Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 18
18 24. september 2004 FÖSTUDAGUR FLÝJA HITANN Lögreglumenn hlaupa niður hæð til að sleppa úr steikjandi hitanum sem mynd- aðist þegar olíuleiðsla var sprengd norður af Bagdad, höfuðborg Íraks. Miklar skemmdir voru unnar á olíuframleiðslu á svæðinu. ASÍ segir LÍÚ verða að taka á útgerðarfélaginu Brimi : Bera ábyrgð á úrsögn Sólbaks úr samtökum KJARABARÁTTA LÍÚ ber sína ábyrgð á úrsögn skipsins Sólbaks úr samtök- unum, segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Hann segir reginmis- skilning hjá Guðmundi Kristjáns- syni, forstjóra Brims, að ASÍ hafi hvatt til vinnustaðasamninga á borð við þann sem hann gerði við áhöfn skipsins. „Málið snýst um Brim. Það er sviðsetning að stofna sérstakt fyrir- tæki utan um skipið Sólbak. Brim er í LÍÚ og þar með í samtökum at- vinnurekenda. Aðaleigandi og tals- maður Brims í málinu er varamað- ur í stjórn LÍÚ. Við teljum málið með því yfirbragði að LÍÚ verði að taka á því sem þarna er að gerast,“ segir Grétar. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir þá ásamt Samtökum atvinnulífsins ekki hafa stutt úrsögn skipsins úr samtökum atvinnurekenda né úr- sögn áhafnarinnar úr stéttarfé- lögum sjómanna. „Það er félagafrelsi í þessu landi. Við höfum engin áhrif á hvað ein- stakir útvegsmenn gera, ekki frekar en verkalýðshreyfingin ræður ekki í hvaða félagi einstakir launþegar eru,“ segir Friðrik. Grétar segir þungan tón í álykt- un ASÍ um samning Brims og hann sé aðför að skipulögðum vinnu- markaði. Miðstjórn ASÍ ætli að beita sér fyrir því að verkalýðsfé- lög verjist aðförinni með öllum til- tækum ráðum. Komist Brim upp með samning þar sem laun séu und- ir lágmarkskjarasamningum megi vænta að allir atvinnurekendur taki upp nýju vinnubrögðin. ■ Stígvélaði bæjarstjórinn Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, hefur staðið í ströngu undanfarna daga. Bærinn hennar fór nánast á bólakaf í miklu vatnsveðri í vikunni en nú hefur rofað til. NÁTTÚRAN „Veðrið hér í Ólafsfirði er orðið býsna gott. Nú er varnarbar- áttan búin og við getum farið að lag- færa það sem skemmdist,“ segir Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði. Mikil úrkoma var á Norð- urlandi í vikunni og fóru Ólafsfirð- ingar ekki varhluta af því. Vegurinn til Dalvíkur fór í sundur á átta stöð- um vegna skriðufalla og tuttugu hús í bænum urðu fyrir tjóni af völdum flóða. Í mörg horn hefur verið að líta fyrir Stef- aníu, rétt eins og aðra bæjarbúa sem hafa verið önnum kafnir við að verja eigur sínar. Þjóðvegurinn á milli Ólafs- fjarðar og Dal- víkur var opnað- ur að nýju á mið- vikudaginn. Stef- anía fór strax á vettvang og ræddi við vegagerðar- menn en auðheyrt er á henni að að- stæður á þessum bráðabirgðavegi eru nokkuð hrikalegar. „Það var farið að rökkva þegar ég sneri heim um sjöleytið og ég reyndi að líta ekki niður heldur horfði jöfnum höndum á fjallið og veginn.“ Vatnsveðrið sem gekk yfir bæinn á þriðjudag og miðvikudag er að lík- indum það mesta sem orðið hefur síðan snemma hausts 1988 en þá varð tugmilljóna tjón vegna skriðu- falla í bænum. Hús og bifreiðar urðu fyrir aurskriðunum en engin meiðsl urðu á fólki. Í kjölfarið voru skurðir grafnir í fjallinu fyrir ofan bæinn sem eiga að taka við slíkum skriðum. Stefanía segir að þessar ráðstafanir hafi haft mikið að segja í veðrinu í vikunni og bæjarbúar hafi andað rólegar fyrir vikið. Enn er verið að meta tjónið en ljóst er að það er talsvert. Auk hús- anna tuttugu sem vatn flæddi inn í þá skemmdust kaldavatnslagnir þannig að vatnsþrýstingur er lágur í nokkrum húsum í bænum. Hins veg- ar tókst að bjarga heitavatnslögnum enda þótt jarðvegur í kringum þær hefði nánast allur skolast í burtu. Stefanía er rétt farin að blása úr nös eftir hamaganginn enda hefur verið í nógu að snúast. „Það var ekki fyrr en í fyrrakvöld að ég gat sest niður og tekið saman öll mín gögn frá síðustu dögum. Þá var ég búin að vera í vinnunni síðan á þriðjudags- morguninn, ef frá er talinn smá lúr sem ég fékk yfir blánóttina. Minnis- listi sem ég var búin að gera fyrir verkefni þessarar viku stendur enn- þá nánast óhreyfður.“ Regngallinn og gúmmístígvélin hafa komið í góð- ar þarfir. „Ég hef reynt að fara á þá staði þar sem við höfðum fengið boð um að eitthvað væri að gerast. Ég skoðaði til dæmis kjallara hjá fólki og fór með lögreglu og almanna- varnanefnd á þá staði þar sem leit út fyrir að vá væri fyrir höndum.“ Hús Stefaníu var hins vegar aldrei í neinni hættu. Ólafsfirðingar hafa ekki látið þessi óþægindi mikið á sig fá, að minnsta kosti er bæjarstjórinn brattur. „Auðvitað er dálítið ógn- vænlegt að horfa á þetta vatnsflóð sem hér myndaðist. Menn hafa mjög óþægilegar minningar frá 1988 en hér er alls enginn barlómur.“ sveinng@frettabladid.is ÞÚSUND KRÓNA VEGGFÓÐUR Forsvarsmenn Umhyggju þurftu að plokka peningana af veggnum. Eik styrkir Umhyggju: Rándýrt veggfóður STYRKUR Eik, fasteignafélag í eigu Lýsingar og KB banka, hefur styrkt Umhyggju, sem er félag til stuðn- ings langveikum börnum, um 527 þúsund krónur. Forsvarsmenn Umhyggju þurftu aðeins að hafa fyrir því að fá pen- ingana því 528 þúsundkrónu seðlar höfðu verið festir á útivegg í Þing- holtsstræti. Forsvarsmenn samtak- anna þurftu að plokka þá af veggn- um. Haft var á orði að líklega hefði þetta verið dýrasta veggfóður Íslandssögunnar. Tilgangur vegg- fóðursins var að vekja athygli for- svarsmanna íslenskra fyrirtækja á þeim kostum sem fylgja því að leigja atvinnuhúsnæði í stað þess að eiga það, auk þess sem Eik hefur hleypt af stokkunum nýrri þjón- ustuleið sem nefnist fasteignaráð- gjöf og leit. ■ Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Opið laugardag 10-14.30 Stór og fallegur humar Humartilboð verð frá1.290 kr/kg ÖRYGGISMÁL Skoðun Löggildingar- stofu hefur leitt í ljós að raflögnum og rafbúnaði í íslenskum gisti- og veitingahúsum er víða ábótavant. Rafmagnsöryggisdeild Löggild- ingarstofu hefur síðustu tvö ár látið skoða raflagnir á þriðja hund- rað gisti- og veitingahúsa víðs vegar um landið. Gerðar voru at- hugasemdir við merkingu búnaðar í rafmagnstöflum í nær öllum gisti- og veitingahúsum, eða í 91 prósenti tilvika. Eins voru gerðar athuga- semdir við frágang tengla í 76 pró- sentum skoðana og töfluskápa í 76 prósentum tilvika. „Gamall og bilaður rafbúnaður og aðgæsluleysi forráðamanna eru meðal helstu orsaka rafmagns- bruna og því er afar mikilvægt að rafbúnaður í gisti- og veitingahús- um sé ávallt valinn með tilliti til staðsetningar og notkunar. Úr sumum ágöllum má bæta með betri umgengni en flestar athugasemd- irnar kalla á fagþekkingu,“ segir í tilkynningu Löggildingarstofu. Fram kemur að markmiðið með úttekt stofnunarinnar hafi verið að fá sem gleggsta mynd af ástandi raflagna og rafbúnaðar í gisti- og veitingahúsum og koma á fram- færi ábendingum um það sem betur mætti fara. Skýrslu Löggild- ingarstofu um ástand raflagna í gisti- og veitingahúsum verður dreift til allra umráðamanna gisti- og veitinghúsa í landinu og til lög- giltra rafverktaka. ■ RAFVIRKI VIÐ STÖRF Gera má ráð fyrir að frágangi raflagna og rafbúnaðar í nær öllum gisti- og veitinga- húsum landsins sé ábótavant, samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar Löggildingar- stofu. SÓLBAKUR Áhöfn Sólbaks segir í fréttatilkynningu að lítið sé gert úr þeim þegar því sé haldið fram að þeim hafi verið stillt upp við vegg. GRÉTAR ÞORSTEINSSON „Ég var ekki vitni að því sem gerðist hjá út- gerðarfélaginu Brimi en maður þekkir úr sögunni að staða starfsmanna er ekki ein- föld þegar þeim er boðið upp á svona sér- samning. Væntanlega er hinn kosturinn að taka pokann sinn,“ segir Grétar. Raflagnir og rafbúnaður í gisti- og veitingahúsum : Athugasemdir í 91 prósent tilvika Athugasemdir Fjöldi tilvika Merkingar og töflubúnaður 91% Frágangur töfluskáps 76% Tenglar 76% Töflutaugar 69% Hlífar 65% Vegg- og loftlampar 64% Dósir 57% STEFANÍA TRAUSTADÓTTIR Öllum hefðbundn- um verkum var ýtt til hliðar og í staðinn voru gúmmístígvélin dregin fram. BÆR Á BÓLAKAFI Í það minnsta tuttugu hús skemmdust. ÓLAFSFJÖRÐUR Talsvert tjón varð á vegum og lögnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.