Fréttablaðið - 24.09.2004, Qupperneq 44
Erindi í Listasafni Reykjavíkur:
Listsköpun Katrínar
28 24. september 2004 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Ingibjörg Hauksdóttir opnar
sýningu hjá Sævari Karli á
morgun, laugardag. Ingibjörg
málar óhlutbundnar myndir, oft
smágerð og óráðin munstur á
stóra fleti.
Sýningunni Ísland, Ítalía og
Bandaríkin: Valgerður Hauks-
dóttir og Debora Cornell frá
Bandaríkjunum hvor með sína
innnsetninguna en þeim fylgja
hljóðverk eftir Richard Cornell.
Paolo Ciampini frá Ítalíu sýnir
grafík.
NORÐUR OG NIÐUR, farand-
sýningu ungra finnskra, sænskra
og íslenskra
listamanna
sem opnar í
kjallara Nor-
ræna húss-
ins í dag.
Hagnýtt leikstjórnarnámskeið fyrir grunnskólakennara verður haldið á vegum
fræðsludeildar Þjóðleikhússins helgina 16. og 17. október. Leiðbeinandi er Sigrún
Valbergsdóttir og er námskeiðið ætlað þeim kennurum sem hafa einhverja reynslu
af leiklistarstarfi með grunnskólabörnum.
Í fyrirlestri og umræðum verður farið fræðilega í
gegnum ferli uppsetningar á leikriti og sérstaklega
miðað við þarfir grunnskólans. Staldrað verður við
greiningarvinnu og ýmsa verkþætti sem leikstjór-
inn ber ábyrgð á og tekur endanlega afstöðu til, svo
sem leikmyndavinnu, búningagerð, leikmunagerð,
hönnun lýsingar, hárgreiðslu, förðun, leikskrá
osfrv. Einnig verður farið í undirbúning og skipulag
frá degi til dags.
Meginhluti námskeiðsins er verklegur. Þátttakendur
verða til skiptis í hlutverkum leikara og leikstjóra.
Unnið verður með stutta leikþætti og senur sem
þátttakendur verða búnir að kynna sér fyrirfram.
Námskeiðið verður frá 10 -16 báða dagana og skil-
yrði er að þátttakendur séu með allan tímann. Þátttökufjöldi er takmarkaður og
kostnaður verður 10.000 kr. Skráning er hafin (sendið tölvupóst á
maria@leikhusid.is eða hringið í Maríu í síma 585 1200) og lýkur 4. október.
Kl. 20.00
Allra síðustu sýningar á Paris at Night,
sem byggð er á ljóðum Jacques Prévert
og tónlist Josephs Kosma, verða um
helgina, í kvöld og sunnudagskvöld.
Leikarar í sýningunni eru Jóhanna
Vigdís Arnardóttir og Felix Bergsson.
!
menning@frettabladid.is
Leikstjórnarnámskeið fyrir kennara
Þjóðleikhúsið frumsýnir í
kvöld Svarta mjólk, leikrit
þar sem sem kaldranalegur
stórborgarveruleiki og lífið
úti á landi í Rússlandi rekast
harkalega á.
Svört mjólk er heitið á fyrstu
frumsýningu leikársins í Þjóðleik-
húsinu. Verkið, sem er sýnt á
Smíðaverkstæðinu í kvöld, er
eftir Vasílij Sígarjov, kornungan
rússneskan höfund sem hefur
vakið gífurlega athygli í leikhús-
lífi Evrópu.
Verkið fjallar um ungt par úr
stórborginni sem er statt á lestar-
stöð í örlitlum smábæ úti á víðátt-
um Rússlands. Hann selur
brauðristar, hún er komin á
steypirinn. Þau geta varla beðið
eftir því að komast burt, en lestin
lætur bíða eftir sér. Svo birtast
þeir, þorpsbúarnir sem telja sig
hafa verið svikna í viðskiptum við
brauðristasölumanninn. Kald-
ranalegur stórborgarveruleikinn
og lífið úti á landi rekast harka-
lega á.
Í hlutverkum unga parsins,
Ljovtsiks og Lillu, eru Ólafur
Egill Egilsson og Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir. Þegar þau eru spurð
hvort Svört mjólk sé mjög
dramatískt leikrit segja þau að
í því sé mikill þungi undir niðri.
„Fólk er sorglegt án þess að vita
það sjálft,“ segir Ólafur og
Arnbjörg bætir við: „Það er mjög
mótað af umhverfi og aðstæðum.“
Hvers konar leikrit er þetta?
„Leikritið er kannski um sálina
og rassgatið og þar er varpað
fram ýmsum spurningum.
Hvenær deyr í manni sálin? Hvað
þarf maður að selja margar
ónýtar brauðristar og ganga í ber-
högg við það sem maður veit að er
satt og rétt, áður en sálin deyr?
Þetta par rambar á mörkum
þess að vera sálarlaust – en er það
þó ekki. Það kostar bara allt pen-
inga nú til dags, eins og segir í
leikritinu – og þegar allt kostar
peninga, þá fer allt að snúast um
að ná í þá. Fólk verður að velja sál-
ina eða að bjarga á sér rassgatinu.
En svo er þetta líka ástarsaga.
Ljovtsik og Lilla eru dæmigert
nútímapar, þótt þau þurfi að hafa
meira fyrir því að eiga í sig og á
en gengur og gerist.
Leikritið er eins og dæmisaga.
Höfundurinn er jafngamall okkur
og er að varpa upp gömlu gildun-
um í Rússlandi, frá tíma þar sem
engir peningar voru til, og þeim
nýju, þar sem allt flæðir í pening-
um og þjóðfélagið er alger frum-
skógur. Fólk er alið upp í svo hörð-
um heimi þarna, við svo ofboðs-
lega fátækt að það er spurning
hversu langt það er til í að ganga
til þess að fá það sem það þarf.
Þetta par er til í að ganga ansi
langt. En það er spurning hvort
þau eiga einhverra kosta völ. Þau
verða að taka þátt í þjóðfélaginu –
en hafa ekkert með það að gera að
setja leikreglurnar.“
Kjartan Ragnarsson leikstýrir
Svartri mjólk, verki um upplausn-
ina og frumskógarlögmálið í
Rússlandi á okkar dögum. En
hvaða erindi á það við okkur?
„Leikrit sem er skrifað af 27
ára strák sem segir af alvöru að
manneskjan sé einhvers virði á
alltaf erindi við okkur. Þetta er
strákur sem elst upp við spillingu,
hrun og vonleysi og er í fúlustu al-
vöru að leita að einhverjum heil-
legum kjarna í manneskjunni. Það
er merkilegt.
Verkið fjallar um heila heims-
álfu sem missir fótanna og er að
leita að einhverju siðferði til að
standa á. Það kemur okkur mikið
við.“
Í einu af aðalhlutverkum sýn-
ingarinnar er Tinna Gunnlaugs-
dóttir, sem leikur konuna sem
endurspeglar hin mannlegu gildi,
sem eru undirstaða lífs okkar en
er svo djúpt á í þessum heimi,
eins og hún segir. „Þessi rótgrónu
gildi koma alltaf til með að vera
undirstaða mannlegs lífs á meðan
græðgi og eigingirni eru það sem
unga fólkið í verkinu lifir og
hrærist í – og þau hæðast auðvitað
að þessum grónu gildum.
Í rauninni er höfundurinn að
endurspegla mun stærri sögu en
hann segir í verkinu. Hann er að
gefa okkur innsýn í það hrunda
samfélag sem fyrrum Sovétlýð-
veldin eru í dag.“
„Og hann nær að fjalla um Guð
þannig að ég tek mark á því,“
skýtur Kjartan inn í.
„Það má líka segja að þetta
verk kallist á við okkar sögu,“
segir Tinna. „Okkur var líka
kastað inn í nútímann. Við höfum
upplifað tíma þar sem laust sam-
an gömlum og nýjum gildum.“
Nú sækið þið bæði um stöðu
þjóðleikhússtjóra og eruð meðal
þeirra sex sem þjóðleikhúsráð
telur hæfa í stöðuna. Hvernig er
fyrir ykkur að vinna saman?
„Við höfum verið keppinautar
áður, til dæmis um verkefni. Leik-
arar hafa alla tíð þurft að vinna
saman um leið og þeir eiga í sam-
keppni,“ segir Tinna.
„Við Tinna höfum verið góðir
vinir í mörg ár og verðum það al-
veg örugglega áfram hvernig sem
fer,“ segir Kjartan.
„Og hvernig sem fer eigum við
líka örugglega eftir að vinna
saman,“ bætir Tinna við að lokum.
sussa@frettabladid.is
• Offering enlightenment, good
health, peace
• Increased energy and intelligence
for success in every profession
• Relaxed and creative life
• Stress-free individual and crime-
free society
• Harmonious behavior and
fulfilling relationships
• Techniques to fulfill desires and
enjoy affluence
• Maharishi Health Spa programs
• Vedic Vibration TechnologySM
for disorders
• Herbal food supplements
• Vedic architecture for health and
good fortune
• Transcendental Meditation®
• All these programs for all—men,
ladies, students, working adults,
senior citizens
Our offers are supported by hundreds
of scientific research studies.
Maharishi
being built in Reykjavík
Offered by the Global Country
of World Peace:
His Highness Dr. Wynne,
Raja of Vedic America and
His Highness Dr. Dean,
Raja of Washington, D.C.
PEACE PALACE
Hér og nú er hægt að fá
upplýsingar um hnattsamstarfið,
Friðarhallir rísa nú um allan heim,
í höfuðborgum og þúsundum annarra borga.
Hýsa heimsins dýpstu þekkingu og æðstu vísindi á
öllum sviðum -- þekkingu á
grundvallarraunveruleikanum og manninum.
og læra að njóta heilsu og lífsgæða.
vefsíða:
www.MaharishiPeacePalace.org
Endilega skoðið meira um þekkinguna í
„MaharishiPeacePalace”.
Upplýsingasími GCWP á Íslandi
693 73 54
LJOVTSIK OG LILLA
Ólafur og Arnbjörg
segjast leika fólk sem
er sorglegt án þess að
vita það sjálft.
KJARTAN RAGNARS-
SON LEIKSTJÓRI
Höfundur sem er í fúl-
ustu alvöru að leita að
einhverjum heillegum
kjarna í manneskjunni
á erindi við okkur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Hvenær deyr í manni sálin?
Thorvald Steen
í Norræna
húsinu
Norski rithöfundurinn Thorvald Steen
verður með fyrirlestur í Norræna húsinu
í dag klukkan 12.00. Pallborðsumræður
verða í kjölfarið þar sem taka munu til
máls Örnólfur Thorsson, Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Torfi H. Tulinius og
Vilborg Davíðsdóttir. Thorvald mun
einnig árita bók sína á staðnum.
Thorvald Steen er einn virtasti höfundur
Norðmanna en skáldsögur hans hingað
til hafa allar fjallað um söguleg efni.
Þær fyrstu, Don Carlos og Don
Giovanni, fjölluðu um Charles Darwin,
sú þriðja, Konstantínópel, fjallar um
Sigurð Jórsalafara og Undir svikulli sól
fjallar um Snorra Sturluson eins og fyrr
segir. Hún hlaut afar lofsamlega dóma
og hefur þegar verið þýdd á fjölmörg
tungumál. Thorvald Steen er fæddur
árið 1954 og hefur starfað sem blaða-
maður og rithöfundur og var um árabil
formaður norska rithöfundasambands-
ins. Hann er einnig höfundur ritgerða-
safnsins Frá Reykholti til Bosporus sem
kom út í fyrra. Nú í haust er væntanleg
ný bók frá hans hendi, Úlfaldaský.KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR Tölvu- og myndbandsverk eru meðal verka á ferli hennar.
Listfræðingurinn Eva Heislar
flytur erindi í Listasafni Reykja-
víkur – Hafnarhúsi sunnudaginn
26. september kl. 15.00. Í erindi
sínu mun hún fjalla um listsköpun
Katrínar Sigurðardóttur síðastlið-
inn áratug en verk hennar spanna
allt frá tölvu- og myndbandsverk-
um til þrívíðra verka og innsetn-
inga. Verk hennar fjalla um kort-
lagningu mannsins í tíma og rúmi.
Sýning á verkum Katrínar stend-
ur nú yfir í safninu.
Eva Heisler er bandarískur list-
fræðingur og gagnrýnandi sem
hefur búið og starfað á Íslandi um
nokkurt skeið. Eva hefur haldið
fyrirlestra og verið gestakennari
við Háskóla Íslands og Listahá-
skólann en er nú prófessor í ensku
og listasögu við Maryland Uni-
versity, starfandi í Evrópu.