Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 46
Danni Pollock á afmæli í dag og ætlar að fagna tímamótunum að hætti rokkhunda með tónleikum á Café Rosenberg í kvöld. Það eru fé- lagar Danna í Smokey Bay Blues Band, með Mike bróður hans í broddi fylkingar, sem verða honum til halds og trausts á sviðinu. „Mað- ur notar bara tækifærið og slær upp tónleikum með þessu blús- dæmi Mikka og félaga. Það koma þarna vinir og vandamenn og von- andi einhverjir fleiri og svo skemmtum við okkur með smá tón- list.“ Danni hefur verið býsna lengi að í rokkinu þannig að það er ekki úr vegi að grennslast fyrir um hversu gamall kappinn er orðinn. „Bíddu við,“ segir hann og telur á fingrum sér. „Ætli ég sé ekki orðinn 46 ára án þess að ég finni nokkuð fyrir því enda heldur rokk og ról manni ungum.“ Danni hefur engar áhyggjur af því að hann muni vanrækja afmæl- isgesti sína vegna spilamennskunn- ar. „Ætli ég heilsi bara ekki upp á liðið með fallegum sólóum í góðum fíling og svo skálum við inn á milli. Þetta er bara spurning um góða skemmtun og hafa afmælispartí. Við verðum mest í gamla blúsinum með þéttum ryþma. Það eru góðir menn með okkur og þetta verður allt í Pollock-bræðra-stílnum. Við spilum síðan auðvitað hitt og þetta, tökum smá kántríblús og Stones auðvitað. Þeir eru alveg ómiss- andi.“ Danni segist ekki hafa haldið upp á afmælið með þessum hætti síðan hann varð 30 ára. „Það var fyrir löngu síðan en þá hélt ég tónleika á einhverjum bar við Hlemm. Við kölluðum hann alltaf Krimmakjallarann. Það varð úr því helvíti gott 200 manna tón- leikapartí.“ Þessi 46 ára stuðbolti man tím- ana tvenna í tónlistinni og segir öfgarnar hafa verið miklu meiri þegar hann var að byrja í bransan- um. „Þetta blandast allt saman núna en svo poppar eitthvað skemmtilegt upp úr því. Þetta er miklu breiðari hópur núna og menn eru að gera allan fjandann þannig að það getur verið erfitt að koma auga á perlurnar en þegar sólin skín rétt á þær glampa þær.“ thorarinn@frettabladid.is 30 24. september 2004 FÖSTUDAGUR F. SCOTT FITZGERALD Rithöfundurinn og drykkjumaðurinn sem skrifaði meðal annars The Great Gatspy fæddist á þessum degi árið 1896. Það glitrar enn á perlurnar DANNI POLLOCK : BLÚSAR Á AFMÆLISDAGINN „Fyrst tekur þú þér drykk, svo tekur drykkurinn sér drykk og síðan tekur drykkurinn þig.“ - F. Scott Fitzgerald átti í nánu sambandi við Bakkus og því vafðist ekki fyrir honum að lýsa alkóhólisma í einni setningu. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Garðar Cortes óperusöngvari er 64 ára. Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, er 53 ára. ANDLÁT Gunnhildur Daníelsdóttir, frá Viðars- stöðum, lést 13. september. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Ágústa Margrét Ólafsdóttir, Úthlíð, Biskupstungum, lést 20. september. Finnur Sveinsson lést 20. september. Sigurður Þormar, Hvassaleiti 71, lést 20. september. Guðbjörg Þóra Þorsteinsdóttir, frá Þórshamri, lést 22. september. JARÐARFARIR 10.30 Takako Inaba Jónsson, Brekku- túni 9, verður jarðsungin frá Hall- grímskirkju 13.30 Haukur Snorrason (Denni), síð- ast til heimilis í Meðalholti 7, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni. 13.30 Alda Rannveig Þorsteinsdóttir verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju. 13.30 Jóhanna Ingibjörg Þorsteins- dóttir, síðast til heimilis á Lindar- götu 61, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju. 15.00 Stefanía Stefánsdóttir, áður til heimilis á Bergþórugötu 33, verð- ur jarðsungin frá Fossvogskapellu. DANNI POLLOCK Minnist þess að hafa oft skemmt sér konunglega á afmælum sínum í æsku. „Maður var alltaf að fá eitthvað dót. Einu sinni fékk ég trommusett sem ég rústaði á nokkrum dögum. Ég fer stundum illa með hljóðfærin en það kom visst hljóð út úr því.“ 24. september 1996 Hrollvekjumeistarinn Stephen King er með af- kastamestu rithöfundum samtímans en síðustu þrjá áratugi eða svo hefur hann dælt út hnausþykkum skáldsögum og smásagnasöfnum. Á þessum degi árið 1996 setti hann þó per- sónulegt met þegar tvær vænar skáldsögur eftir hann komu út sam- dægurs. Þetta voru bækurnar Desperation og The Regulators. Sú fyrrnefnda kom út undir nafni Kings en The Regulators var eignuð Richard Bachman en hann hafði áður gefið út bækur undir því dulnefni. Bæk- urnar tengdust óbeint þar sem sama ófétið reið húsum í þeim báðum og nokkrar persónur birtust með ólíkum hætti í sögunum. King er vitaskuld ofvirkur rithöfund- ur og það er ekki peninganna vegna sem hann gaf þessar tvær bækur út á sama tíma þar sem hann hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn tekjuhæsti rithöf- undur heims. Lífið var þó ekki alltaf dans á rósum hjá kappanum og á sínum yngri árum bjó hann með eiginkonu sinni í hjólhýsi á meðan hann skrifaði bækur sem enginn vildi gefa út. Það var svo árið 1973 sem hann seldi handritið að Carrie og í kjölfarið fóru að bækurnar streyma út og milljónirnar inn. ÞETTA GERÐIST STEPHEN KING GAF ÚT TVÆR BÆKUR SAMDÆGURS MERKISATBURÐIR 1869 Þúsundir viðskiptajöfra urðu gjaldþrota eftir að geðshræring greip um sig á Wall Street eftir að Jay Gould og James Fisk reyndu að ná tökum á gullmarkaðnum. 1934 Babe Ruth lék sinn síðasta hafnaboltaleik fyrir New York Yankees. 1955 Dwight Eisenhower, forseti Bandaríkjanna, fékk hjarta- áfall þegar hann var í fríi í Denver. 1968 Fréttaskýringaþátturinn 60 Minutes hóf göngu sína á sjónvarpsstöðinni CBS. 1976 Patricia Hearst var dæmd í 7 ára fangelsi fyrir þátt sinn í bankaráni árið 1974. Jimmy Carter Bandaríkja- forseti náðaði hana eftir 22 mánuði. 1991 Theodor Seuss Geisel, betur þekktur sem DR. Seuss, lést 87 ára að aldri. King með tvær bækur í einu sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 20. september, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 28. september kl. 13.30. Ingibergur Sigurðsson, Íris Kristjánsdóttir, Anton G. Ingibergsson, Kristján A. Írisarson, Valgerður Ý. Ásgeirsdóttir, Steinunn Gísladóttir, Hulda Leifsdóttir, Bjarni Pálsson, Hafdís Leifsdóttir, Sigurbjörn Sigurðsson og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Helga Leifsdóttir Trönuhjalla 19, Kópavogi, Móðir okkar, Guðbjörg Þóra Þorsteinsdóttir Frá Þórshamri Lindarbraut 13A, Seltjarnarnesi lést miðvikudaginn 22. september. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhann Geirsson, Þorsteinn Geirsson og Sigurður Grétar Geirsson. Móðir mín, amma okkar og langamma, Stefanía Stefánsdóttir áður til heimilis að Bergþórugötu 33, sem lést á Hrafnistu 16. september, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 24. september kl. 15:00. Sigríður Alexander, Kristinn Guðjónsson, Stefanía Guðjónsdóttir, Katrín Guðjónsdóttir, Rúnar og Guðbjörg. Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir, stjúpbróðir, mágur og frændi Bragi Gunnarsson áður til heimilis að Bergþórugötu 33, Lést laugardaginn 18. september. Gunnar Þorleifsson, Theódóra Sif Pétursdóttir, María Bragadóttir Sveinn Hallgrímsson, Unnur Lind Gunnarsdóttir, Halldór Haraldsson, Baldur Gunnarsson, Þórunn Jónsdóttir, Ólöf Petra Gunnarsdóttir, Fannar Gunnlaugsson, Anna Margrét Gunnlaugsdóttir, Berglaug Dís Jóhannsdóttir, Sóley Björk, Sindri Freyr, Helena Rán og Eva Dís. Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, Ásgrímur Jónsson Móabarði 4, Hafnarfirði lést á Landspítalanum 22. september. Kristjana Pétursdóttir, Sveinbjörn Ásgrímsson, Sóley Björk Ásgrímsdóttir, Sverrir Kr. Bjarnason og Guðrún Jóna Ásgrímsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.