Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 2

Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 2
2 24. september 2004 FÖSTUDAGUR Flugvél missti afl og endaði í fjörunni við flugvöllinn: Flugmaður á gjörgæslu FLUGSLYS Flugmaður lítillar eins hreyfils flugvélar af gerðinni Cessna 152 er á gjörgæslu eftir að stutt flugferð hans endaði í fjörunni við norðurenda flug- brautarinnar á Akureyri. Flugmaðurinn, sem ætlaði að fara í hálfrar klukkustundar flugferð um nágrenni Akureyr- ar, tók á loft skömmu fyrir klukkan ellefu í gærmorgun. Skömmu eftir flugtak missti flugvélin afl og brá flugmaður- inn þá á það ráð að lenda vélinni við enda flugbrautarinnar. Flug- vélin kom niður við öryggis- svæðið á norðurenda flugbraut- arinnar og rann þaðan út af flug- brautinni og niður í fjöru. Slökkvilið og lögregla voru strax kölluð út en þegar þau komu á vettvang hafði flugmað- urinn komið sér út úr flugvél- inni af sjálfsdáðum. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Ekki er að fullu ljóst hvað olli því að flugvélin missti afl en Rannsóknarnefnd flugslysa fer með rannsókn málsins. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Fjórðungs- sjúkrahúsinu fótbrotnaði mað- urinn og fór hann í aðgerð í gær. Líðan hans er eftir atvikum en hann er ekki talinn í lífshættu. ■ Hafró undan valdi ráðherra Formaður Samfylkingarinnar vill að rannsóknastofnanir atvinnuveg- anna færist undir viðeigandi háskóladeildir. „Sovésk kredduhugsun“ þrífst hjá Hafró, segir hann. Formaður sjávarútvegsnefndar ósammála. STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir ástæðu til að kanna hvort ekki sé rétt að færa starfsemi rannsóknastofnana atvinnuveg- anna undan viðkomandi fagráðu- neytum. Össur nefnir sem dæmi það sem hann kallar „sovéska kredduhugsun“ hjá „Hafró“ eins og Hafrannsóknastofnunin er nefnd í daglegu tali. „Það er engu líkara en það sé einhvers konar ríkistrú sem menn séu beygðir undir í hafrannsóknum, þar sem allir virðast verða að hafa sömu skoðun.“ Össur nefnir einnig að alþing- ismenn hafi haft aðgang að ein- stökum starfsmönnum stofnun- arinnar en nú hafi verið girt fyrir það; allt verði að fara í gegnum forstjórann. „Ég tel í rauninni ekki eðlilegt að rannsóknir á ástandi auðlinda og ákvarðanir um nýtingu þeirra séu á sömu hendi“, segir Össur: „Hér er í rauninni um hagsmuna- árekstur að ræða“. Samfylking- arformaðurinn telur að færa verði Hafrannsóknastofnunina undan beinu boðvaldi ráðherra enda þótt ekki sé bein lína frá ráðherra til einstakra starfs- manna stofnunarinnar. „Ég tel betra að rannsóknir atvinnuveg- anna færist til háskólans því þar eru menn algjörlega frjálsir. Ég held að með þessu yrði mikill kraftur leystur úr læðingi.“ Guðjón Hjörleifsson, formað- ur sjávarútvegsnefndar Alþing- is, er ekki sammála Össuri. „Ég held að það sé fullkomlega eðli- legt að Hafrannsóknastofnunin heyri undir ráðherra, þar sem mikið samspil er milli ráðuneyt- isins og stofnunarinnar þegar kemur að ákvörðun aflaheimilda á grundvelli vísindalegrar ráð- gjafar. Að mínu viti væri það óeðlileg skipan mála ef stofnunin heyrði ekki undir ráðuneytið,“ sagði Guðjón og benti á að nú þegar væri til staðar samstarf Hafrannsóknastofnunarinnar og háskóladeilda, til dæmis við Há- skólann á Akureyri. a.snaevarr@frettabladid.is KOMA TIL HJÁLPAR Hermenn komu blaðamanni til aðstoðar eftir að hann var skotinn. Ráðist á varðstöð: Sex féllu í skotbardaga GAZASTRÖND, AP Þrír palestínskir vígamenn skutu þrjá ísraelska hermenn til bana áður en þeir féllu sjálfir fyrir skotum her- manna í gærmorgun. Vígamenn- irnir höfðu læðst inn á ísraelska varðstöð við landnemabyggðina Morag á sunnanverðu Gaza-svæð- inu og hafið skothríð á hermenn. Skotbardaginn stóð yfir í um 45 mínútur. Auk þeirra sem létust særðist einn ísraelskur hermaður lífshættulega. ■ „Nei, það er allt í lagi. Þeir hafa þvílíkt langlundargeð, blessaðir.“ Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður fer fyrir hópi lögmanna sem hefur hrundið af stað und- irskriftasöfnun til stuðnings Jóni Steinari Gunnlaugs- syni hæstaréttarlögmanni vegna skipunar dómara við Hæstarétt, en Jón hlaut ekki náð fyrir augum sitjandi dómara við réttinn í umsögn þeirra. SPURNING DAGSINS Sveinn Andri, er ekki frekar óskyn- samlegt að vera að ergja dómarana með þessum hætti? Ríkislögreglustjóri: Um tólf hundruð fíkniefnabrot FÍKNIEFNABROT Tæplega tólf hundruð ætluð brot á fíkniefnalöggjöfinni hafa komið á borð lögreglu frá ára- mótum, að því er fram kemur í frétt frá embætti Ríkislögreglustjóra. Allt síðasta ár voru skráð 1.385 fíkniefnabrot en þau eru nú orðin 1.185 það sem af er árinu. Flest brotanna í ár varða vörslu og neyslu fíkniefna, 837 brot, en fæst brotin falla undir framleiðslu, eða 24 brot. Hald hefur verið lagt á 34,6 kíló af hassi, 15,3 kíló af am- fetamíni, tæp þrjú kíló af kókaíni og um 7.500 e-töflur. Miðað við undan- farin ár er umtalsverð aukning á magni amfetamíns sem hald hefur verið lagt á. ■ ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Hagsmunaárekstur að sami aðili meti ástand auðlindar og ákveði nýtingu hennar. DÓMSMÁL Tryggingastofnun ríkis- ins var sýknuð í gær í Héraðs- dómi Reykjavíkur af kröfum Al- þýðusambands Íslands um viður- kenningu á rétti foreldra í fæð- ingarorlofi til orlofslauna úr Fæðingarorlofssjóði á þeim tíma sem þeir eru í fæðingarorlofi. ASÍ höfðaði í ársbyrjun mál á hendur TR og setti fram kröfur um að viðurkennt yrði með dómi að foreldrar í aðildarfélögum ASÍ, sem ávinna sér ekki rétt á orlofslaunum í launalausu fæð- ingarorlofi úr hendi launagreið- anda, eigi rétt á orlofslaunum úr Fæðingarorlofssjóði. Trygginga- stofnun hafnaði kröfunni og Hér- aðsdómur Reykjavíkur hefur nú tekið undir þann rökstuðning að orlofslaun greiðist eingöngu vegna launagreiðslna, ekki af orlofslaunum, og því greiðist orlofslaun ekki vegna greiðslna í fæðingarorlofi. Í dómnum segir að ekki verði fallist á að lög eða aðrar reglur leiði til þess að for- eldrar eigi þann rétt sem Alþýðu- sambandið krefst í málinu að verði viðurkenndur. Málskostnaður var felldur niður. ■ SÝKNUN Tryggingastofnun þarf ekki að fara að kröfum ASÍ, samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms. Tryggingastofnun sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í fæðingarorlofsmáli: Kröfu um orlofslaun hafnað GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON Óeðlilegt ef stofnunin heyrði ekki undir ráðuneytið. Kærunefnd jafnréttismála: Stöð 2 braut jafnréttislög JAFNRÉTTISMÁL Kærunefnd jafnrétt- ismála hefur úrskurðað að Ís- lenska útvarpsfélagið og yfir- menn fréttastofu Stöðvar 2 hafi brotið jafnréttislög fyrir rúmu ári þegar fjórum fréttakonum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar voru skýrðar þannig að verið væri að hagræða í rekstri og var sagt að starfsaldur hefði ráðið mestu. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í gær að í það minnsta þrír karlar með styttri starfsaldur hefðu unnið á fréttastofunni þegar konunum var sagt upp. ■ 42 mánaða fangelsi: Nauðgari dæmdur DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt karlmann til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að halda fyrrum sambýliskonu sinni nauð- ugri í íbúð hennar og nauðga henni þrívegis auk þess að skemma ýmsar eignir hennar. Þá á hann að greiða konunni 1,4 millj- ónir króna í skaðabætur. Maðurinn neitaði sök en sýnt þótti að hann hefði haldið konunni gegn vilja hennar í sex og hálfa klukkustund, beitt hana ofbeldi og neytt hana til samfara hvort tveggja með ofbeldi og hótunum um ofbeldi. Eftir að maðurinn var sakfelld- ur í héraðsdómi framvísaði hann yfirlýsingu frá konunni þar sem hún dró kæru á hendur honum til baka. Á sama tíma kærði hún hann fyrir að neyða sig til að undirrita yfirlýsinguna. ■ FLUGVÉLIN Í FJÖRUNNI Engum var hleypt nálægt slysstaðnum þegar Rannsóknarnefnd flugslysa var þar að rann- saka tildrög slyssins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.