Tíminn - 26.08.1973, Page 30

Tíminn - 26.08.1973, Page 30
30 TÍMINN Sunnudagur 26. ágúst 1973. Körnin læra ekki af> tala, segir bandariski visindamaöurinn Noam t'liomsky. heldur er ináliö uppfinning þeirra sjálfra, þvi aö málgáfan er öllum eiginlcg. MÁLIÐ ER UPPFINNING BARNSINS VIÐ höldum að barnið læri að tala, en i raun- inni er hvorki hægt að læra mál eða kenna. Það er uppfinning, sem börn in gera, þvi að þeim er máígáfan meðfædd, þótt þau þarfnist að sjálf- sögðu hvatningar. — Hér er sagt frá kenning- um hins kunna banda- riska talfræðings, Noam Chomsky, um hina með- fæddu talgáfu, sem hann nefnir svo. — Pabbi koma til þin! — Eiga þú hann. — Búin öll mjólk. — Vinnan ég ekki fara vinnan — pabbi. Þetta er dæmigert barnamál — eöa hvaö? Mismæli, röng orða- röö, orö vantar i setnmguna, „þin” i stað „min” og annaö i svipuðum dúr. Það tekur barnið tima að læra að tala rétt, en það er lika ósköp gaman að hlusta á hjalið i þvi, áður en það kemst upp á lagið. Við höldum að börnin okkar læri að tala og að það séu foreldrar og aörir fullorðnir vandamenn og eldri systkini og leikfélagar, sem kenni þeim mál- ið. Samt er hægt að hugsa sér annan gang mála, þ.e. hvert barn skapi sitt eigið mál og að málið sé ekki hægt að læra og þvi siður að kenna það, heldur sé það uppfinn- ing, sem öll börn geri og beiti þar meðfæddri málfarsgáfu sinni, þótt þörf sé einhverrar hvatningar til þess að koma þessu áleiðis. „Pabbi koma til þin”, „eiga þú hann” og „búin öll mjólk” væru samkvæmt þvíhvorki mismæli né ranglega orðaðar setningar heldur nýskapanir barnsins. Barnið hefur aldrei heyrt nokk- urn mann taka svona til orða og hlýtur þess vegna að hafa búið þessar setningar til. Barnið setur mikilvægustu orðin i byrjun setninga, þegar það er að byrja að tala. Hið mikil- væga i setningunni um mjólkina hér aö ofan er ekki mjólkin heldur sú staðreynd að mjólkin sé þrotin og þess vegna setur barnið orðið „búin fremst.” Málgáfan er meðfædd Bandariski sálfræðingurinn Noam Chomsky, sem hefur sér- hæft sig i talfræði, heldur þvi fram, að málgáfan eða hæfileik- inn til þess að búa til mál sé með- fæddur. Chomsky heldur fram þeiéri kenningu að málið hafi ekki þró- azt úr frumstæðum táknkerfum eins og þeim sem apar, hestar, fuglar, hundar eða aðrar verur nota sin á milli, heldur sé málgáf- an meðfædd og séreinkenni mannsins. Hann segir að tungu- málið myndi mynztur, sem sé hið sama hjá öllum mönnum og þess vegna séu allar tungur eins, ef nógu djúpt er skyggnzt. Chomsky talar um tvö stig, þegar hann skilgreinir mál. Annars vegar djúpstigið, sem sameini eða tengi málin og hins vegar yfirborðs- stigið, sem greini þau að. Yfirborðsstigið einkennist af hljóðunum eða þeim hluta máls- ins, sem er heyranlegur, en hin innri skipan eða niðurröðun þeirra hugsana; sem maður vill gæða orðum, einkennir djúp- stigið. Akveðið kerfi af reglum eða meðfætt málfræðikerfi tengir hljóð og setningu og breytir hugs- unum i orð og.orðum i hugsanir. Djúpið og yfirborðið Til er tiu ára gamall drengur i Bandarikjunum, sem ekki kann tök á hinu ytra máli, en hið innra mál hans virðist hins vegar vera fullþroskað. Drengurinn getur ekki sagt eitt einasta orð, en tal- færin eru samt i lagi og enga galla að finna á tungu, úf eða radd- böndum. Það eru ekki heldur sál rænir örðugleikar innan fjöl- skyldunnar, sem valda þessu en slikt verður stundum til þess að hamla þroska barnanna i þessu efni. Þess vegna er talið, að þessi AUSTFIRDING Framsóknarmenn > \ •• Ollum er heimill aðgangur að þessum | fundum l almennra stjórnmálafunda á eftirtöldum Bakkafirði Vopnafirði Borgarfirði Seyðisfirði Neskaupstað Ræðumenn á stöðum föstudaginn 7. september nk.: Eskifirði Djúpavogi Allir Reyðarfirði Höfn fundirnir Fáskrúðsfirði Hrollaugsstöðum munu hefjast Stöðvarfirði Breiðdal Egilsstöðum kl. 9 að kvöldi fundunum verða auglýstir síðar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.