Fréttablaðið - 24.09.2004, Síða 42
Galli á gjöf Njarðar
Sjónvarpsstjarnan viðkunnanlega Oprah Winfrey
kom áhorfendum í sjónvarpssal vægast sagt
skemmtilega á óvart fyrir
skemmstu. Hún hafði valið sér-
staklega fólk í salinn sem vant-
aði fyrir einhverra hluta sakir
nýjan bíl – og Oprah gerði sér
lítið fyrir og gaf hverjum einasta
gesti nýjan Pontiac að verð-
mæti 28.500 Bandaríkjadala
(tæpar tvær milljónir króna).
Alls runnu því 276 bílar út.
En nú er komið babb í bátinn. Skattayfirvöld í
Bandaríkjunum eru ekki jafnörlát í skapi og sjón-
varpsstjarnan og heimta nú að hinir lánsömu gestir
í sjónvarpssal reiði af hendi sjö þúsund dali í
skatta (um hálfa milljón króna). Hópurinn í sjón-
varpssalnum er vitaskuld ekki sá loðnasti um lóf-
ana og eiga margir í stökustu vandræðum með að
ákveða hvernig þeir greiða úr þessari flækju.
Grennri Playstation
Sony í Evrópu hefur kynnt
nýtt útlit á hinni vinsælu
Playstation-tölvu. Nýja útgáf-
an er mun rennilegri en
sú gamla og hefur þar að auki aukna nettengi-
möguleika innbyggða. Gamla útgáfan var 7,8 senti-
metra þykk en hin nýja aðeins fimm og er einnig
helmingi léttari.
Eign lífeyrissjóða 900 milljarðar
Íslensku lífeyrissjóðirnir áttu tæplega níu hundruð
milljarða króna í lok júli. Eignin hefur hækkað um
22 prósent frá því á sama tíma í fyrra. Greiningar-
deild Landsbankans sagði frá þessu í gær í Vegvísi.
Þar kom einnig fram að stærstur hluti eignarinnar
er í íslenskum verðbréfum, eða 44 prósent. Það
hlutfall hefur lækkað frá því í fyrra enda hefur
verðmæti annarra eigna, sérstaklega hlutabréfa-
eignar, hækkað mjög hratt í ár. Um ellefu prósent
eigna lífeyrissjóðanna eru í lánum til sjóðsfélaga.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.603
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 384
Velta: 4.069 milljónir
+0,65%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Verð á hlutabréfum í Símanum
rauk upp í Kauphöll Íslands í gær.
Félagið er skráð í kauphöllinni
þótt einungis eitt prósent félags-
ins sé í eigu annarra en ríkisins.
Verð bréfanna hækkaði um sext-
án prósent.
Samkvæmt verðmati á mark-
aði er Síminn því um 66 milljarða
virði og fimmta verðmætasta fé-
lagið í Kauphöll Íslands. Aðeins
bankarnir þrír og Actavis eru verð-
mætari.
Landsbankinn er á góðri leið
með að verða jafn verðmætur og
Íslandsbanki. Í lok viðskipta í gær
var Landsbankinn metinn á
101,25 milljarða en Íslandsbanki
á 102 milljarða.
26 24. september 2004 FÖSTUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 49,20 -0,81% ... Bakkavör
28,00 -0,71% ... Burðarás 14,80 +1,37% ... Atorka 4,70 +3,52% ... HB
Grandi 7,70 - ... Íslandsbanki 10,20 - ... KB banki 486,00 +0,21% ...
Landsbankinn 12,50 +3,31% ... Marel 52,00 -0,95% ... Medcare 6,55
+0,77% ... Og fjarskipti 3,75 +1,35% ... Opin kerfi 25,90 -0,38% ... Sam-
herji 13,30 +5,56% ... Straumur 8,75 +4,17% ... Össur 88,50 +4,12%
Samherji 5,56%
Straumur 4,17%
Össur 4,12%
Marel -0,95%
Jarðboranir -0,91%
Actavis -0,81%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Nýrri handbók um sérleyfi
er ætlað að vera athafna-
mönnum til gagns við stofn-
un og rekstur sérleyfisfyrir-
tækja.
Út er komin handbók um stofnun
og rektur sérleyfisfyrirtækja.
Emil B. Karlsson, verkefnastjóri
hjá Samtökum verslunar og þjón-
ustu, ritaði bókina og afhenti Val-
gerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, fyrsta eintakið
á þriðjudag.
Alþjóðleg vörumerki, til
dæmis í fatnaði og matvöru, eru
gjarnan háð viðskiptasérleyf-
um. Ákveðinn aðili fær heimild
frá móðurfélaginu til að reka
fyrirtæki í nafni þess á tilteknu
svæði gegn því að inna af hendi
greiðslur og starfa í samræmi
við staðla og venjur sem móður-
félagið setur. Þekktasta dæmið
um sérleyfarekstur er skyndi-
bitakeðjan McDonald’s.
Að sögn Emils eru viðskipta-
sérleyfi notuð í mjög auknum
mæli þegar fyrirtæki færa út
kvíarnar. „Þetta hefur aukist
mjög mikið. Það hafa komið
mörg viðskiptasérleyfi til lands-
ins að undanförnu og við höfum
fengið margar fyrirspurnir um
hvernig standa beri að slíkum
rekstri. Bókin er ætluð þessum
aðilum og eins þeim íslensku
fyrirtækjum sem vilja nýta
þessa aðferð í útrás sinni. Þetta
eru leiðbeiningar um hvernig
standa skuli að verki við stofnun
og rekstur sérleyfisfyrirtækja,“
segir hann.
Engin nákvæm skráning er
til á fjölda sérleyfisfyrirtækja á
Íslandi en að mati Emils eru þau
í kringum 150. „Þetta er notað á
sífellt fleiri sviðum,“ segir
hann.
„Það er talið að þettta sé það
form sem mest er notað í heim-
inum þegar fyrirtæki hyggjast
stækka við sig,“ segir Emil.
Bókin er tæpar sjötíu síður
og er byggð á BSc-verkefni við
Háskóla Íslands. „Það er hand-
bókarsnið á þessu og leitast við
að hafa þetta sem hagnýtast en
ekki fræðilegt,“ segir hann. ■
FYRSTA EINTAK AFHENT Emil B. Karlsson, höfundur bókar um viðskiptasérleyfi, af-
hendir Valgerði Sverrisdóttur ráðherra fyrsta eintakið.
Handbók um sérleyfi
MIKIÐ AFL Á bak við Burðarás standa nú öflugustu menn íslensks viðskiptalífs. Stefnan er að nýta þetta afl til stórra fjárfestingarverk-
efna á erlendri grundu.
Þrír stórlaxar í sama liði
Sameining Burðaráss og
Kaldbaks markar tímamót
þar sem öflugustu einstak-
lingarnir í viðskiptalífinu
taka höndum saman. Mark-
miðið er að nýta þetta afl til
stórra fjárfestingarverkefna
erlendis.
Með sameiningu Kaldbaks og
Burðaráss undir merkjum þess
síðarnefnda er orðið til afar
sterkt fjárfestingarfélag. Í eig-
endahópnum eru einnig öflug-
ustu hreyfingar í íslensku við-
skiptalífi: Samson undir forystu
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
Baugur undir forystu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og Sam-
herji undir stjórn Þorsteins Más
Baldvinssonar.
Lokað var fyrir viðskipti með
Burðarás og Kaldbak við opnun
markaðar í gær. Á þeirri stundu
sátu fulltrúar þessara þriggja
og lögðu lokahönd á viðskiptin.
Það tók þó lengri tíma en menn
höfðu ætlað.
Undir lok dags var tilkynnt
um sameiningu félaganna.
Burðarás er eftir sameiningu
með hátt í 40 milljarða í eigið fé
og markaðsvirði upp á um 80
milljarða. Björgólfsfeðgar ráða
för í félaginu, en Jón Ásgeir og
Þorsteinn Már verða með sín
hvor fimm prósentin. Við styrk
félagsins bætist að á bak við það
eru einstaklingar sem geta
komið með aukið fé ef á þarf að
halda. Telja verður líklegt að ef
ráðist verður í stór erlend fjár-
festingarverkefni muni Jón Ás-
geir og Þorsteinn Már auka hlut
sinn í félaginu. Markmið Burða-
ráss er að eigið fé verði á bilinu
35 til 45 prósent. Miðað við nú-
verandi eigið fé ræður félagið
við eignasafn að verðmæti yfir
100 milljarða.
Baugur vinnur að 93 millj-
arða fjárfestingu. Líklegt er
miðað við fyrri samvinnu Kald-
baks og Baugs að Kaldbakur
hafi þegar skuldbundið sig til
aðkomu að kaupum á Big Food.
Með sameiningu verður Burða-
rás því að öllum líkindum aðili
að verkefninu.
Auk þess að hafa mikið afl
eru erlend tengsl mikil í eig-
endahópnum. Jón Ásgeir er
þegar orðinn stórt nafn í smá-
söluverslun í Bretlandi. Þor-
steinn Már, er vel tengdur innan
alþjóðlegs sjávarútvegs og
Björgólfur Thor er með mikil
tengsl bæði í alþjóðlegum fjár-
málaheimi og í Austur-Evrópu.
Stór egó
Enginn þessara manna er vanur
að sitja í farþegasæti í viðskipt-
um. Þar er komin ástæða þess
að dróst að ganga frá viðskipt-
unum. Við samningaborðið sátu
Þorsteinn Már og fulltrúar Jóns
Ásgeirs og Björgólfs Thors sem
voru í símasambandi við sína
menn. Þrjú stór egó tókust á og
samkvæmt heimildum var ekk-
ert eitt atriði ásteytingarsteinn.
Þarna tókust á menn sem ekki
eru vanir að gefa mikið eftir í
viðskiptum. Það tók því nokkurn
tíma að ganga frá viðskiptunum,
þótt meginlínur samningsins
hafi legið fyrir í gærmorgun.
Úti á markaði brutu menn
heilann um hvað væri að gerast
og hver markmiðin væru. Ein
kenningin var sú að út úr þess-
um viðskiptum myndu Þor-
steinn Már og Jón Ásgeir fá
Eimskipafélagið í sinn hlut.
Einnig er talið að Þorsteinn Már
hafi áhuga á Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna. Rökin voru þau
að allir aðilar væru vanir að
ráða stefnu sinna fjárfestinga.
Ólíklegt væri að Þorsteinn Már
og Jón Ásgeir muni sættast á til
lengdar að Björgólfur Thor ráði
ferðinni.
Þessum kenningum er neitað
og aðilar samningsins segja afl
til erlendra fjárfestinga aðal-
markmið sameiningar. Engar
eignir félaganna hafi hangið á
spýtunni við þessi viðskipti. Auk
Big Food-verkefnis Baugs er
Björgólfur Thor með stór fjar-
skiptaverkefni á teikniborðinu.
Annað er í Ungverjalandi, en
hitt er að sögn stærra og gæti
tengst einkavæðingu í stærra
landi í Austur-Evrópu. Við slík
verkefni getur skipt miklu að
vera með sterkt fjárfestingarfé-
lag á sínum snærum, auk þess
að vera með hluthafahóp sem
getur auðveldlega aukið hlutafé
ef á þarf að halda. Kaldbakur
einn og sér var of lítill fyrir
Baug og Samherja.
Landsbankinn, sem lýtur
stjórn Björgólfs, hefur unnið
með Baugi í nokkrum verkefn-
um. Þessir aðilar hafa þó ekki
ruglað saman reytum að öðru
leyti. Björgólfsfeðgar hafa fetað
einstigi vinsælda og óvinsælda
stjórnmálaafla og bein tengsl
við Baug ekki verið talin heppi-
leg í þeim línudansi. Ekki er
enda víst að allir gleðjist yfir
tíðindunum.
Innan viðskiptalífsins er mik-
il spenna yfir möguleikum er-
lendis. Í Bretlandi geta menn
með afl og tengsl keypt vel rek-
in fyrirtæki á mun lægra verði
en innanlands. Við slíkar að-
stæður spila þeir saman sem
telja sig fá mest út úr samvinn-
unni hverju sinni. Þar verður
engin undanskilinn sem ætlar á
annað borð að freista gæfunnar
í alþjóðlegum fjárfestingum. ■
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
BAKSVIÐS
SAMEINING BURÐARÁSS
OG KALDBAKS