Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 20

Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 20
HEILBRIGÐISMÁL Réttur þriðjungur þeirra unglinga sem lagðir voru inn á Barna- og unglingageðdeild á árunum 2001 og 2002 hafði reynt að taka líf sitt eða skaðað sjálfan sig. Algengustu geðrask- anir hjá þessum unglingum voru þunglyndi, áfallastreita i kjölfar misnotkunar, ofvirkni- og hegð- unarraskanir og loks neysla vímuefna, að sögn Ólafs Ó. Guð- mundssonar yfirlæknis á BUGL. BUGL skiptist í þrjár deildir: göngudeild, þangað sem langflest- ir leita, barnadeild og unglinga- deild. Á unglingadeild dvelja ein- staklingar á aldrinum 13-17 ára. Ólafur sagði, að af samtals 100 innlögnum á unglingageðdeild árið 1995 hefði í 13% tilvika verið um sjálfsskaða og sjálfsvígstil- raunir að ræða. Af 168 innlögnum 2001 og 2002 væri hlutfall þeirra sem reyndu að taka líf sitt eða höfðu skaðað sig komið upp í 32,7%. „Það er því ljóst að sjálfs- skaðahegðun og sjálfsvígstilraun- ir unglinga er vaxandi ástæða fyrir innlögnum á BUGL og ein af skýringunum fyrir vaxandi eftir- spurn eftir þjónustu deildarinn- ar,“ sagði Ólafur. „Þannig hafa um 40% þunglyndra unglinga sem leggjast inn á BUGL skaðað sig eða gert tilraun til sjálfsvígs. Eftir því sem líður á unglingsald- urinn er þunglyndi orðið jafnal- gengt hjá unglingum og fullorðn- um og algengara hjá stelpum heldur en strákum.“ Ólafur sagði vitað, að þung- lyndi, áfallastreita og hegðun- arraskanir væru sýnilegri hjá unglingum nú heldur en áður. Frekar væri leitað eftir þjónustu vegna þessa nú heldur en áður, meðal annars vegna minni for- dóma. „Væntanlega endurspeglar það að einhverju leyti raunveru- lega aukningu þessum vanda,“ sagði Ólafur. „Í nágrannalöndun- um hefur sama þróun átt sér stað og það hefur verið um raunveru- lega aukningu að ræða. Eitt af því sem menn hugleiða er hvort þetta sé af völdum einhverra þátta í samfélaginu og þá hvaða þátta.“ Í um 11% tilvika var vímu- efnanotkun til staðar hjá þeim sem lögðust inn á árunum 2001 og 2002, að sögn Ólafs. Af þeim höfðu rúm 70% gert tilraun til sjálfsvígs sem var þá innlagnar- ástæðan á BUGL. jss@frettabladid.is 20 24. september 2004 FÖSTUDAGUR BÍLADAGAR Í PARÍS Bílasýningin í París hefst formlega í dag þegar Jacques Chirac Frakklandsforseti opnar sýninguna fyrir almenningi. Bíla- blaðamenn víðs vegar að úr heiminum fengu í gær og í fyrradag að skoða sýning- una fyrstir manna. Ungir vísindamenn á leið í Evrópukeppni: Hasskötturinn og sköpunargáfan MENNTAMÁL Evrópukeppni ungra vísindamanna hefst á Írlandi á morgun og stendur til 30. septem- ber. Tvö íslensk verkefni taka þátt í keppninni, annars vegar verkefn- ið „Hasskötturinn“ og hins vegar verkefni um „Áhrif umhverfis á sköpunargáfu“. Fulltrúar landsins eru vinnings- hafar í Landskeppni ungra vísinda- manna á Íslandi árið 2004 sem fór fram í Háskólanum 19. maí. Verk- efnið „Hasskötturinn“ fjallar um hvort unnt sé að nota ketti til að leita að fíkniefnum, en að baki verkefninu eru Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir, Eva María Þrast- ardóttir og Stefán Þór Eysteinsson, nemendur í Verkmenntaskóla Austurlands. Leiðbeinendur þeirra eru Þórður Júlíusson og Gunnar Ólafsson. „Áhrif umhverfis á sköp- unargáfu“ kannar hvort umhverfi hafi áhrif á sköpunargáfu vél- menna. Að verkefninu stendur Hrafn Þorri Þórisson, nemandi við Fjölbrautarskólann við Ármúla, en leiðbeinandi hans er Ólafur H. Sigurjónsson. Í gær var skrifað undir sam- starfssamning Rannsóknarþjón- ustu Háskóla Íslands, Íslands- banka og Sjóvár-Almennra sem tryggja á verkefninu „Ungir vís- indamenn á Íslandi“ 1,5 milljónir króna árlega næstu þrjú árin. ■ Þriðjungur unglinga á geðdeild reyndi sjálfsvíg Réttur þriðjungur þeirra unglinga sem lögðust inn á barna- og unglingageðdeild á árunum 2001 og 2002 hafði reynt að taka líf sitt eða skaðað sjálfan sig. Sjálfsvígstilraunir og sjálfsskaðahegðun unglinga er vaxandi ástæða fyrir innlögnum á BUGL. STUTT VIÐ „UNGA VÍSINDAMENN“ Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka skrifuðu í gær undir samstarfssamning Rann- sóknaþjónustu Háskólans og Menningarsjóðs Íslandsbanka og Sjóvá-Almennra um verk- efnið „Ungir vísindamenn á Íslandi“. Í BANKANUM Auk þess að skrá sig sem velunnara Krabbameinsfélagsins á afgreiðslustöðum KB banka er nú hægt að hringja í félagið og skrá sig. Krabbameinsfélagið: Kraftur í söfnunina HEILBRIGÐISMÁL Í apríl hófst söfnunin „Þitt framlag skiptir máli“ þar sem Krabbameinsfélag Íslands og KB banki sameinast um söfnun velunn- ara fyrir Krabbameinsfélagið. Auk þess að skrá sig á af- greiðslustöðum bankans getur fólk nú hringt í Krabbameinsfélagið í síma 540 1900 og skráð sig sem vel- unnara félagsins með reglulegu framlagi. Stefnt er að því að safna 3.000 nýjum velunnurum. KB banki er aðalstyrktaraðili Krabbameinsfélagsins, en bankinn hefur heitið því að leggja fram 500 krónur fyrir hvern sem bætist í hóp velunnara. ■ SJÁLFSVÍG OG SJÁLFSSKAÐAR Undirrót tilrauna til sjálfsskaða eða sjálfsvíga hjá unglingum eru þunglyndi, áfallastreita í kjölfar misnotkunar, ofvirkni- og hegðunarraskanir og neysla vímuefna. 1996 1997 1998 1999 2000 36 33 49 59 76 2001 2002 82 86 2003 83 HEILDARFJÖLDI ALLRA INNLAGNA Á BUGL: Skemmtiferðaskip til Íslands: Fjölgun í sumar FERÐAMÁL Sjötíu skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur í sumar og er það tólf skipum meira en síðasta sumar. Í fréttabréfi Samtaka ferðaþjón- ustunnar segir að varlega áætlað hafi um 38 þúsund farþegar komið með skipunum. Aukningin er talin verulega ánægjuleg þar sem færst hefur í aukana að Reykjavíkurhöfn sé notuð sem skiptihöfn og farþegar gisti hér áður en þeir fara annað hvort aftur um borð eða heim til sín með flugi. Þannig höfðu um tíu skemmtiferðaskip farþegaskipti hér í sumar sem er helmingsaukn- ing frá í fyrra. Alls komu 54 skemmtiferðaskip til Akureyrar í sumar og hafa um 70 skip tilkynnt komu sína þangað á næsta ári. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.