aukning þjó&artekna enn hægt á sér, en aukning þjóöarframleiösl unnar var 6% á árinu 1972. A þvi ári minnkaöi magn sjávaraflans og enda þótt útflutningsverðlag sjávarafurða hækkaöi aö meöal- tali um 10% á þvi ári, dró veru- lega úr vexti útflutningstekna sjávarútvegsins. I skýrslunni segir, aö heldur horfl dauflega meö þorslcveiöar á þessu ári og megi þvi búast viö, aö úr vexti þjóöarframleiöslu dragi i árinu 1973. Sú skeröing framlei&slugetu sjávarútvegs og þjó&arbúsins i heild, sem eldgosið á Heimaey valdi, setji vexti þjóöarframleiðslunnar enn þrengri skor&ur á þessu ári. Þessi áhrif séu aö visu afar vandmetin. Ef eldgosið hef&i ekki komiö til hef&i mátt búast vib 4-5% aukningu framleiöslugetu á árinu 1973, en vegna eldgossins geti þessi tala lækkaö um 1-1,5%. Verðlags- og tekjuþróun 1973 Um verölags- og tekjuþsóun á árinu 1973 segir m.a. i skýrsl- unni: „Nú er spáö heildarveröhækk- un innflutnings i erlendri mynt um 9-10% milli ársmeöaltals 1972 og 1973. Þetta er mun meiri verðhækkun en spáö var við upp- haf ársins, en þaö stafar aöallega af mjög miklum veröhækkunum ýmissa mikilvægra vöruflokka á fyrstu mánuðum þessa árs, svo sem timburs, járns og stáls, pappirs, kornvöru, sykurs, kaffis o.fl. Búizt er viö nokkru minni al- mennri veröhækkun innfiuttrar neyzluvöru, en þó er nú spáö aö ver&lag innfluttrar neyzluvöru i erlendri mynt hækki um 7-8% á þessu ári, en viö þaö bætast 2 1/2—3 1/2% ofan á heildarhækkun neyzluvöruverölags. Auk þess eru ýmsar erlendar ver&hækkanir á si&asta ári, sem koma. ekki inn i visitöluna fyrr en I ár, og jafn- gilda þær sennilega um 1/2% ver&hækkun. Hinn 1. marz sl. hækka&i kaup- Iag almennt um 12-13% vegna umsaminnar hækkunar grunn- kaups og hækkunar kaupgrei&slu- visitölu, og hinn 1. júni hækkaöi kaup um rúmlega 5% viö hækkun kaupgreibsluvísitölu. Mjög er erfitt aö meta áhrif hækkunar launakostnaöar á ver&lag, en lauslegar áætlanir, sem byggöar eru á sambandi launakostnaöar- hækkana og verölags undir mikl- um eftirspurnarþrýstingi, benda til hækkunar neyzluvöruverös af þessum sökum um 9-10% yfir ár- iö. Eru þá me&talin áhrif frekari kauphækkana yfir áriö i hátt viö hækkanir framfærsluvisitölu (F- visitölu), samkvæmt verð- tryggingarákvæðum nær allra núgildandi kjarasamninga, en einnig gætir hér áhrifa kauphækkana á si&asta ári. sem komu seinna fram I verðlagi en ella vegna verðstöðvunar á siðari hluta árs i fyrra. Eins og þegar var getiö, eru allar veröhækkanir háöar samþykki Verðlagsnefndar og endanlega rikisstjórnarinnar og tæti þessi meðferð verölags- mála haft áhrif á tlmasetningu meiri háttar veröákvaröana. 1 verðlagsspánni, sem hér fer á eft- ir, er gert ráð fyrir, að þetta fyr- irkomulag haldist óbreytt. Þróun neyzluvöruverðlags mun einnig ráöast af breytingum óbeinna skatta og niðurgreiðslna. Hinn 21. desember sl. var útsöluverö áfengis hækkað um 30% og verð á tóbaki um 22%, sem olli um 1,4% hækkun neyzluvöruverðlags, en I maibyrjun sl. var verð á tóbaki lækkað um 5%. Hinn 1. janúar var bensingjald hækkaö um 25%, sem haföi i för með sér hækkun vísi- tölu neyzluvöruverös um 0,2%. Hinn 1. marz var söluskattur hækkaöur um 2 stig til tekjuöflun- ar fyrir Viölagasjóö, en þetta haföi i för meö sér hækkun neyzluvöruverðs um 1 1/2%, sem ekki skyldi reiknað i kaup- greiösluvisitölu. Niðurgreiðslur voru stórlega auknar á sl. ári i sambandi við hinar timabundnu efnahagsrá&stafanir, ■ sem ákveönar voru meö bráðabirgða- lögum I júlí. Niöurgreiöslur voru siöan auknar i desember sl. og i janúar á þessu ári, en þær breyt- ingar voru einungis I gildi til febrúarloka. I júnibyrjun voru niöurgreiöslur auknar á ný til þess aö draga úr hækkun kaup- greibsluvisitölu. Ekki er hér gert ráö fyrir frekari breytingum niö- urgreiöslna á þessu ári. grei&slna á þessu ári.” Orsakir verð- hækkananna 1 töflu um spá um þróun visitölu vöru og þjónustu frá 1. nóv 1972 til l. nóv. 1973 þar sem spáö er 22% heildarhækkun á verölagi á þessu timabili, kemur i ljós, a& 9 af þessum 22% stafa af gengis- breytingum og hækkun á vöru- veröi erlendis. 3% eru vegna hækkunar á áfengi og tóbaki, fjáröflun til vegasjóös og fjáröfl- un til Vi&lagasjó&s. Þá eru eftir 10% af þessum 22 og stærsti þátt- urinn þar er launakostnaöar- breytingar, sem koma inn I verö- lagið, þar á meðal verðlags- uppbætur á laun. Þá segir I skýrslunni: „Spárnar um breytingar tekna og verölags fela i sér um 22% hækkun kauptaxta milli ársmeö- altala 1972 og 1973 (26% yfir áriö 1973) og aukningu sjómannatekna um meira en 30%. Gert er ráö fyr- ir, aö abrar atvinnutekjur aukist i hátt viö hækkun kauptaxta, en tekjur bænda eru t.d. tengdar breytingum kauptaxta meö reglubundinni endurskoöun bú- vöruverös. Nær allar tilfærslur frá tryggingakerfinu aö unda- teknum fjölskyldubótum eru nú tengdar breytingum kauptaxta. Sé gert ráö fyrir, aö fjölskyldu- bætur lækki ekki á þessu ári frá þvi, sem þær voru ákveönar frá og meö mai, veröur me&alhækk- un fjölskyldubóta milli 1972 og 1973 mun meiri en áætluö hækkun kauptaxta á árinu. Viö tekju- tilfærslur bætast a& auki styrkja- grei&slur Viölagasjóös til Vest- mannaeyinga til aö bæta þeim upp þann tekjumissi, sem þeir veröa fyrir vegna eldgossins. I heild er þvi spáb, aö brúttótekjur einstaklinga, aö me&talinni fólks- fjölgun, munu aukast um 26% á árinu 1973 og ráöstöfunartekjur um 24%”. t spá um þróun verðlags- og kauplags á þessu ári og aukningu kaupmáttar er niöurstaöan sú, að gert er ráð fyrir aö heildarat- vinnutekjur einstaklinga hækki um 24,5% á árinu og kaupmáttur þessara atvinnutekna um 6,4% miðaö við visitölu framfærslu- kostnaöar. Hins vegar er áætlaö aö ráöstöfunartekjur heimilanna vaxi á þessu ári aðeins um 3,3%. Sé litiö á aukningu kaupmáttar atvinnutekna einstaklinga, miöaö viö framfærsluvisitölu á árinu 1972 og 1973, fyrstu heilu árum núverandi rikisstjórnar, kemur i ljós, aö hann mun vaxa á þessu tveggja ára timabili skv. spá Hagrannsóknadeildar um 25,7%. — TK.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.