Fréttablaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 11. september
11. SEPTEMBER 2001 Þessi dagsetning
er orðin ein sú alræmdasta í veraldarsög-
unni eftir að hryðjuverkamenn flugu
tveimur farþegaflugvélum á The World
Trade Center í New York.
Franska tríóið Givone þykir standa
framarlega í flutningi sígaunatón-
listar með djangósveiflu. Í kvöld
gefst íslenskum áhugamönnum um
þessa tónlist færi á að heyra í því
ásamt Birni Thoroddsen gítarleik-
ara á Nasa við Austurvöll.
„Mér var boðið á djasshátíð í
Frakklandi fyrir tveim eða þrem
vikum til þess að leika með þessum
köppum,“ segir Björn.
Sjálfur hefur hann lengi haft
mikinn áhuga á þessari tónlist. Allt
small því saman á tónleikunum í
Frakklandi, þar sem tríóið tók
meðal annars tvö lög eftir Björn í
djangóstíl.
Trio Givone er skipað gítarleik-
aranum Daniel Govone, ásamt eig-
inkonu hans Christine og bróður
hans Jean-Claude.
„Þetta er allt í fjölskyldunni, má
segja. Hann er þarna með konuna
sína á gítar og bróður sinn á bassa.“
Tríóið hefur sent frá sér þrjár
plötur. „Flamme Gitane“ kom út
árið 1998, „En chemin“ árið 2000 og
loks „Rencontres“ árið 2003.
„Daniel er mjög hátt skrifaður
gítarleikari í Frakklandi og einn af
þeim flottari í þessum stíl,“ segir
Björn, sem bíður þess eftirvænting-
arfullur að fá að endurnýja kynnin
af þessum úrvalstónlistarmönnum.
„Það er aldrei að vita nema það
verði eitthvert framhald á sam-
starfi okkar.“ ■
namsmannalinan.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
N
M
1
3
0
6
1
TRIO GIVONE Þetta franska sveiflutríó
spilar með Birni Thoroddsen á Nasa í kvöld.
Sígauna-
sveifla