Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 8
24. september 2004 FÖSTUDAGUR
Þing Neytendasamtakanna hefst í dag:
Stofnað verði embætti
umboðsmanns neytenda
ÞING Lögð verður fram ítarleg
tillaga í stefnumótun í neytenda-
málum næstu tvö árin á þingi
Neytendasamtakanna sem hefst
á Grand hóteli í dag. Þingið
hefst klukkan þrjú síðdegis með
ávarpi Guðna Ágústssonar land-
búnaðarráðherra.
Þing Neytendasamtakanna
er haldið á tveggja ára fresti og
lýkur því á morgun þegar kosið
verður í stjórn samtakanna.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, er
sjálfkjörinn sem formaður til
næstu tveggja ára þar sem
ekkert mótframboð barst.
Á meðal þess sem rætt verð-
ur um á þinginu er stofnun emb-
ættis umboðsmanns neytenda.
Jóhannes segir að hápunktur
þingsins verði á morgun þegar
Hagen Jörgensen, umboðsmað-
ur neytenda í Danmörku, flytji
erindi um það hvers vegna neyt-
endur þurfi sjálfstætt embætti
umboðsmanns neytenda. ■
Ég bið ykkur um
að sýna miskunn
Eiginkona breska gíslsins Kenneth Bigley sárbænir mannræningja um að
sleppa honum. Bróðir hans segir Bandaríkjamenn hafa stofnað lífi hans í
hættu með því að neita að sleppa íröskum kvenföngum úr fangelsi.
ÍRAK, AP Ættingjar Kenneth
Bigley, breska gíslsins sem haldið
er föngnum í Írak, róa nú lífróður
í von um að sjá hann aftur heilan
á húfi. Kona hans grátbændi
mannræningjana um að hlífa hon-
um og senda hann
aftur til sín og
bróðir hans
skammaði Banda-
ríkjamenn fyrir
að grafa undan
möguleikum á að
bjarga lífi hans.
„Við höfum
verið gift í sjö ár og ég elska hann
mjög heitt. Ég vil ekkert frekar
en að hitta hann á ný. Ég bið ykk-
ur um að sýna miskunn. Ég sár-
bæni ykkur að sleppa Ken svo ég
fái að sjá hann aftur,“ sagði
Sombat Bigley, eiginkona síðasta
eftirlifandi gíslsins af þremur
sem rænt var á dögunum. „Ken,
eiginmaður minn, er venjulegur,
harðduglegur fjölskyldumaður
sem vildi hjálpa írösku þjóðinni.
Sem ástrík eiginkona hans sár-
bæni ég ykkur enn og aftur um að
sýna honum miskunn,“ sagði
Sombat.
Hryðjuverkamenn í hreyfingu
Abu Musab al-Zarqawi rændu
Bigley og tveimur Bandaríkja-
mönnum sem hafa þegar verið
myrtir. Þeir kröfðust þess að öll-
um kvenföngum í haldi Banda-
ríkjamanna yrði sleppt úr haldi
en þeirri kröfu hafa Bandaríkja-
menn hafnað. Þeir segja aðeins
tvær konur í haldi, en báðar
tengdust áætlunum Íraka um að
koma sér upp gjöreyðingarvopn-
um og fengu þær viðurnefnin
doktor Sýkill og frú Miltisbrand-
ur.
„Við höfum ekki verið í samn-
ingaviðræðum og við munum
ekki semja við hryðjuverkamenn
um lausn gíslanna,“ sagði Iyad
Allawi, forsætisráðherra Íraks, í
gær. Daginn áður höfðu íraskir
embættismenn sagt að annarri
konunni yrði sleppt úr haldi en
Bandaríkjamenn höfnuðu því og
æðri ráðamenn í Írak einnig.
Bróðir gíslsins, Paul Bigley,
sakar bandarísk yfirvöld um að
skemma fyrir möguleikanum á að
endurheimta Bigley heilan á húfi
með því að neita að sleppa konun-
um tveimur úr haldi. „Það var
smá vonarglæta við endann á
stórum, löngum, myrkum, skítug-
um og köldum göngunum. Nú hef-
ur sú von verið eyðilögð,“ sagði
hann eftir að bandarísk yfirvöld
neituðu að verða við kröfum
hryðjuverkamannanna.
Sjálfur bað Kenneth Bigley um
aðstoð Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, í myndbandi
sem var dreift á netinu í fyrra-
kvöld. „Þetta er hugsanlega síð-
asta tækifæri mitt. Ég vil ekki
deyja,“ sagði hann.
Bandarísku gíslarnir voru báð-
ir skornir á háls. Lík þeirra hafa
fundist og var aftaka annars
mynduð og sýnd á netinu. ■
,, Við
munum
ekki semja
við hryðju-
verkamenn.
JÓHANNES GUNNARSSON
Formaður Neytendasamtakanna er sjálf-
kjörinn til næstu tveggja ára.
EIGINKONA BRESKA GÍSLSINS
Sombat Bigley sárbændi hryðjuverkamenn um að sleppa eiginmanni sínum úr haldi heilum á húfi.
BIÐUR UM HJÁLP
Kenneth Bigley grátbað Tony Blair um hjálp.