Fréttablaðið - 11.09.2004, Page 40
MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR
TÓNLISTARMAÐUR:
...að ekki ætti að stofna
til hjónabands nema
með rétta manninum
...um börn og uppeldi. Að öll trikk-
in í uppeldisbókunum virkuðu
ekki í raunveruleikanum. Alla-
vega ekki á börn.
...um heilsuna. Ekkert. Ef maður
hugsar of mikið um heilsuna
þegar maður er tvítugur gæti það
leitt til átröskunar og ótæpilegrar
íþróttaiðkunar.
...um hjónabandið og ástina.
Að maður ætti helst ekki að stofna
til þeirra nema með rétta mannin-
um. Þá á ég við manninn minn.
Bara svo það sé á hreinu.
...um fegurð. Að hún eykst með ár-
unum þannig að það var fullkom-
lega óþarft að örvænta.
...um kynlíf. Að þannig verða
börnin til.
...um áfengi og eiturlyf.
Að þannig verða börnin til.
...um starfsferil.
Sama hvað ég hefði vitað í þeim
efnum þá hefði ég alltaf valið eitt-
hvað ópraktískt. Já, manni er víst
ekki við bjargandi.
HILMAR JÓNSSON
LEIKSTJÓRI OG LEIKARI:
...að kynlíf snýst ekki
um magn heldur gæði
...um börn og uppeldi. Ég hefði
viljað vita að ég ætti eftir að eign-
ast fjögur börn því ég gekk með
þá grillu í höfðinu að mér yrði
ekki barna auðið. Ég hefði líka
viljað vita það sem ég veit í dag
um börn og uppeldi þegar ég átti
mitt fyrsta.
...um heilsuna. Að heilsan er allt
sem maður á og maður leggur
grunninn að henni sjálfur í sam-
vinnu við almættið.
...um hjónabandið og ástina. Að
ástarsambönd vara oftast stutt og
skilja lítið eftir sig, en hjónaband
er ákvörðun um að elska konuna
sína kvölds og morgna, alla daga,
ár og síð, og að hamingjan er ekki
ósvipuð heilsunni. Hún er í manns
eigin höndum og svo auðvitað al-
mættisins.
...um fegurð. Að fegurðin er
breytileg, óvænt og allsstaðar ef
vel er gáð.
...um kynlíf. Að kynlíf snýst ekki
um magn heldur gæði.
...um leiklistina. Að leiklistin er
kröfuhörð, vanmetin og illa laun-
uð ástríða sem erfitt er að lifa án
eftir að hafa ánetjast henni. Að
sigrar eru litlir og persónulegir,
og að maður verður að vita innst í
hjarta sínu hvað maður er að gera
þegar maður fæst við hana.
...um áfengi og eiturlyf. Að áfengi
og eiturlyf voru upphafið og
endirinn á allri minni óhamingju
og ógæfu í þá daga, og að það
þurfti ekki að vera þannig.
...um starfsferil. Stafsferill snýst
um að setja sér markmið og velja
sér leið til að ná þeim. Það er
þrennt sem ræður hamingju í lífi
hvers manns og konu. Fjölskyld-
an, starfsferillinn og tómstund-
irnar. Ef þetta þrennt er í lagi er
allt gott, gengur vel og miðar til
hins besta.
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
SKÁLD:
...að öll víma sendir
hamingjunni langt nef
...um börn og uppeldi. Ég hef
aldrei kynnst kenningum um
börn og uppeldi sem hafa staðist,
nema þeirri góðu og gildu vísu
að það sem kæmi börnum best
væri ást, hlýja og umhyggja. Þá
gömlu vísu hefði ég oftar getað
þulið á kostnað þeirrar stjórn-
semi, sem ég í minni einföldu trú
og í krafti svokallaðra vitsmuna
beitti alltof oft. Fullorðið fólk
24 11. september 2004 LAUGARDAGUR
Fréttablaðið fékk kunna Íslendinga til að segja lesendum frá því hvað þeir hefðu viljað vita um tvítugt, sem lífsreynslan hefur kennt þeim.
Það sem ég hefði viljað vita
þegar ég var um tvítugt...
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
. A
LL
AR
N
EM
A
AF
H
IL
M
AR
I J
Ó
N
SS
YN
I
H
IL
M
AR
Þ
. G
U
Ð
M
U
N
D
SS
O
N